NOTE: This article is more than 5 years old.
12 október 2017
/

Framlagning kjörskráa


Kjörskrár vegna kosninga til Alþingis, sem haldnar verða laugardaginn 28. október 2017, skulu lagðar fram eigi síðar en  18. október 2017. Kjörskrá skal leggja fram á skrifstofu sveitarstjórnar eða á öðrum hentugum stað sem sveitarstjórn auglýsir sérstaklega.

Kjörskrá skal liggja frammi á almennum skrifstofutíma til kjördags.

Þeim sem vilja koma að athugasemdum við kjörskrá er bent á að senda þær hlutaðeigandi sveitarstjórn.

Dómsmálaráðuneytinu, 12. október 2017.