NOTE: This article is more than 5 years old.
03 júlí 2019
/

Heimsmarkmiðagátt opnuð

{image.Description}
Forsíða heimsmarkmiðagáttarinnar.

Verkefnastjórn stjórnvalda um heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna hefur opnað Heimsmarkmiðagátt þar sem fólki gefst kostur á að koma verkefnum tengdum heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna á framfæri.

Tilgangurinn með gáttinni er að virkja samfélagið í heild sinni við innleiðingu heimsmarkmiðanna og tryggja góða upplýsingamiðlun milli stjórnvalda og hagsmunaaðila um markmiðin.

Innsendingu verkefna í gáttina er ætlað að vera hvetjandi fyrir ýmsa aðila til að auka sjálfbærni í daglegri starfsemi. Þá getur innsending verkefna verið góð leið til þess að vekja athygli á hagnýtum og nýstárlegum verkefnum á sviði sjálfbærrar þróunar. Gáttin getur einnig nýst til þess að leita sér innblásturs og jafnvel til þess að finna mögulega samstarfsaðila að verkefnum.

Heimsmarkmiðagáttin byggir á erlendum fyrirmyndum, meðal annars frá Finnlandi. Öllum er frjálst að senda inn verkefni í Heimsmarkmiðagáttina og skulu verkefnin uppfylla þau skilyrði að þau feli í sér mælanleg markmið sem stuðli að sjálfbærri þróun og þar með framgangi heimsmarkmiðanna. Þá skal sett fram tímasett áætlun og tiltekið hvenær áætlað er að markmiðum verði náð.