NOTE: This article is more than 5 years old.
12 apríl 2019
/

Utanríkisráðherra sækir vorfundi Alþjóðabankans

{image.Description}
Ljósmynd: Alþjóðabankinn / Simone D. McCourtie

Þessa vikuna standa yfir vorfundir Alþjóðabankans í Washington. Alþjóðabankinn er ein af fjórum áherslustofnunum í fjölþjóðlegri þróunarsamvinnu Íslands og stærsta þróunarsamvinnustofnun heims. Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra verður viðstaddur fundina í höfuðstöðvunum í Washington í dag og á morgun. Hann situr meðal annars fund Þróunarnefndar Alþjóðabankans og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins sem skipuð er ráðherrum 25 landa og hittist tvisvar á ári. Utanríkisráðherra situr í nefndinni árið 2019 fyrir hönd kjördæmis Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna og flytur ávarp þar sem áherslumálum kjördæmisins er komið á framfæri .

Utanríkisráðherra tekur einnig þátt í margvíslegum viðburðum sem tengjast samstarfi Íslands og Alþjóðabankans. Þar má nefna þátttöku í stofnviðburði nýs mannréttindasjóðs Alþjóðabankans, Human Rights and Development Trust Fund.  Ísland er einn stofnaðila þessa nýja sjóðs, sem hefur það hlutverk að auka veg mannréttinda í verkefnum Alþjóðabankans og þekkingu innan bankans á málaflokknum.

Þá tekur utanríkisráðherra þátt í fundi smáríkja þar sem rætt verður um bláa hagkerfið svonefnda en Ísland er þátttakandi í nýstofnuðum ProBlue-sjóði Alþjóðabankans sem tekur á málefnum hafsins á heildrænan hátt. Ísland leggur sjóðnum til fjármagn í verkefni sem snúa að fiskimálum og plastmengun í hafi.

Í sumar tekur Ísland sæti í stjórn Alþjóðabankans til næstu tveggja ára en Norðurlöndin og Eystrasaltsríkin skiptast á að gegna stjórnarsetu í bankanum. Geir H. Haarde fyrrverandi forsætisráðherra og sendiherra leiðir starfið fyrir Íslands hönd.