NOTE: This article is more than 5 years old.
24 febrúar 2014
/

Umsækjendur um stöðu forstjóra Landspítala


Landspítali
Landspítali

Fjórir sóttu um stöðu forstjóra Landspítala sem auglýst var laus til umsóknar í lok janúar síðastliðinn. Hæfni umsækjenda verður metin af þriggja manna nefnd sem skipuð er af heilbrigðisráðherra samkvæmt 2. mgr. 9. gr. laga nr. 40/2007 um heilbrigðisþjónustu. Ráðherra skipar í stöðuna til fimm ára í senn frá 1. apríl 2014. 

Umsóknarfrestur rann út 21. febrúar. Umsækjendur eru:

  • Heimir Guðmundsson
  • Lýður Árnason
  • Páll Matthíasson
  • Sveinn Ívar Sigríksson