NOTE: This article is more than 5 years old.
05 febrúar 2018
/

Kosningar um sameiningu Fjarðarbyggðar og Breiðdalshrepps

Utankjörfundaratkvæðagreiðsla vegna kosningar um sameiningu sveitarfélaganna Fjarðarbyggðar og Breiðdalshrepps er hafin í sendiráði Íslands í Stokkhólmi.

Kjördagur er 24. mars 2018. Kjósandi ber sjálfur ábyrgð á því að atkvæðið komist til skila í tæka tíð. Sé þess óskað getur sendiráðið sent atkvæðið með bréfpósti en kjósandi ber straum af sendingarkostnaði.

Í lögum nr. 5/1998 um sveitastjórnarkosningar er kveðið á um það hverjir hafa kosningarétt.

Tekið er á móti kjósendum alla virka daga frá klukkan 9:30 til 15:30.

Kjósendur eru beðnir um að framvísa skilríkjum.