20 apríl 2021
/

Fyrsti fundur fjármálastöðugleikaráðs á árinu 2021

Fyrsti fundur ársins 2021 í fjármálastöðugleikaráði var haldinn mánudaginn 19. apríl. Seðlabanki Íslands fór yfir greiningar á helstu áhættuþáttum í fjármálakerfinu og hagkerfinu, meðal annars um húsnæðismarkað og útlánagæði. Þá var jafnframt haldin kynning á fjármálainnviðum hér á landi.