Ársfundur IFAD - Alþjóðlegs þróunarsjóðs landbúnaðarins
Ársfundur IFAD var haldinn dagana 9-12 febrúar sl. Ísland hefur átt aðild að IFAD frá árinu 2001. Nú er unnið að endurnýjun samstarfs Íslands og IFAD þar sem lögð eru drög að því að stofnunin geti fengið til liðs við sig sérfræðinga frá Íslandi hvort sem er á sviði landbúnaðar, jarðræktar eða sjávarútvegs. Ennfremur hefur verið afráðið að Ísland styðji stofnunina sérstaklega til verkefna á sviði jafnréttismála, þar sem sérstaklega verði horft til valdeflingar stúlkna og kvenna í fæðukerfum. Í því sambandi verður kannað hvort færi sé á því að tengja skóla GRÓ við starfsemi IFAD á vettvangi. IFAD hefur ekki, fremur en aðrar stofnanir sem sinna marghliða þróunaraðstoð farið varhluta af því að framlögin hafa snarlega lækkað. Nú fer í hönd undirbúningur á því að auka stofnfé sjóðsins á 14. fjárhagstímabili hans frá stofnun, IFAD 14, sem tekur til áranna 2028-2030.