NOTE: This article is more than 5 years old.
04 apríl 2017
/

Auglýst eftir umsóknum um styrki úr þróunarfjárframlagi til hrossaræktar


Mynd: Norden
Íslenskur hestur

Markmið með styrkjum úr þróunarframlagi til hrossaræktar er að efla markaðssókn og ræktun íslenska hestsins.

Styrkhæf eru hvers konar verkefni er lúta að:

  1. Kynbótum hrossa, fóðrun þeirra eða meðferð
  2. Tamningum og þjálfun hrossa sem stuðla að auknum árangri og ávinningi
  3. Markaðs-, kynningar- og nýsköpunarstarfi

Lögð er megin áhersla á að styrkja átaks- og nýsköpunarverkefni sem geta orðið sjálfbær eftir að þróunartímabili þeirra lýkur, útgáfu- og kynningarstarfsemi og hagnýtar rannsóknir. Sjóðurinn hefur til ráðstöfunar 5,6 milljónir króna.

Í umsóknum skal gerð skýr grein fyrir verkefninu sem í hlut á, markmiði þess, framkvæmdaáætlun og ávinningi. Hverri umsókn skal fylgja greinargóð kostnaðaráætlun. Ráðuneytið metur styrkhæfi umsókna og ákveður afgreiðslu þeirra.

Umsóknir skulu berast atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, Skúlagötu 4, 101 Reykjavík eða á netfangið [email protected].

Umsóknarfrestur er til og með 12. apríl 2017.

Nánari upplýsingar veitir Kjartan Hreinsson í síma 545 9700. Einnig má senda fyrirspurnir með tölvupósti á netfangið [email protected].