Dómsmálaráðuneytið auglýsir eftir umsóknum um styrki til verkefna og viðburða á sviði jafnréttismála
Auglýst er eftir umsóknum um styrki til verkefna og viðburða á sviði jafnréttismála. Dómsmálaráðuneytið veitir slíka styrki til eins árs í senn. Lögð er sérstök áhersla á verkefni og viðburði sem snúa að baráttunni gegn kynbundnu ofbeldi.
Við úthlutun er horft til þess hvort;
- verkefni hafi gildi og mikilvægi fyrir jafnréttismál,
- verkefni búi yfir sérstöðu eða nýnæmi og hafi skýr markmið og mælikvarða.
Frekari upplýsingar um styrkhæfi, mat á umsóknum og viðmið við úthlutun má finna í úthlutunarreglum.
- Umsóknarfrestur er til miðnættis 1. október 2026.
- Sótt er um styrk í gegnum eyðublað á vef Stjórnarráðsins.
- Hver einstakur styrkur getur numið að hámarki tveimur milljónum króna.
- Heildarupphæð til ráðstöfunar haustið 2026 er 10.000.000 kr.
Ráðuneytið mun ekki taka til umfjöllunar umsóknir sem berast utan auglýsts tímafrests eða eftir öðrum leiðum en í gegnum eyðublað á vef Stjórnarráðsins.
Ekki eru veittir styrkir til ríkisstofnana, sveitarfélaga eða einstaklinga, að þeim undanskildum sem sækja um styrk vegna doktorsverkefna, rekstrarstyrkja, ferðastyrkja, styrkja til nefndarsetu eða styrkja til BA/BS, eða meistaraprófa. Þá eru ekki veittir styrkir til bæjarhátíða. