29 október 2026
/
Dómsmálaráðuneytið

Mál nr. 17/2024 - Úrskurður

Mál nr. 17/2024

 

Úrskurður kærunefndar jafnréttismála

 

A

gegn

Lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu

 

Skipun í embætti. Mismunun á grundvelli aldurs. Hæfnismat. Fallist á brot.

A, sem var meðal umsækjenda um stöðu aðstoðaryfirlögregluþjóns við embætti lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu, kærði ákvörðun um skipun í embættið á þeim grundvelli að sér hefði verið mismunað á grundvelli aldurs í andstöðu við lög nr. 86/2018, um jafna meðferð á vinnumarkaði. Kæranda var ásamt öllum umsækjendum boðið til viðtals við valnefnd sem sett var á fót vegna skipunarinnar, en ekki til síðara viðtals við valnefnd. Að loknu umsóknarferli skipaði kærði einstakling í embættið sem var tæplega tveimur áratugum yngri en kærandi. Kærði mótmælti því að hann hefði gerst brotlegur við lögin við skipunina. Undir rekstri málsins gekkst kærði við því að mat valnefndar á farsælli reynslu kæranda af stjórnun og mannauðsmálum innan lögreglu hefði verið háð annmörkum. Að því athuguðu var fallist á að kærandi hefði leitt líkur að því að honum hefði verið mismunað á grundvelli aldurs þar sem mat kærða hefði ekki verið forsvaranlegt. Kærði var ekki talinn hafa sýnt fram á hvaða gögn lágu til grundvallar ákvörðun um skipun í embættið en af fyrirliggjandi gögnum var ekki talið að mat kærða á tilteknum hæfniskröfum auglýsingar um embættið hefði verið málefnalegt eða forsvaranlegt. Var því fallist á að kærði hefði mismunað kæranda á grundvelli aldurs í andstöðu við lög nr. 86/2018.

  1. Á fundi kærunefndar jafnréttismála 29. október 2026 er tekið fyrir mál nr. 17/2024 og kveðinn upp svohljóðandi úrskurður:
  2. Með kæru, dags. 4. júní 2024, kærði A ákvörðun Lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu um skipun í embætti aðstoðaryfirlögregluþjóns  […]  við rannsóknarsvið embættisins, sem kæranda var tilkynnt um með tölvupósti 13. október 2023. Kærandi telur að með skipuninni hafi kærði mismunað honum á grundvelli aldurs í andstöðu við lög. nr. 86/2018, um jafna meðferð á vinnumarkaði.
  3. Á fundi kærunefndar jafnréttismála 8. ágúst 2024 var ákveðið að taka málið fyrir þar sem sérstaklega stæði á, sbr. 3. mgr. 9. gr. laga nr. 151/2020, um stjórnsýslu jafnréttismála, þótt sex mánaða kærufrestur væri liðinn, þar sem gögn málsins hefðu ekki verið afhent kæranda, fyrr en tveimur mánuðum eftir að hann hafði óskað eftir þeim.
  4. Kæran ásamt fylgigögnum var kynnt kærða með bréfi, dags. 15. ágúst 2024, þar sem jafnframt var óskað eftir öllum gögnum málsins, að því leyti sem þau lægju ekki þegar fyrir. Greinar­gerð kærða barst með bréfi, dags. 1. október 2024, ásamt fylgigögnum, og var kynnt kæranda í kjölfarið. Athugasemdir kæranda eru dags. 27. nóvember 2024 og athugasemdir kærða 10. febrúar 2025.

 

MÁLAVEXTIR

  1. Kærði auglýsti laust embætti aðstoðaryfirlögregluþjóns […] á rannsóknarsviði, sem birt var […] 2023. Í auglýsingunni kom m.a. fram að leitað væri eftir metnaðarfullum og framsýnum leiðtoga í embættið. Í auglýsingu kom fram að verksvið og ábyrgð aðstoðaryfirlögregluþjóns væru tilgreind í 6. gr. reglugerðar nr. 1051/2006 um starfsstig innan lögreglu, þ. á m. stjórn og ábyrgð á deild og tilteknum verkefnum.
  2. Menntunar- og hæfniskröfur voru að umsækjendur skyldu uppfylla skilyrði 4. mgr. 28. gr. lögreglulaga, nr. 90/1996, fimm ára starfsreynsla sem lögreglumaður, yfirgripsmikil þekking og reynsla af starfsemi lögreglu, þekking og reynsla af rannsóknum sakamála, […], farsæl reynsla af stjórnun og mannauðsmálum innan lögreglu, reynsla og þekking af umbótastarfi, rýni og umbótum verkferla, framúrskarandi hæfni i mannlegum samskiptum, leiðtogahæfni, sjálfstæði í starfi, sveigjanleiki og gott álagsþol, brennandi áhugi á umbótastarfi og að efla starfsfólk í störfum sínum, skipulagshæfileikar og nákvæmni í vinnubrögðum og að síðustu gott vald á íslensku og ensku og hæfni til að miðla upplýsingum í rituðu og töluðu máli.
  3. Alls sóttu fimm einstaklingar um embættið. Kærði setti saman ráðgefandi valnefnd sem meta ætti hæfni umsækjenda út frá þeim þáttum sem tilgreindir voru í auglýsingu um embættið.
  4. Kærði greinir frá því að valnefnd hafi í upphafi metið umsækjendur út frá matsramma þar sem umsækjendum voru gefin stig á grundvelli umsóknargagna. Allir umsækjendur voru boðaðir til viðtals við nefndina. Í viðtölum var notast við staðlaðan viðtalsramma þar sem umsækjendur voru spurðir sömu spurninganna. Að loknum viðtölum voru umsækjendur metnir með hliðsjón af matsblaðinu og gefin stig.
  5. Að loknum viðtölum voru tveir umsækjendur boðaðir til annars viðtals við valnefndina þar sem þeir kynntu framtíðarsýn sína og hvernig þeir sæju fyrir sér fyrstu tólf mánuði í embættinu. Að loknum viðtölum var það niðurstaða þeirra sem að umsóknarferlinu komu að C væri best fallinn til þess að gegna embættinu og var hann skipaður.
  6. Kæranda var greint frá niðurstöðunni símleiðis 6. október 2023, en skrifleg tilkynning barst kæranda í tölvupósti 16. s.m. Kærandi óskaði samdægurs eftir rökstuðningi auk aðgangs að öllum gögnum um hann og aðra umsækjendur. Kærandi ítrekaði beiðni sína 6. nóvember s.á. Kærði veitti rökstuðning með bréfi hinn 10. nóvember auk þess að afhenda hluta gagna málsins. Kærandi óskaði eftir frekari svörum og ítrekaði beiðni sína um aðgang að öllum gögnum málsins 21. nóvember. Kærði afhenti frekari gögn með tölvupósti til kæranda, dags. 19. desember 2023, auk þess að veita svör við spurningum kæranda með bréfi.
  7. Í kjölfarið voru frekari samskipti milli kæranda og kærða í desember og janúar 2024 um tilurð og aðgang að einstaka gögnum umsóknarferlisins. Kærði afhenti frekari gögn og veitti viðbótarsvör við spurningum kæranda með tölvupóstum 5. janúar og 10. janúar 2024.

 

