NOTE: This article is more than 5 years old.
23 janúar 2019
/

Áslaug Arna og Logi kynna sér þróunarstarf í Malaví

{image.Description}
Ágústa Gísladóttir, sendifulltrúi Íslands í Malaví, Magdalena Schroder, þingkona Svíþjóðar, Atupele Muluzi heilbrigðisráðherra Malaví, Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, Anders Österberg, þingmaður Svíþjóðar, Merethe Scheelsbeck, þingkona Danmerkur og Logi Einarsson.

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, formaður utanríkismálanefndar, og Logi Einarsson, annar varaformaður í utanríkismálanefnd, eru nú stödd í Malaví í heimsókn sem er meðal annars skipulögð af Bill & Melinda Gates-stofnunarinnar, The Global Fund, GAVI og UNICEF. Tilgangur ferðarinnar er að sjá afrakstur alþjóðlegrar þróunarsamvinnu í Malaví á sviði heilbrigðismála, en þingmenn frá Danmörku og Svíþjóð eru einnig með í för. Áslaug Arna og Logi halda síðan til ferðinni áfram til Mangochi héraðs á morgun þar sem þau munu skoða þau verkefni sem unnið er að í tvíhliða þróunarstarfi Íslands í héraðinu. 

Áslaug Arna hefur fjallar ítarlega um ferðina og verkefni alþjóðlegrar þróunarsamvinnu Íslands í Malaví á Instagram-síðu sinni. Þá var eining fjallað um heimsóknina í malavíska blaðinu The Daily Times í morgun. Þar segir að norrænu þingmennirnir hafi lagt áherslu á valdeflingu kvenna og kynjajafnrétti á fundum sínum með ráðherrum Malaví í gær. Haft er eftir Áslaugu Örnu að á þó svo að miklar framfarir séu í heilbrigðismálum í ríkinu sé hröð fólksfjölgun enn stór áskorun. 

Heimsljós fjallaði um það nýverið að íbúum í Malaví hafi fjölgað um 35 prósent á síðustu átta árum. Til samanburðar fjölgaði Íslendingum um rúmlega tíu prósent á sama tímabili. Ísland er á meðal þeirra framlagsríkja og stofnana sem styrktu gerð manntals í Malaví síðasta haust, en réttar upplýsingar eru grundvöllur þess að hægt sé að skipuleggja áframhaldandi þróunarstarf í ríkinu. Ísland lagði fram tæpar eitt hundrað milljónir króna til Mannfjöldasjóðs Sameinuðu þjóðanna (UNFPA) sem nýtist einkum við úrvinnslu gagna og uppsetningu gagnamiðlunarkerfis. 

Í Malaví búa nú um 17,6 milljón manns. Þar af eru 51 prósent undir 18 ára aldri og 45 prósent fæðast móður sem er 18 ára eða yngri. Á undanförnum árum hefur Ísland stóraukið framlög til Mannfjöldasjóðs Sameinuðu þjóðanna (UNFPA), í þágu kyn- og frjósemisréttinda og -heilbrigðis en meðal verkefna UNFPA er að tryggja réttindi mæðra og barna til heilsuverndar, tryggja ungbarnavernd, dreifingu getnaðarvarna og kynlífs- og fjölskyldufræðslu.