10 september 2026
/

Áherslur í ríkisrekstri 2027: Sjálfbær rekstur, góð þjónusta og öflugur mannauður

{image.Description}
Hari

Helstu áherslur í ríkisrekstri fyrir árið 2027 eru að auka sjálfbærni ríkisreksturs ásamt því að bæta þjónustu með einföldun stjórnsýslu og öflugum mannauði. Ríkisstjórnin samþykkti áherslurnar á fundi sínum á þriðjudag. Með áherslunum eru sett fram verkfæri sem stofnunum ber að horfa til við rekstur sinn.

Áherslurnar tengjast frumvarpi til fjárlaga fyrir árið 2027 og eiga að styðja ríkisstofnanir við að reka starfsemi sína með sjálfbærum hætti innan samþykktra fjárheimilda á sama tíma og gætt er að góðri þjónustu og öflugum mannauði.

Áherslurnar skiptast í þrjá meginþætti: sjálfbæran rekstur, góða þjónustu og öflugan mannauð. Meðal annars er lögð áhersla á rekstur innan fjárheimilda, notkun rammasamninga, ábyrga nýtingu gervigreindar, bætta gagnastýringu og endurnýjun eldri upplýsingakerfa. Þá er stofnunum beint að því að nýta sameiginlegar stafrænar þjónustulausnir Ísland.is og vinna markvisst að þróun mannauðs.

Fjárlagafrumvarpið markar fjárhagslegan ramma fyrir starfsemi ríkisins en áherslurnar veita stofnunum sameiginlega stefnumörkun um hvernig vinna skuli innan þess ramma. Með samþykkt áherslnanna beinir ríkisstjórnin því til ríkisstofnana að haga starfsemi sinni í samræmi við þær. Ráðuneytin munu fylgja áherslunum eftir og beita sér fyrir því að þær verði hluti af starfsemi stofnana á þeirra málefnasviðum árið 2027.

Áherslur í ríkisrekstri 2027