SJÓNARMIÐ KÆRANDA

  1. Kærandi byggir á því að sér hafi með ólögmætum og ómálefnalegum hætti verið mismunað á grundvelli aldurs við skipun í embættið. Þannig hafi kærði brotið gegn lögum nr. 86/2018, um jafna meðferð á vinnumarkaði við meðferð málsins, með því að kærandi var útilokaður frá umsóknarferli.
  2. Kærandi byggir á því að hann hafi verið hæfasti umsækjandinn um embættið og vísar þar til langs starfsferils síns innan lögreglu. Hann hafi lengstu stjórnunarreynslu umsækjenda, þar með talið innan þeirrar deildar sem nýtt embætti aðstoðaryfirlögregluþjóns skyldi vera staðsett. Til viðbótar búi hann yfir áratugalangri reynslu af rannsóknum sakamála, þ.m.t. […] og reynslu af saksókn mála.
  3. Kærandi telur sig ekki hafa verið metinn af verðleikum. Þá hafi valnefnd ekki aflað fullnægjandi upplýsinga til að geta lagt mat á hvernig einstakir umsækjendur féllu að þeim sjónarmiðum sem ákvörðun um skipun byggðist á, eða sýnt fram á hvernig heildarmat var framkvæmt. Kærandi tiltekur í þessu sambandi að þrír af fjórum fulltrúum í valnefnd hafi þekkt lítið sem ekkert til kæranda, hvað þá til starfa hans hjá lögreglu og ákæruvaldi. Kærandi byggir á því að valnefndin, sem einungis var skipuð einum lögreglumanni, hafi haft takmarkaða þekkingu og reynslu af rannsóknum […], og hafi skort nægilega sérþekkingu til að leggja mat á umsækjendur.
  4. Kærandi tiltekur að drjúgur tími af klukkustundarlöngu viðtali hans við valnefnd hafi farið í að spyrja hann ítrekaðra spurninga um hvaða ár hann hefði haft mannaforráð, en lítið hafi verið farið í aðra matsþætti. Kærandi telur útilokað að einstakir nefndarmenn, fyrir utan aðstoðaryfirlögregluþjón, hafi á þessum stutta tíma getað lagt fullnægjandi mat á alla hæfnisþætti umsækjenda, og þá sérstaklega huglæga þætti.
  5. Kærandi telur einsýnt að hann hafi orðið fyrir beinni mismunun á grundvelli aldurs þegar stjórnunarreynsla hans var talin einskis virði. Hér vísar kærandi til rökstuðnings kærða, dags. 10. nóvember 2023, þar sem fram hafi komið að kærandi hafi ekki uppfyllt þá hæfniskröfu að hafa reynslu af stjórnun og mannauðsmálum innan lögreglu. Kærandi bendir á að kærði hafi orðið tvísaga hvað þetta varðar. Í greinargerð kærða komi fram að fjöldi stiga umsækjanda hafi ráðið úrslitum um hvaða umsækjendur voru boðaðir í viðtal, sem sé í andstöðu við það sem fram hafi komið í upphaflegum rökstuðningi kærða.
  6. Kærandi byggir á því að ákvörðun hafi verið tekin um að útiloka hann fyrirfram með því að gera lítið úr farsælli stjórnunarreynslu hans og þekkingu á starfsmannamálum við mat á hæfniskröfu auglýsingar um farsæla reynslu af stjórnun og mannauðsmálum. Kærandi telur að kærði hafi við mat á kröfunni byggt á ógagnsæjum mælikvarða til að úrelda stjórnunarreynslu hans sökum aldurs. Þannig hafi kærandi verið, með ómálefnalegum og beinum hætti, útilokaður frá umsóknarferlinu á fyrsta stigi. Hann hafi því fengið aðra og verri meðferð en yngri umsækjendur þegar kom að mati á stjórnunarreynslu.
  7. Kærandi bendir á að skýrt hafi komið fram í rökstuðningi kærða fyrir skipun í embættið að kærandi hafi ekki komið til álita í stöðuna vegna aldurs þar sem hann tilheyrði ekki nýjum kynslóðum sem hefðu breyttar áherslur og breytta stjórnunarhætti. Kærandi bendir hér á að orðalag hæfniskröfu auglýsingarinnar um farsæla reynslu af stjórnun og mannauðsmálum innan lögreglu hafi ekki tiltekið að slík reynsla þyrfti að vera ný.
  8. Kærandi bendir á að ekkert hafi komið fram í umsóknarferlinu um að verðfella ætti stjórnunarreynslu. Hæfisskilyrðum hafi verið varpað fyrir róða á grundvelli sjónarmiða sem ekki komu fram í auglýsingu um embættið. Þannig hafi ekkert komið fram að um ekki yrði einungis litið til þess hversu löng stjórnunarreynsla umsækjenda væri heldur einnig hversu ný hún væri. Kærandi bendir á að staðreyndin sé sú að kærði hafi ákveðið við mat á stjórnunarreynslu að horfa til þess hvaða kynslóð umsækjendur tilheyrðu. Þannig var ákveðið að meta stjórnunarreynslu ekki í árum, eins og aðra reynslu í matstöflu, heldur út frá þeim hugmyndum að mikill munur væri á kynslóðum hvað varðar þekkingu og að þær gætu ekki tileinkað sér nýjustu strauma og stefnur t.d. í starfsmannamálum eða varðandi tækninýjungar.
  9. Kærandi bendir á að valnefnd hafi ekki útskýrt hvaða viðmið hafi verið lögð til grundvallar því að færa stjórnunarreynslu kæranda niður í mati. Þannig telur kærandi að ætla megi að mat kærða hafi stjórnast af geðþótta. Hins vegar hafi kærði fallist á þá afstöðu kæranda að reynsla hans af stjórnun innan lögreglu hefði mátt gefa fleiri stig í matstöflu án þess að útskýra með hvaða hætti. Þrátt fyrir það hafi kærði tekið fram að sökum þess að stjórnunarreynsla vó aðeins 15% í heildarmati hefði það ekki sem slíkt haft úrslitaáhrif á ákvörðun um hvaða umsækjendum var boðið í síðara viðtalið. Kærandi bendir á að þetta sé í andstöðu við það sem fram hafi komið í rökstuðningi kærða um að einungis tveir umsækjendur hefðu uppfyllt hæfniskröfu um að hafa reynslu af stjórnun og mannauðsmálum innan lögreglu og ákveðið hafi verið að bjóða þeim í viðtal. Ljóst sé að þessi þáttur hafi haft úrslitaáhrif á þá ákvörðun að kæranda var ekki boðið í annað viðtal.
  10. Kærandi bendir á að það sama eigi við um aðra matsþætti. Þannig hafi sá umsækjandi sem var skipaður í embættið fengið 100% skor í matinu sem bendi til þess að stigagjöf hafi verið ákveðin út frá þeim umsækjanda. Þannig hafi umsækjandinn staðið jafnfætis öðrum umsækjendum í matsþáttum þar sem aðrir hefðu í raun átt að fá fullt hús stiga en ekki sá sem skipaður var. Til nánari skýringar bendir kærandi á að í rökstuðningi hafi komið fram að þeir matsþættir sem lögreglustjóri lagði til grundvallar mati á umsækjendum auk þeirra sem voru tilgreindir í auglýsingu hefðu einkum verið yfirgripsmikil þekking og reynsla af starfsemi lögreglu, þekking og reynsla af rannsóknum sakamála ásamt þekkingu og reynslu af rannsóknum […]. Kærandi telur augljóst, þegar litið sé til umsóknargagna, að hann hafi ekki einungis mun meiri reynslu og þekkingu í þessum matsþáttum heldur jafnframt mun fjölbreyttari en sá umsækjandi sem skipaður var í embættið. Þrátt fyrir það hafi umsækjandinn verið í mati látinn standa jafnfætis kæranda eða framar honum.
  11. Kærandi vísar til þess að hann hafi haft lengstu stjórnunar- og starfsreynslu allra umsækjenda innan lögreglu og á mörgum sviðum. Kærandi bendir á að mat valnefndar á reynslu hans hafi einungis byggt á ólögmætu sjónarmiði um að kærandi tilheyri eldri kynslóð sem hafi ekki tileinkað sér breytta stjórnunarhætti á vinnumarkaði nútímans. Kærandi byggir á því að valnefnd hafi ekki kynnt sér nánar farsæla reynslu hans til dæmis með viðtali við uppgefinn umsagnaraðila, eða leitað upplýsinga sem voru í fórum kærða um störf kæranda.
