NOTE: This article is more than 5 years old.
15 janúar 2019
/

Sameiginlegt norrænt útboð á lyfjum

{image.Description}
Lyf

Undirbúningur að sameiginlegu útboði Danmerkur, Noregs og Íslands vegna kaupa á völdum lyfjum til notkunar á sjúkrahúsum er á lokastigi. Litið er á útboðið sem reynsluverkefni til að afla þekkingar á ýmsum hagnýtum þáttum slíkra útboða.

Væntanlegum tilboðsgjöfum verður gefið færi á að gera athugasemdir við útboðsgögnin og verður sá tími 6 vikur, eða frá lok janúar fram í byrjun mars.