NOTE: This article is more than 5 years old.
18 desember 2015
/

Heimsókn í tengslum við verkefnið Velferð og vá

Um þessar mundir er fræðikonan Erna Danielsson í heimsókn hjá Háskóla Íslands í tengslum við verkefnið Velferð og vá. Erna er einn af fulltrúum sænska ráðgjafarhópsins í verkefninu. Hún er dósent í félagsvísindadeild við Mittuniversitet í Svíþjóð, sjá http://www.miun.se/en/personnel/ernadanielsson.  Jafnframt starfar hún við rannsóknir við rannsóknasetrið Risk and Crisis Research Centre sem staðsett er við háskólann. Rannsóknir hennar þar hafa einkum beinst að samstarfi ólíkra viðbragðsaðila á hamfaratímum.