  12. Kærandi andmælir þeim röksemdum kærða að við mat á reynslu hafi eldri reynsla minna vægi en ný og að það sé sjónarmið sem sé vel þekkt í mannauðsfræðum enda séu hraðar breytingar á vinnumarkaði. Kærandi bendir á að hvorki sé vísað til heimilda fyrir þessu og þá sé jafnframt fullyrt af hálfu kærða að þetta eigi ekki aðeins við um stjórnun heldur alla þætti í starfsemi stofnana. Kærandi bendir á að framangreint sé birtingarmynd af aldursfordómum sem hann hafi orðið fyrir í málinu, þ.e. að einungis nýjar kynslóðir geti tileinkað sér tækninýjungar.
  13. Kærandi bendir á að ekki hafi verið tekið tillit til reynslu hans af alls kyns verkefnastjórn innan lögreglu við mat á framangreindu. Þá bendir kærandi á að lögreglumenn hafi í gegnum tíðina horfið til annarra starfa innan og utan lögreglu í lengri eða skemmri tíma, svo sem hjá EUROPOL eða í friðargæslu án þess að fara með eiginleg mannaforráð, en sú reynsla hafi samt verið metin til tekna gagnvart æðstu stöðum. Þá telur kærandi að kærði hafi forðast að taka inn í heildarmat reynslu hans af núverandi starfi eða hvernig hún hefði getað hentað í embættinu.
  14. Þá bendir kærandi á að kærði hafi við mat á stjórnunarreynslu alfarið horft fram hjá sértæku 23 eininga námi kæranda fyrir stjórnendur hjá lögreglu á vegum Endurmenntunar Háskóla Íslands sem hann lauk árið […] sem og sérstöku 10 ECTS-eininga námi í stjórnun lögreglurannsókna við Háskólann á Akureyri […]−[…]. Það sama eigi við um ýmis námskeið sem kærandi lauk í meistaranámi í lögfræði sem lúta að mannauðsmálum, svo sem starfsmannarétti.
  15. Kærandi telur að hæfnismat kærða eins og það birtist í gögnum málsins leiði líkur að því að kæranda hafi verið mismunað á grundvelli aldurs, sbr. 1. mgr. 8. gr., sbr. 1. mgr. 1. gr. laga nr. 86/2018. Þá bendi gögn málsins eindregið til þess að meðferð málsins hafi farið gegn lögum nr. 86/2018, en það komi skýrlega fram í viðbótarrökstuðningi kærða, dags. 19. desember 2023, þar sem gefið sé í skyn að kærandi tilheyri ekki réttri kynslóð. Kærandi bendir á að kærði geti hvorki fært málefnaleg rök fyrir ákvörðun um skipun í embættið né sýnt fram á að aðrar ástæður en aldur hafi verið lagðar til grundvallar ákvörðun kærða. Þá telur kærandi að þeir aldursfordómar sem fram komi í viðbótarrökstuðningi hafi haft áhrif á alla málsmeðferð kærða. Kærandi telur að hér hafi verið um dæmigerða aldurshyggju að ræða, þannig að kærði hafi beitt staðalmyndum um eldri umsækjendur með því að nota ósanngjarnar og fordómafullar alhæfingar, skoðanir og forsendur sem gefnar væru um einstaklinga út frá aldri þeirra.
  16. Þá gerir kærandi ýmsar athugasemdir við málsmeðferð við skipun í embættið sem líta beri til. Kærði hafi þannig ekki einungis brotið gegn mannréttindum kæranda heldur einnig form- og efnisreglum stjórnsýsluréttar, t.d. jafnræðisreglunni, ásamt leiðbeiningar- og rannsóknarskyldu.
  17. Kærandi telur að ganga verði út frá því að valnefnd hafi tekið endanlega ákvörðun um það hverjum væri boðið að koma í síðara viðtal og kæmu því áfram til mats í skipunarferlinu. Slík ákvörðun hafi hins vegar heyrt undir lögreglustjóra sem veitingarvaldshafa, samkvæmt 4. mgr. 28. gr. lögreglulaga, nr. 90/1996. Það vald verði ekki framselt til ráðgefandi valnefndar án þess að lögreglustjóri legði sjálfstætt mat á umsækjendur, hvað þá til valnefndar sem í sitji utanaðkomandi ráðgjafar. Þá gerir kærandi athugasemdir við tilvísun kærða til verklagsreglna ríkislögreglustjóra, dags. 2. maí 2024, þar sem reglurnar hafi verið settar löngu eftir skipun í embættið og geti því ekki komið til álita.
  18. Kærandi bendir á að jafnvel þótt valnefndin hafi lagt mat sitt fyrir lögreglustjóra, sem kærandi telur í andstöðu við svör sem fram komu í upphaflegum rökstuðningi og svörum kærða í framhaldinu, sé ljóst að ákvörðun lögreglustjóra hafi í reynd grundvallast á álitsgerð valnefndarinnar einni saman og án þess að undirliggjandi gögn eða upplýsingar í öðru formi hafi komið til efnislegrar skoðunar. Lögreglustjóri hafi því ekki fullnægt rannsóknarskyldu sinni samkvæmt 10. gr. stjórnsýslulaga, nr. 37/1993.
  19. Kærandi vísar til þess að stjórnvaldi beri að skipa hæfasta umsækjandann á grundvelli faglegra sjónarmiða. Kærði hafi hins vegar, eftir að kærandi óskaði eftir rökstuðningi, ekki einungis komið með alls kyns eftiráskýringar, m.a. til að gera lítið úr hæfni umsækjanda í öðrum hæfnisþáttum, heldur einnig ítrekað reynt að halda frá kæranda gögnum og upplýsingum. Þannig hafi kærði neitað að afhenda kæranda gögn sem lágu til grundvallar matstöflu, þrátt fyrir ítrekaðar beiðnir hans þar um, á þeim grundvelli að um vinnuskjöl væri um að ræða. Þá hafi kærði ekki afhent eða strikað út upplýsingar úr umsóknargögnum fyrir afhendingu, þar með talið nöfn umsagnaraðila. Telur kærandi að þetta hafi líklegast verið gert í þeim tilgangi að koma í veg fyrir að hann gæti framkvæmt eigið mat og borið saman umsækjendur. Þannig hafi verið girt fyrir að kærandi gæti leitað til úrskurðaraðila. Kærði byggir á því að kærandi hafi brotið gegn 15. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 um aðgang aðila máls að gögnum og að synjun kærða á afhendingu gagna hafi ekki verið til samræmis við þær skyldur sem lagðar eru á stjórnvöld samkvæmt 19. og 22. gr. sömu laga.
  20. Kærandi bendir jafnframt á að kærði hafi búið til frekari gögn eftir að hann óskaði eftir rökstuðningi. Þannig hafi kærði afhent skjal undir yfirskriftinni mat á frammistöðu í viðtali fyrir hvern umsækjanda. Af svörum kærða megi skilja að skjölin hafi verið unnin upp úr minnispunktum valnefndarmanna, sem kærandi hafi ekki fengið aðgang að. Þá hafi kærði neitað að afhenda upphaflegt ritvinnsluskjal á rafrænu formi. Kærandi hafnar þessum skjölum, sem eru óundirrituð og ódagsett, alfarið enda séu þau útbúin eftir að hann óskaði eftir rökstuðningi, og augljóslega útbúin sem liður í eftiráskýringum kærða. Það sama á við um svokallaða ódagsetta ráðningarskýrslu. Kærandi telur fullvíst að skjalið hafi verið búið til eftir á vegna kæru í máli þessu. Ráðningarskýrslan hafi fyrst komið fyrir sjónir kæranda með afhentum gögnum kærða undir rekstri málsins. Kærandi bendir á að hann hafi ítrekað óskað eftir öllum gögnum málsins en ekki fengið ráðningarskýrsluna í hendur. Ráðningarskýrslan hafi því ekkert sönnunargildi um skipunarferlið og önnur málsatvik.
