31 október 2025
/

Friðarráðstefnan í París

{image.Description}
Paris Peace Forum
Friðarráðstefnan í París (Paris Peace Forum) var haldin í 8. sinn dagana 29. og 30. október 2025
Friðarráðstefnan í París var haldin í áttunda sinn í vikunni og var hún vel sótt af fulltrúum ríkja, alþjóðastofnana, félagasamtaka og fræðasamfélagsins. Loftslagsmálin voru í brennidepli nú þegar tíu ár eru liðin frá samþykkt Parísarsamkomulagsins. Auk þess var málefnum Úkraínu og Palestínu gert hátt undir höfði og staða lýðræðis og upplýsingaóreiða rædd í þaula.

Ísland tók þátt í viðburði á vegum Frakklands og Gana um hvernig megi greiða úr upplýsingaóreiðunni, styðja við sjálfstæða og vandaða fjölmiðlun og vernda blaðamenn sem margir hverjir leggja líf sitt og frelsi í hættu á hverjum degi. Ísland er meðlimur ríkjabandalags um upplýsingaheilindi og skrifaði undir yfirlýsingu fundarins ásamt 28 öðrum ríkjum. María Ressa, Nóbelsverðlaunahafi og Íslandsvinur, lýsti grafalvarlegri stöðu af völdum upplýsingaóreiðu og Maja Sandu forseti Moldóvu greindi frá því hvernig Rússar hafa beitt sér til að grafa undan lýðræðinu þar í landi.

Ísland leggur sitt af mörkum til að verja tjáningarfrelsið og vernda fjölmiðlafólk sem víða hættir lífi sínu og frelsi við störf sín. Það gerum við bæði með öflugu málsvarastarfi á vettvangi mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna og annarra alþjóðastofnana og með stuðningi við sértæk verkefni, m.a. hjá UNESCO sem beitir sér fyrir öryggi blaðamanna.