NOTE: This article is more than 5 years old.
08 mars 2018
/

UN Women: Neyðarsöfnun fyrir Róhingjakonur í Bangladess

{image.Description}

Landsnefnd UN Women á Íslandi hefur hrundið af stað í dag á alþjóðlegum baráttudegi kvenna neyðarsöfnun fyrir Róhingjakonur á flótta í Bangladess sem hafa þurft að þola gróft ofbeldi og búa við grimman veruleika. UN Women starfrækir neyðarathvarf fyrir konur í flóttamannabúðum í Cox´s Bazar þar sem þær hljóta áfallahjálp, fá sæmdarsett, atvinnutækifæri og öryggi gegn ofbeldi.

Samkvæmt upplýsingum frá UN Women eru konur helmingur íbúa búðanna. „Um 400 þúsund konur búa við stöðugan ótta við ofbeldi. Nánast allar hafa orðið vitni að eða verið beittar grófu kynferðislegu ofbeldi. Í mörgum tilfellum voru konur og stúlkur látnar horfa á þegar hermenn myrtu börn þeirra eða foreldra áður en þeir hófu að nauðga þeim. En nauðganir á konum og stúlkum hafa verið notaðar sem markvisst stríðsvopn í þessum blóðugu ofsóknum gegn Róhingjum í Mjanmar, segir á vef UN Women.

Þar kemur einnig fram að neyðin sé gríðarleg. „UN Women vantar sárlega fjármagn til að halda áfram að veita konum kvenmiðaða neyðaraðstoð með tilliti til þarfa kvenna og barna þeirra. Tryggja þarf áframhaldandi starfsemi neyðarathvarfs UN Women í búðunum sem UN Women rekur. Ef ekkert verður að gert lokar neyðarathvarfið nú í apríl.“

UN Women á Íslandi hvetur alla til að senda sms-ið KONUR í 1900 (1900 kr.) og styrkja áframhaldandi starfsemi neyðarathvarfs fyrir konur í flóttamannabúðunum. Þar hljóta þær áfallahjálp, atvinnutækifæri og öryggi gegn ofbeldi. UN Women dreifir einnig sæmdarsettum til kvenna sem inniheldur helstu hreinlætisvörur, teppi, vasaljós og vistvæn kol til matseldar og upphitunar.

Einnig er hægt að leggja söfnuninni lið með því að leggja inn á bankareikning 0101-05-268086, kt. 551090-2489 ásamt skýringunni Neyð.