  21. Þá telur kærandi að frekari gögn um menntun þess umsækjanda sem skipaður var í embættið hafi bæst við málið eftir að kærandi óskaði rökstuðnings. Þannig hafi ekki verið jafnræði með umsækjendum og kærandi telur að frekari gagnaöflun bendi eindregið til þess að kærði hafi ætlað að renna styrkari stoðum undir umbeðinn rökstuðning. Þannig hafi kæranda verið afhent staðfesting um menntun þess sem skipaður var í embættið sem augljóslega hafi verið aflað eftir að ákvörðun um skipun var tekin. Þá telur kærandi að kærði hafi reynt að villa um fyrir kæranda í þessum samskiptum.
  22. Kærandi gerir athugasemdir við mat hæfnisnefndar á einstaka matsþáttum. Þannig telur kærandi að kerfisbundið hafi verið gert sem minnst úr hæfni hans í huglægum þáttum matsins. Kærandi telur verulega annmarka hafa verið í mati kærða á kæranda og þeim umsækjanda sem skipaður var í embættið. Kærði hafi þannig ofmetið þann umsækjanda í hlutrænum hæfniskröfum um menntun og reynslu í samanburði við kæranda. Því hafi verið öfugt farið í huglægum matsþáttum. Þar hafi kærandi verið vanmetinn í öllum hæfnisþáttum nema tveimur. Auk þess verði ekki annað séð en að viðmið í öllum hæfnisþáttum hafi verið löguð að þeim umsækjanda sem var skipaður var í embættið, enda hafi hann fengið fullt hús stiga í öllum þáttum.
  23. Kærandi telur að matsþættir og niðurstöður matsins hafi verið gerðir í þeim eina tilgangi að tryggja þeim sem var skipaður í embættið fullt hús stiga. Kærandi bendir á í þessu samhengi að misræmi hafi verið á milli hæfniskrafna auglýsingar og huglægra þátta. Sem dæmi hafi í auglýsingu um embættið verið gerð krafa um farsæla reynslu af stjórnun og mannauðsmálum en ekkert hafi komið fram um það hversu ný reynslan ætti að vera. Þá gerir kærandi athugasemd við það að hæfniskrafa um gott vald á íslensku og ensku og hæfni til að miðla upplýsingum í rituðu og töluðu máli hafi hvergi verið metin.
  24. Þá telur kærandi að algjörlega skorti gagnsæi varðandi huglæga matsþætti eins og þeir birtast í matstöflu, sem sé einungs tölustafir í excel-skjali. Kærandi bendir á að kærði hafi neitað að afhenda gögn að baki matinu og að hann hafi tekið saman upplýsingar eftir á eins og áður er rakið. Þá hafi ekki verið samhljómur á milli spurninga í viðtali og einkunna í matsskjali, eða samræmi á milli sömu spurninga og hæfniskrafna samkvæmt auglýsingu. Þannig megi sjá að einstaka spurningar í viðtali tilheyri mati á fleiri en einum matsþætti. Sem dæmi hafi krafa um álagsþol verið prófuð í þremur spurningum í viðtali og  sveigjanleiki einnig í þremur spurningum. Í matstöflu sé þetta tekið saman sem einn matsþáttur þ.e. sveigjanleiki og gott álagsþol.
  25. Kærandi gerir athugasemdir við niðurstöðu hæfnisnefndar í matsþætti um framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum og leiðtogahæfni. Kærandi bendir á að hann hafi fengið 2 stig af 5 í þessum matsþætti. Kærandi bendir á að óljóst sé á hvaða forsendum stigagjöf hans hafi verið byggð. Vísar hann til upplýsinga í umsagnargögnum um þátttöku hans í stéttarfélagsmálum innan lögreglu. Þá bendir kærandi á að á grundvelli viðtals hafi nefndarmenn ekki getað metið huglæga þætti eins og framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum.
  26. Kærandi gerir athugasemdir við niðurstöðu hæfnisnefndar í matsþætti um brennandi áhuga á umbótastarfi og að efla starfsfólk í störfum sínum, en kæranda voru þar gefin 3 stig af 5. Kærandi bendir á að hann hafi alla tíð talið sig hafa brennandi áhuga á umbótastarfi og að efla starfsfólk í störfum sínum en það komi skýrt fram í umsókn og umsóknargögnum. Kærandi telur jafnframt stigagjöf vera í engu samræmi við stigagjöf í matsþætti um reynslu og þekkingu af umbótastarfi, rýni og umbótum verkferla, þar sem kærandi hlaut 5 stig. Kærandi bendir á að illskiljanlegt sé hvernig mat á sama fyrirbæri geti skilað gjörólíkum niðurstöðum. Kærandi bendir á að af svari kærða, dags. 19. desember 2024, verði ekki annað ráðið en að huglægir matsþættir sem áhrif hafa á heildarmat í viðtali skipti í raun engu máli þegar upp er staðið. Þess í stað ráði geðþóttamat nefndarmanna, en kærði hafi þegar viðurkennt að mat á kæranda varðandi stjórnun innan lögreglu hafi verið rangt. Kærandi telur að niðurstaða í þessum matsþætti sé sama marki brennd.
  27. Kærandi gerir athugasemdir við stigagjöf hæfnisnefndar í matsþættinum sveigjanleiki og gott álagsþol, en kærandi hlaut þar 2 stig af 5. Kærandi telur það sérkennilegt að unnt sé að meta álagsþol á nokkrum mínútum, nema nefndarmenn hafi talið hann þollausan vegna aldurs, sem hann telur líklegustu skýringuna. Kærandi bendir á að það séu þekktir aldursfordómar að eldra fólk sé talið ósveigjanlegt. Kærandi telur aldursfordóma líklegustu skýringuna varðandi mat á þessum þætti.
  28. Kærandi gerir athugasemd við það að hann hafi ekki hlotið stig fyrir matsþáttinn framtíðarsýn/áskorun. Kærandi bendir á að í mati á frammistöðu hans í viðtali sé tekið fram að kærandi hafi ekki haft framtíðarsýn og hafi verið tíðrætt um vandamál en ekki lausnir. Kærandi telur að fyrrgreint sé í takt við staðalímyndir um eldra starfsfólk sem kærði beitir ítrekað í röksemdum sínum, þ.e. að kærandi tilheyri eldri kynslóð og að auki geti hann ekki tileinkað sér tækninýjungar. Kærandi telur að kærði hafi snúið svörum hans í viðtali, um að réttast væri að lagfæra ýmislegt sem betur mætti fara við rannsókn sakamála þar sem lögregla væri oft að endurtaka sömu mistökin, á hvolf sem sé ómálefnalegt. Kærandi hafi töluverða innsýn í þetta og hafi m.a. sinnt skoðun þessa á tímabili sem hluta gæðaeftirlits á vegum yfirlögregluþjóns.
  29. Kærandi bendir á að framtíðarsýn hafi ekki verið meðal hæfniskrafna auglýsingar og mótmælir staðhæfingum kærða þar um. Þrátt fyrir það hafi þessi þáttur hlotið töluvert vægi í huglægu mati. Þá bendir kærandi á að einungis sé fjallað um framtíðarsýn í umfjöllun um hann, en ekki í umfjöllun um aðra umsækjendur eða svörum þeirra í viðtali. Hvergi hafi verið vikið að framtíðarsýn í stöðluðum viðtalsspurningum sem kærði leggur fram í málinu. Kærandi tekur fram að þetta veki miklar efasemdir hans um mat kærða hvað þetta varðar enda það í ósamræmi við fullyrðingu kærða um að allir umsækjendur hafi verið spurðir sömu spurninga í viðtali.
  30. Kærandi bendir á að jafnvel þótt aðrir umsækjendur hafi verið spurðir um framtíðarsýn sé augljóst að ekki hafi verið jafnræði með umsækjendum og erfiðleikum háð fyrir umsækjendur sem störfuðu ekki í deildinni að svara spurningunni af fullu innsæi. Sá umsækjandi sem starfaði í deildinni og var skipaður í stöðuna hafi verið starfandi í deildinni og tekið þátt í stefnumótunarvinnu á vettvangi kærða.

