23 október 2025
/
Úr dagskrá umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra vikuna 1. – 5. september 2025
Mánudagur 1. september
• Upptaka á ávarpi fyrir ársfund Grænvangs• Fundir með starfsfólki um sérstök fagmálefni ráðuneytisins
• Vinnufundur ríkisstjórnar á Þingvöllum
Þriðjudagur 2. september
• Ríkisstjórnarfundur• Fjarfundur ásamt atvinnuvegaráðherra með fulltrúum Sambands íslenskra sveitarfélaga um fyrirkomulag eftirlits með hollustuháttum, mengunarvörnum og matvælum
• Fjarfundur ásamt atvinnuvegaráðherra með starfsfólki Umhverfis- og orkustofnunar, Matvælastofnunar og heilbrigðiseftirlitssvæða um fyrirkomulag eftirlits með hollustuháttum, mengunarvörnum og matvælum
• Blaðamannafundur ásamt atvinnuvegaráðherra um fyrirkomulag eftirlits með hollustuháttum, mengunarvörnum og matvælum
• Fundur með fulltrúum EM Orku um vindorkumál
• Kvöldverður í sendiráði Danmerkur með danskri sendinefnd og fulltrúum Grænvangs