NOTE: This article is more than 5 years old.
02 september 2014
/

Ársfundur Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga verður 8. október

Ársfundur Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga verður haldinn miðvikudaginn 8. október næstkomandi  á Hilton Reykjavík Nordica og hefst klukkan 16:00. Ársfundurinn verður með svipuðu sniði og áður.

Boð á fundinn verða send út fyrri hluta septembermánaðar. Til fundarins verða boðaðir  framkvæmdastjórar sveitarfélaga eða staðgenglar þeirra, fulltrúar samtaka sveitarfélaga og aðrir samstarfsaðilar Jöfnunarsjóðs.