 

SJÓNARMIÐ KÆRÐA

  1. Kærði hafnar því alfarið að ólögmætar eða ómálefnalegar ástæður varðandi aldur eða önnur atriði hafi legið til grund­vallar ákvörðun kærða við skipun í embætti aðstoðaryfirlögregluþjóns og að kæranda hafi verið mismunað á grundvelli aldurs, sbr. 1. mgr. 8. gr. laga nr. 86/2018, um jafna meðferð á vinnumarkaði.
  2. Við heildarmat og samanburð á milli umsækjenda hafi reynsla og persónubundnir þættir verið metnir efnislega og horft til þess hvernig þeir þættir væru uppfylltir fyrir embættið. Heildstæður og efnislegur samanburður á umsækjendum hafi farið fram með tilliti til væntanlegrar frammistöðu þeirra í starfinu.
  3. Sá umsækjandi sem var skipaður hafi verið talinn hæfasti umsækjandinn eftir heildarmat og samanburð á hæfni, þekkingu og reynslu umsækjenda, byggt á öllum gögnum málsins og þeim hæfniþáttum sem lagðir voru til grundvallar. Hafi helst verið litið til þess að sá sem var skipaður hefði fræðilega sterkan bakgrunn auk þess sem reynsla hans af rannsóknum  […] og stjórnun innan […] myndi nýtast honum vel í starfi. Þá hafi viðkomandi komið mjög vel fyrir bæði í kynningu og viðtali og frammistaða hans hafi borið merki um framúrskarandi samskiptahæfni, lausnamiðaða hugsun og mikla leiðtogahæfileika.
  4. Kærði bendir á að við meðferð málsins hafi verið farið eftir þeim lögum og reglum sem gilda um ráðningar hjá hinu opinbera auk leiðbeininga Kjara- og mannauðssýslunnar sem birtar séu á mannauðstorgi ríkisins. Til upplýsinga megi benda á verklagsreglur Ríkislögreglustjóra, enda þótt þær hafi tekið gildi eftir að skipun í embættið var um garð gengin.
  5. Kærði bendir á að samkvæmt almennum grundvallarreglum stjórnsýsluréttar um mat á hæfni umsækjenda um opinber störf verði að ljá veitingarvaldshafa töluvert svigrúm við mat á vægi einstakra sjónarmiða við samanburð á milli umsækjenda og hvernig þeir falli að slíkum sjónarmiðum. Veitingarvaldshafa beri þó að velja þann umsækjanda sem sé talinn hæfastur á grundvelli málefnalegra sjónarmiða. Meðal annars í ljósi þeirrar skyldu hafi umboðsmaður Alþingis lagt til grund­vallar að veitingarvaldshafi verði að sýna fram á að heildstæður samanburður á umsækj­endum hafi farið fram þar sem megináhersla hafi verið lögð á atriði sem geti varpað ljósi á væntanlega frammistöðu umsækjenda í starfinu út frá þeim málefnalegu sjónarmiðum sem lögð hafi verið til grundvallar við val á umsækjendum af hálfu stjórnvaldsins.
  6. Kærði tekur fram að það sé skýrt að lögreglustjóri hafi verið ábyrgðaraðili og sé sá sem ræður eða skipar í starf hjá kærða. Í því felist ekki skylda til þess að vera umsjónarmaður umsóknarferils en það hlutverk sé í höndum mannauðsstjóra kærða. Lögreglustjóri ákvað að setja saman ráðgefandi valnefnd vegna skipunar í embættið sem meta átti hæfni umsækjenda út frá þeim þáttum sem tilgreindir voru í auglýsingu. Í nefndinni sátu mannauðsstjóri kærða, sviðsstjóri rannsóknarsviðs (en staðgengill hans í fyrri viðtölum) og ráðgjafi frá ráðgjafarfyrirtæki. Auk þess hafi mannauðssérfræðingur sem starfar hjá kærða verið valnefnd til aðstoðar.
  7. Kærði bendir á að það sé þekkt og viðurkennd aðferð að stofnanir geti fengið utanaðkomandi ráðgjöf í slíkum málum, en skýrt sé að sá aðili ber hvorki ábyrgð á ákvörðunum sem teknar eru í ferlinu né lokaniðurstöðu, heldur sé það lögreglustjóri. Kærði mótmælir þeim staðhæfingum að lögreglustjóri kærða hafi einungis byggt niðurstöðu sína á skýrslu valnefndar. Lögreglustjóri hafi að sjálfsögðu haft öll umsóknargögn og var ákvörðun um skipun byggð á heildstæðum samanburði á umsækjendum, með áherslu á atriði sem talin voru geta varpað ljósi á væntanlega frammistöðu í embættinu út frá þeim málefnalegu sjónarmiðum sem lögð voru til grundvallar í öllu ferlinu.
  8. Kærði vísar til þess að eftir viðtöl og að virtum öllum gögnum málsins hafi það verið mat valnefndar að tveir umsækjendur stæðu öðrum umsækjendum framar samkvæmt matsblaði sem liggi fyrir í málinu. Hafi það mat verið lagt fyrir lögreglustjóra. Voru þessir tveir umsækjendur boðaðir til seinna viðtals auk þess sem aflað var umsagna um þá. Kærði vísar jafnframt til meðfylgjandi ráðningarskýrslu.
  9. Kærði hafnar því að ekki hafi verið næg sérþekking til staðar í valnefndinni þar sem æðsti yfirmaður og sviðsstjóri rannsóknarsviðs hafi setið í valnefnd. Kærði bendir hér á verklagsreglur Ríkislögreglustjóra þar sem hlutverk valnefnda sé rakið auk aðkomu ráðningarráðgjafa.
  10. Kærði byggir á því að hæfni umsækjenda hafi verið metin á grundvelli umsóknargagna, hæfisskilyrða í auglýsingu og frammistöðu umsækjenda í viðtölum. Notaður hafi verið staðlaður viðtalsrammi og allir umsækjendur hafi verið spurðir sömu spurninga í viðtali sem ætlað var að kanna nánar hversu vel umsækjendur uppfylltu ofangreinda hæfnisþætti. Allir umsækjendur hafi fengið jöfn tækifæri til að gera grein fyrir hæfni sinni þegar kom að þessum þáttum. Kærði tekur fram að fyrir hafi legið fullnægjandi og nauðsynlegar upplýsingar til að leggja mat á hæfni umsækjenda og sé staðhæfingum kæranda um annað mótmælt.
  11. Kærði hafnar því að aldur kæranda hafi legið til grundvallar ákvörðun um skipun í embættið. Kærði bendir á að kærandi sé fæddur árið […] en þeir tveir umsækjendur sem boðaðir voru til seinna viðtals hafi verið fæddir […] og […] og því sé ljóst að aldur eða kynslóð umsækjenda hafi ekki haft vægi í skipunarferlinu. Kærði bendir á að stjórnendahópur hans sé fjölbreyttur og embættið ráði til starfa einstaklinga á öllum aldri. Þannig hafi kærði nýlega skipað karl fæddan […] og konu fædda árið […] í embætti aðstoðaryfirlögregluþjóns.
  12. Kærði tekur undir með kæranda að staðhæfing í rökstuðningi hans til kæranda um að einungis tveir umsækjendur hefðu haft reynslu af stjórnun innan lögreglu sé röng. Kærði fellst jafnframt á þá afstöðu kæranda að reynsla hans af stjórnun innan lögreglu hefði mátt vega meira. Þannig hefði mátt veita kæranda fleiri stig vegna stjórnunarreynslu. Þótt kærandi hefði fengið fullt hús stiga fyrir þann þátt hefði það ekki leitt til þess að honum hefði verið boðið í næsta viðtal, eða það breytt röðun umsækjenda. Matsþátturinn var skilgreindur sem 15% af heildarmati og kærði tekur fram að hann hefði ekki sem slíkur haft úrslitaáhrif á það hvaða umsækjendur væru boðaðir í annað viðtal.
  13. Kærði bendir á að í frekari skýringum hans til kæranda, dags. 19. desember 2023, hafi verið tekið fram að eldri stjórnunarreynsla hafi minna vægi en ný. Kærði bendir á að það sjónarmið sé vel þekkt í mannauðsfræðum enda séu hraðar breytingar á vinnumarkaði. Á það ekki aðeins við um stjórnun heldur alla þætti í starfsemi stofnana og/eða fyrirtækja m.a. þegar nýjar kynslóðir bætast við á vinnumarkaði sem og  tækninýjungar o.s.frv. Með orðalagi í rökstuðningi hafi ekki verið vísað til kynslóðar eða aldurs kæranda heldur hafi verið vísað til breytinga á vinnumarkaði og að það sé málefnalegt að meta nýrri reynslu meiri en eldri. Kærða þykir leitt að orðalag í viðbótarrökstuðningi hafi valdið þeim misskilningi að kærandi hafi litið svo á að vísað hafi verið til aldurs eða kynslóðar hans, en það hafi engin áhrif haft á niðurstöðuna.
  14. Kærði tekur fram að þeir tveir umsækjendur sem boðaðir voru til síðara viðtals hafi báðir haft haldbæra reynslu af stjórnun innan lögreglu og reynslu og þekkingu af umbótastarfi. Í viðtali hafi þeir sýnt fram á þá persónubundnu hæfniþætti sem tilgreindir voru í auglýsingu um starfið, og þá helst framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum og leiðtogahæfni, áhuga á umbótastarfi, sveigjanleika og gott álagsþol auk þess sem þeir hafi haft skýra framtíðarsýn um starfsemi viðkomandi deildar.
  15. Kærði hafnar því að valnefnd hafi gert kerfisbundið lítið úr hæfni kæranda í huglægu þáttunum samkvæmt auglýsingu þ.e. framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum og leiðtogahæfileikum, sjálfstæði, brennandi áhuga á umbótastarfi og að efla starfsfólk í störfum sínum, sveigjanleika og góðu álagsþoli, skipulagshæfileikum og nákvæmni í vinnubrögðum og framtíðarsýn. Kærði vísar til þess að kærandi hafi staðið sig ágætlega í viðtali en talsvert hafi þó vantað upp á svör hans við þeim spurningum sem meta áttu huglæga þætti. Í viðtali hafi kæranda verið tíðrætt um áskoranir sem hann hefði upplifað í starfi hjá kærða, en minna hafi komið fram um hugsanlegar lausnir.
  16. Kærði bendir á að fyrir mistök hafi beiðni kæranda um rökstuðning vegna ákvörðunar um skipun í embættið ekki verið framsend á réttan stað innan kærða. Þegar það hafi verið ljóst hafi verið brugðist við og kæranda sendur umbeðinn rökstuðningur. Kærða þykir það miður en mistökin hafi verið leiðrétt við fyrsta tækifæri.
  17. Kærði telur að afgreiðsla hans á beiðni kæranda um aðgang að gögnum málsins hafi verið til samræmis við ákvæði stjórnsýslulaga, nr. 37/1993. Kæranda hafi verið afhentir minnispunktar úr viðtölum við umsækjendur auk matstöflu sem innihélt endanlegt mat umsækjenda út frá hæfniþáttum sem tilgreindir voru í auglýsingu. Kærði hafi hins vegar synjað kærða um aðgang að handskrifuðum punktum nefndarmanna, á þeim grundvelli að um vinnuskjöl væri að ræða sem rituð hafi verið til eigin afnota kærða, sbr. 16. gr. stjórnsýslulaga, nr. 37/1993. Kærði bendir á að þótt ákvæðið sé undanþága frá almennum upplýsingarétti aðila stjórnsýslumáls, sem túlka beri þröngt, byggist það einkum á því sjónarmiði að stjórnvöld hafi svigrúm til að undirbúa ákvörðun í máli. Þeim sé þá ekki skylt að afhenda aðila máls til að mynda hugleiðingar um efni máls, samskipti innan stjórnvaldsins um mögulega ákvörðun, eða drög að niðurstöðu og þá með hliðsjón af því að efni slíkra skjala kann að breytast.
  18. Kærði tekur fram að við skipunarferlið hafi mat á frammistöðu verið unnið þannig að matsmenn punktuðu hjá sér hugleiðingar sínar meðan á viðtali stóð, en að því loknu hafi þeir farið allir saman yfir matstöflu og sammælst um stigagjöf fyrir hvern og einn umsækjenda. Að viðtölum loknum hafi einnig verið ritaðir minnispunktar um frammistöðu í viðtali sem voru samantekt á umræðum nefndarmanna, sem kæranda hafi verið afhentir. Kærði bendir á í þessu sambandi að matstafla hafi að geyma endanlega niðurstöðu úr viðtali og minnispunktar um frammistöðu umsækjenda hafi að geyma það sem lá til grundvallar. Handskrifaðir punktar úr viðtölum hafi einungis innihaldið hugleiðingar matsmanna sem kærði telur að undanþegnir séu afhendingarskyldu.

 

NIÐURSTAÐA

  1. Mál þetta snýr að því hvort kærði hafi brotið gegn ákvæðum 1. mgr. 8. gr., sbr. 1. mgr. 1. gr. laga nr. 86/2018, um jafna meðferð á vinnumarkaði, með skipun í embætti aðstoðaryfirlögregluþjóns […] við rannsóknarsvið embættisins árið 2023. Nánar tiltekið snýr málið að því hvort sú ákvörðun að gefa kæranda ekki kost á því að koma til síðara viðtals við valnefnd, sem útilokaði hann frá skipunarferlinu, hafi falið í sér mismunun á grundvelli aldurs.
  2. Samkvæmt 1. gr. laga nr. 151/2020, um stjórnsýslu jafnréttismála, gilda lögin um stjórnsýslu á sviði jafnréttismála á því sviði sem löggjöf um jafnréttismál tekur til, þ.e. lög um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna, lög um jafna meðferð utan vinnumarkaðar og lög um jafna meðferð á vinnumarkaði. Tekið er fram að lögin gildi m.a. um störf kærunefndar jafnréttismála. Samkvæmt 1. mgr. 8. gr. laganna tekur kærunefnd jafnréttismála til meðferðar kærur sem til hennar er beint eftir því sem mælt er fyrir um í lögum um jafnréttismál, sbr. 1. gr., og kveður upp skriflegan úrskurð um hvort ákvæði þeirra laga hafi verið brotin. Jafnframt er tekið fram að komist kærunefndin að þeirri niðurstöðu að brotið hafi verið gegn lögunum sé henni heimilt í úrskurði sínum að beina fyrirmælum um tilteknar úrbætur til hlutaðeigandi aðila.
  3. Samkvæmt 1. mgr. 1. gr. laga nr. 86/2018 gilda lögin um jafna meðferð einstaklinga á vinnumarkaði óháð kynþætti, þjóðernisuppruna, trú, lífsskoðun, fötlun, skertri starfsgetu, aldri, kynhneigð, kynvitund, kyneinkennum eða kyntjáningu, svo sem hvað varðar aðgengi að störfum, sjálfstæðri atvinnustarfsemi eða starfsgreinum, þ.m.t. við ráðningar og framgang í starfi, sbr. a-lið ákvæðisins. Í 2. gr. laga nr. 86/2018 kemur fram að markmið laganna sé að vinna gegn mismunun og koma á og viðhalda jafnri meðferð einstaklinga á vinnumarkaði óháð þeim þáttum sem um geti í 1. mgr. 1. gr.
  4. Í 1. mgr. 7. gr. laga nr. 86/2018 kemur fram að hvers kyns mismunun á vinnumarkaði, hvort heldur bein eða óbein, vegna einhverra þeirra þátta sem um geti í 1. mgr. 1. gr. sé óheimil. Þar segir einnig að fyrirmæli um mismunun vegna þeirra þátta teljist einnig mismunun samkvæmt lögunum. Samkvæmt 1. mgr. 8. gr. er atvinnurekendum óheimilt að mis­muna umsækjendum um starf vegna einhverra þeirra þátta sem um getur í 1. mgr. 1. gr., sbr. þó 2. mgr. 1. gr., 10., 11. og 12. gr. Samkvæmt sönnunarreglu í 15. gr. laganna kemur það í hlut þess sem telur á sér brotið að leiða líkur að því að honum hafi verið mismunað á grundvelli aldurs. Takist sú sönnun ber atvinnu­rekandanum að sýna fram á að aðrar ástæður en aldur hafi legið til grundvallar ákvörðun hans. Er því um sams konar sönnunarreglu að ræða og í 4. mgr. 19. gr. laga nr. 150/2020. Kemur það því í hlut kæranda að færa fram staðreyndir eða önnur gögn og upplýsingar sem leiða líkur að því að aldur hafi haft áhrif á ákvörðun kærða að útiloka hann frá ráðningarferlinu.
  5. Við mat á því hvort kæranda hafi verið mismunað á grundvelli einhverra þeirra þátta sem raktir eru í 1. mgr. 1. gr. laga nr. 86/2018, lítur nefndin til samsvarandi sjónarmiða og lögfest eru í 5. mgr. 19. gr. laga nr. 150/2020, um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna. Við það mat er því tekið mið af menntun, starfsreynslu, sérþekkingu eða öðrum sérstökum hæfileikum sem krafa er gerð um í viðkomandi starfi samkvæmt lögum eða reglugerðum eða telja verður annars að komi að gagni í starfinu. Árétta ber að framangreint felur ekki í sér sjálfstæða heimild fyrir nefndina til að byggja á öðrum sjónarmiðum en kærði hefur sjálfur lagt til grundvallar og ekki heldur heimild til að endurmeta innbyrðis vægi þessara sjónarmiða með sjálfstæðum hætti, svo lengi sem þau voru málefnaleg og innan þess svigrúms sem kærði hefur, sbr. athugasemdir við 19. gr. frumvarps þess sem varð að lögum nr. 150/2020. Þá fellur það ekki undir valdsvið kærunefndarinnar að endurskoða mat kærða á því hvaða umsækjandi fellur best að þeim sjónarmiðum sem lögð var áhersla á við ráðninguna nema draga megi þá ályktun af gögnum málsins að matið hafi ekki verið forsvaranlegt eða byggt á málefnalegum sjónarmiðum.
  6. Í auglýsingu um embætti aðstoðaryfirlögregluþjóns á rannsóknarsviði kærða kom fram að leitað væri eftir metnaðarfullum og framsýnum leiðtoga í embættið. Verksvið og ábyrgð aðstoðaryfirlögregluþjóns væru tilgreind í 6. gr. reglugerðar nr. 1051/2006, um starfsstig innan lögreglunnar, þ. á m. stjórn og ábyrgð á deild og tilteknum verkefnum. Í auglýsingu greindi að í embættinu fælist meðal annars stjórn og ábyrgð á starfsemi rannsóknardeildar  […], að tryggja að unnið væri í samræmi við stefnu, áherslur og markmið kærða, að leiða og koma að umbótastarfi innan kærða, stýra framkvæmd rannsókna og annarra verkefna á sviði deildar í samráði við yfirlögregluþjón, hafa umsjón með tilteknum verkefnum, þ.m.t. rannsókn mála og aðstoð við saksókn, eftirlit með því að reglum og fyrirmælum væri fylgt og rekstur væri innan fjárheimilda, ábyrgð á starfsmannamálum og fylgjast með þróun og nýjungum á sviði rannsókna og taka þátt í að móta verklag, verkferla og stefnumótun.
  7. Menntunar- og hæfniskröfur voru að umsækjendur skyldu uppfylla skilyrði 4. mgr. 28. gr. lögreglulaga, nr. 90/1996, fimm ára starfsreynsla sem lögreglumaður, yfirgripsmikil þekking og reynsla af starfsemi lögreglu, þekking og reynsla af rannsóknum sakamála, þekking og reynsla af rannsóknum […], farsæl reynsla af stjórnun og mannauðsmálum innan lögreglu, reynsla og þekking af umbótastarfi, rýni og umbótum verkferla, framúrskarandi hæfni i mannlegum samskiptum og leiðtogahæfni, sjálfstæði í starfi, sveigjanleiki og gott álagsþol, brennandi áhugi á umbótastarfi og að efla starfsfólk í störfum sínum, skipulagshæfileikar og nákvæmni í vinnubrögðum og að síðustu gott vald á íslensku og ensku og hæfni til að miðla upplýsingum í rituðu og töluðu máli.
  8. Fyrir liggur að sett var á fót ráðgefandi valnefnd vegna skipunar í embættið. Í valnefndinni áttu sæti mannauðsstjóri og mannauðsráðgjafi sem störfuðu hjá kærða, mannauðsráðgjafi hjá utanaðkomandi ráðgjafarfyrirtæki, auk sviðsstjóra rannsóknarsviðs kærða, en í fjarveru hans sat staðgengill hans fyrri viðtöl við umsækjendur. Valnefnd kallaði alla umsækjendur til viðtals. Í viðtölum við umsækjendur var notast við fyrirfram staðlaðar spurningar sem tengdar voru við hæfniskröfur auglýsingar og matsblað.
  9. Í gögnum málsins liggur fyrir matsblað valnefndar. Af því og svörum kærða má ráða að umsækjendur hafi verið metnir á grundvelli tólf matsþátta sem samsvöruðu menntunar- og hæfniskröfum auglýsingar að undanskilinni kröfu um gott vald á íslensku og ensku og hæfni til að miðla upplýsingum í rituðu og töluðu máli. Auk þess voru umsækjendum gefin stig fyrir heildarmat í viðtali og fyrir framtíðarsýn/áskorun. Gátu umsækjendur fengið mest 5 stig fyrir hvern matsþátt, en matsþættir höfðu mismunandi vægi.
  10. Matsþættir um menntun og þekking og reynsla af rannsókn sakamála höfðu 5% vægi hvor fyrir sig, yfirgripsmikil þekking og reynsla af starfsemi lögreglu og reynsla og þekking af umbótastarfi, rýni og umbótum verkferla gilti hvor 10%, farsæl reynsla af stjórnun og mannauðsmálum innan lögreglu gilti 15% og þekking og reynsla af rannsóknum […] gilti 20%. Aðrir hæfnisþættir sem kannaðir voru í viðtali, auk framtíðarsýnar, áskorunar og heildarmats fyrir viðtal giltu samtals 35%.
  11. Á matsblaðinu er jafnframt að finna skýringar fyrir stigagjöf í einstaka þáttum. Af þeim skýringum verður ráðið að lægst væri gefið 1 stig en hæst 5 stig fyrir hvern þátt. Í hæfnisþáttum um reynslu og þekkingu, að undanskilinni menntun, kom fram að 1 stig væri gefið fyrir litla sem enga reynslu eða þekkingu. Í persónubundnum hæfnisþáttum sem metnir voru í viðtali var 1 stig gefið fyrir lélega frammistöðu/lítinn áhuga. Af svörum kærða í málinu verður ráðið að mat hafi farið fram þannig að nefndarmenn hafi punktað hjá sér hugleiðingar meðan á viðtali stóð, en að viðtali loknu farið saman yfir matsblað og sammælst um stigagjöf fyrir hvern og einn matsþátt. Stig hafi síðan verið lögð saman og reiknuð út vegin heildarstig.
  12. Sá umsækjandi sem skipaður var í embættið var hæstur með 5 vegin heildarstig, sem samsvaraði 100%, en kærandi, sem var fjórði, hlaut 3,5 vegin heildarstig, sem samsvaraði 67%. Hlaut kærandi 5 stig fyrir matsþætti um menntun, þekkingu og reynslu af störfum og rannsóknum innan lögreglu og rýni og umbótum verkferla, en 1 stig fyrir matsþátt um farsæla reynslu af stjórnun og mannauðsmálum innan lögreglu. Í hæfnisþáttum sem kannaðir voru í viðtali hlaut kærandi 5 stig fyrir sjálfstæði og skipulagshæfileika og nákvæmni í vinnubrögðum, 2 stig fyrir framúrskarandi hæfni í samskiptum og leiðtogahæfileika og sveigjanleika og gott álagsþol og 3 stig fyrir brennandi áhuga á umbótastarfi og að efla starfsfólk í störfum sínum. Kærandi hlaut ekkert stig fyrir framtíðarsýn og 2 stig fyrir heildarmat viðtals.
  13. Að framan hefur verið rakið að í rökstuðningi kærða, dags. 10. nóvember 2023, hafi komið fram að einungis tveir umsækjendur af fimm hafi uppfyllt þá hæfniskröfu að hafa reynslu af stjórnun og mannauðsmálum innan lögreglu og því hafi verið ákveðið að bjóða þeim til síðara viðtals. Má sjá af matsblaði að þessir tveir umsækjendur fengu annars vegar 5 stig og hins vegar 3 stig fyrir matsþáttinn. Tveir umsækjendur, þar á meðal kærandi, fengu hvor 1 stig hér en fimmti umsækjandinn ekkert stig.
  14. Í greinargerð kærða til nefndarinnar kemur fram, svo sem að framan er rakið, að fyrrgreind staðhæfing í rökstuðningi, um að ákvörðun um að bjóða tveimur umsækjendum til síðara viðtals, hafi byggt á þeirri forsendu að þeir einir uppfylltu hæfniskröfu um stjórnun, hafi verið röng. Ákvörðunin hafi verið byggð á mati valnefndar að veita tveimur stigahæstu umsækjendunum kost á að koma til seinna viðtals. Er þetta í samræmi við það sem fram kemur í ódagsettri ráðningarskýrslu sem kærði hefur lagt fram í málinu.
  15. Í greinargerð sinni fellst kærði á þau sjónarmið kæranda að reynsla hans í þessum þætti hefði mátt vega meira og að því hefði verið rétt að veita honum fleiri stig fyrir þennan þátt. Kærði tekur fram að þetta hafi hins vegar ekki verið ráðandi í því hvaða umsækjendum hafi verið boðið til viðtals og jafnvel þótt kærandi hefði fengið 5 sig í mati hefði það ekki haft úrslitaáhrif á vegin heildarstig sem lágu til grundvallar vali kærða á hvaða umsækjendur kæmust áfram í umsóknarferlinu.
  16. Fyrir liggur að kærandi spurðist sérstaklega fyrir um forsendur mats á stjórnunarreynslu í tölvupósti til kærða, dags. 21. nóvember 2023, og hvort að mat á reynslu kæranda væru mistök. Í svörum kærða til kæranda, dags. 19. desember 2023, greindi að við mat á hæfni hefði kærði talið málefnalegt að líta annars vegar til þess hversu löng reynsla væri og hins vegar hversu ný hún væri. Var tekið fram að miklar og hraðar breytingar væru á vinnumarkaði í dag og með nýjum kynslóðum kæmu nýjar áherslur sem kölluðu á nýja stjórnunarhætti. Stjórnunarreynsla kæranda hefði verið metin vera 7−8 ár, en þar sem hún væri rúmlega 15 ára gömul væri hún ekki metin til jafns við nýja reynslu. Af þessu verður ekki annað ráðið en að kærði hafi á þessum tíma talið að mat kæranda væri ekki rangt eða haldið annmörkum.
  17. Svo sem rakið hefur verið að framan telur kærandi að mat hans á þessum lið hafi falið í sér mismunun á grundvelli aldurs, en kærði hafnar því að kæranda hafi verið mismunað við meðferð málsins á þeim grundvelli.
  18. Að mati kærunefndar gætir ósamræmis á milli fyrirliggjandi gagna og svara kærða um hvaða forsendur voru lagðar til grundvallar við mat á hæfniskröfu um farsæla reynslu af stjórnun og mannauðsmálum innan lögreglu. Af auglýsingu verður ekki annað ráðið en að hæfniskrafan hafi verið ófrávíkjanleg. Af stigagjöf í matsblaði eftir fyrri viðtöl, að teknu tilliti til þess að matsblaðið sjálft hafði að geyma skýringar um mat á kröfunni, verður ekki betur séð en að kærði hafi metið það svo að kærandi og tveir aðrir umsækjendur hefðu litla sem enga farsæla reynslu af stjórnun og mannauðsmálum innan lögreglu. Að þessu athuguðu verður ekki annað séð en að niðurstaða matsblaðsins hafi verið í samræmi við það sem fram kom í upphaflegum rökstuðningi kærða til kæranda um að ákvörðun um boðun til síðara viðtals hafi byggst á því að tveir af fimm umsækjendum hefðu ekki verið taldir uppfylla fyrrgreinda hæfniskröfu. Að mati kærunefndar jafnréttismála er málatilbúnaður kærða í greinargerð um að allir umsækjendur hafi verið taldir uppfylla allar hæfniskröfur auglýsingar í ósamræmi við stigagjöf matsblaðsins og rökstuðning.
  19. Eins og rakið hefur verið að framan hefur kærði gengist við því í greinargerð sinni að mat á kæranda í fyrrnefndum hæfnisþætti hafi verið rangt. Þá verður ekki annað séð af gögnum málsins, og þá einkum áðurnefndum svörum kærða til kæranda, dags. 21. desember 2023, að við mat á þessum þætti hafi verið litið annars vegar til árafjölda stjórnunarreynslu og hins vegar hversu nýleg reynslan væri.
  20. Að mati kærunefndar er ekki ómálefnalegt við mat á því hvort tiltekin starfsreynsla falli að hæfniskröfu að meðal annars sé litið til árafjölda eða hversu nýleg reynsla er. Af gögnum málsins verður hins vegar ekki annað ráðið en að mat kærða á umsækjendum hafi byggst eingöngu á þessum tveimur þáttum og þá öðru fremur á því hversu nýleg reynslan væri. Ekki verður séð af gögnum málsins hvernig kærði lagði mat á það hvort slík reynsla væri farsæl sem var sérstaklega tekið fram í auglýsingu. Þá verður ekki séð hvernig inntak reynslu kæranda var metið og þá hvernig það félli að hæfniskröfu auglýsingar eða nýttist í embætti aðstoðaryfirlögregluþjóns. Þá verður ekki fram hjá því litið að kærði vísaði sérstaklega í svörum til mismunandi kynslóða á vinnumarkaði, en aðila greinir á um það hvort með því hafi verið vísað til aldurs kæranda.
  21. Að öllu þessu virtu telst mat kærða á þessari kröfu hvorki málefnalegt né forsvaranlegt. Verður því fallist á með kæranda að hann hafi leitt líkur að því að aldur hafi haft áhrif á þá ákvörðun að bjóða honum ekki til síðara viðtals um starfið og þar með hafi hann verið útilokaður frá umsóknarferlinu, sbr. 15. gr. laga nr. 86/2018. Kemur því í hlut kærða að sýna fram á að aðrar ástæður en aldur hafi legið til grundvallar þeirri ákvörðun hans.
  22. Að framan er rakið að kærði byggir á því að fyrrgreindir annmarkar hafi ekki haft úrslitaáhrif á niðurstöðu um hvaða umsækjendum væri boðið til síðara viðtals við valnefnd. Hafi sú ákvörðun byggst á heildarmati umsóknargagna og frammistöðu í viðtali með hliðsjón af hæfniskröfum auglýsingar og áherslu lögreglustjóra. Vísar kærði til niðurstöðu á matsblaði þessu til stuðnings sem og til áðurnefndrar ráðningarskýrslu.
  23. Vald til töku ákvörðunar um veitingu embættis aðstoðaryfirlögregluþjóns hvíldi hjá lögreglustjóra kærða samkvæmt 4. mgr. 28. gr. lögreglulaga, nr. 90/1996. Af almennum reglum leiðir að stjórnvöld hafa svigrúm innan marka laga hvernig umsóknarferli er hagað, þar með talið að setja á fót valnefnd sem falið er að annast undirbúning skipunar. Ekki verður fallist á með kæranda að lög standi því í vegi að slík nefnd taki ákvarðanir um málsmeðferð sem tengjast störfum hennar, þar með talið hvaða umsækjendur séu boðaðir til viðtals. Eftir sem áður hvílir ábyrgð á störfum og ákvörðunum slíkrar nefndar endanlega hjá viðkomandi veitingarvaldshafa og þá að málsmeðferð hennar sé í samræmi við lög, þar með talið að mál sé nægilega rannsakað samkvæmt 10. gr. stjórnsýslulaga, nr. 37/1993.
  24. Þegar niðurstaða valnefndar byggist á mati á umsóknargögnum eða frammistöðu og svörum í viðtali verður því valnefnd að greina frá niðurstöðum sínum og þá á hvaða forsendum hún byggir. Að því leyti sem slíkt mat byggir á svörum umsækjenda í viðtali, sem veitingavaldshafi sat ekki, verður því að gæta þess að megininntak svara umsækjenda við spurningum sé skráð niður og þá jafnframt þau atriði sem skipta máli fyrir málsmeðferð sbr. 1. mgr. 27. gr. upplýsingalaga, nr. 140/2012. Sé það ekki gert er vandséð hvernig veitingarvaldshafi uppfylli þá skyldu sem rannsóknarregla stjórnsýslulaga leggur á herðar honum.
  25. Í gögnum málsins liggja fyrir minnisblöð fyrir hvern umsækjanda um mat á frammistöðu í fyrra viðtali. Minnisblað um viðtal kæranda hefur að geyma samantekt valnefndar um frammistöðu í viðtali auk þess að greina frá svörum kæranda í viðtalinu. Ekki verður hins vegar séð að svör kæranda við hverri og einni staðlaðri spurningu hafi verið skráð með skipulegum hætti. Fram kemur í mati á viðtali að frammistaða kæranda hafi verið í meðallagi. Af svörum kæranda hafi mátt greina að hann hafi upplifað áskoranir í störfum sínum og rætt um erfiðleika og vandamál sem upp hefðu komið. Í svörum kæranda hafi ekki komið fram skýr framtíðarsýn, honum hafi verið tíðrætt um vandamál en minna um lausnir. Þá er í minnisblaðinu ekki að finna niðurstöðu valnefndar eða forsendur fyrir mati á kæranda í hæfnisþáttum sem samkvæmt matsblaði átti að kanna í viðtali um framúrskarandi hæfni í samskiptum, leiðtogahæfileika, sveigjanleika og gott álagsþol og brennandi áhuga á umbótastarfi og að efla starfsfólk í störfum sínum.
  26. Af svörum kærða til kæranda, dags. 8. janúar 2024, verður ráðið að fyrrgreint minnisblað hafi verið unnið upp úr minnispunktum valnefndarmanna. Þar greinir jafnframt að minnisblaðið hafi verið útbúið nokkrum dögum áður en það var afhent kæranda 19. desember 2023. Texti skjalsins hafi að hluta til orðið til eftir að kærandi óskaði eftir gögnum málsins og minnispunktar hafi verið færðir í samfelldari texta. Niðurstaða málsins og mat hefði hins vegar ekki breyst frá því að ákvörðun hefði verið tekin og engu hafi verið bætt við eftir á. Svo sem að framan er rakið synjaði kærði beiðni kæranda um aðgang að minnispunktum nefndarinnar og hefur ekki kosið að afhenda kærunefnd punktana þrátt fyrir beiðni kærunefndar til kærða um að afhenda öll gögn málsins.
  27. Í svörum kærða í málinu kemur fram að mat valnefndar að loknum fyrri viðtölum um það að tveir umsækjendur hefðu staðið öðrum umsækjendum framar hafi verið lagt fyrir lögreglustjóra og þeir hafi síðan verið boðaðir til síðara viðtals við valnefnd. Við ákvörðun um skipun í embættið hafi lögreglustjóri haft skýrslu valnefndar og öll umsóknargögn. Í fyrirliggjandi gögnum liggja hins vegar ekki fyrir samtímagögn eða skráningar um aðkomu lögreglustjóra að umsóknarferlinu, þar með talið ákvörðun um skipun og samsetningu valnefndar eða um ákvörðun lögreglustjóra um skipun í embættið og hvaða gögn lágu þar til grundvallar. Ekki verður ráðið af gögnum málsins, eins og rakið er að framan, að lögreglustjóri hafi haft minnisblaðið um frammistöðu kæranda undir höndum enda var það skjal útbúið eftir að ákvörðun um skipun í embættið var tekin.
  28. Að öllu framangreindu virtu hefur kærða ekki tekist sönnun um að fullnægjandi upplýsingar hafi legið fyrir þegar tekin var ákvörðun um skipun í embættið. Af því verður hann að bera halla.
  29. Það athugast sérstaklega að jafnvel þótt við ákvörðunina hafi legið samsvarandi upplýsingar og er að finna á minnisblaðinu um frammistöðu kæranda, verður, svo sem að framan er rakið, ekki af þeim ráðið forsendur eða niðurstaða valnefndar fyrir mati á kæranda í persónubundnum hæfnisþáttum, þar með talið varðandi samskipta- og leiðtogahæfni og sveigjanleika og álagsþol. Verður því ekki séð hvernig valnefnd mat efnislegt inntak reynslu og/eða hæfni kæranda í þessum þáttum með hliðsjón af hæfniskröfum auglýsingar. Af þeim upplýsingum sem liggja fyrir í minnisblaðinu verður ráðið að niðurstaða valnefndar hafi grundvallast öðrum þræði á því að kæranda skorti skýra framtíðarsýn sem ekki var sérstök hæfniskrafa samkvæmt auglýsingu. Þá gekkst kærði við því, eins og að framan er rakið, að mat hans á stjórnunarreynslu kæranda hafi verið ófullnægjandi. Að þessu athuguðu hefur kærða ekki tekist sönnun um að mat hans á kæranda hafi verið forsvaranlegt eða byggt á málefnalegum sjónarmiðum í veigamiklum atriðum.
  30. Að öllu framangreindu virtu verður því ekki séð að hlutlæg og málefnaleg sjónarmið hafi legið til grundvallar ákvörðun kærða að boða kæranda ekki í síðara viðtal um embætti aðstoðaryfirlögregluþjóns og þar með útiloka hann frá umsóknarferlinu. Samkvæmt framansögðu er það því niðurstaða kærunefndar jafnréttismála að kærði hafi mismunað kæranda á grundvelli aldurs, sbr. 1. mgr. 8 gr., sbr. 1. mgr. 1. gr., laga nr. 86/2018.
  31. Uppkvaðning úrskurðar í málinu hefur tafist umfram þann tveggja mánaða frest, sem nefndin hefur til að úrskurða í máli eftir að gagnaöflun í því er lokið, samkvæmt 5. mgr. 9. gr. laga nr. 151/2020, um stjórnsýslu jafnréttismála. Er ástæða þess einkum mikill fjöldi mála sem er til meðferðar hjá nefndinni auk breytinga á vistun og starfsmannahaldi hennar. Þá athugast að umfang málatilbúnaðar kæranda sem telja verður úr hófi hefur óhjákvæmilega haft áhrif á málsmeðferðartíma.

 

Ú r s k u r ð a r o r ð

Kærði, Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu, braut gegn lögum, nr. 86/2018, um jafna meðferð á vinnumarkaði, við skipun í embætti aðstoðaryfirlögregluþjóns […] á rannsóknarsviði.

 

Ari Karlsson

Andri Árnason

Maren Albertsdóttir

 

Var efnið hjálplegt?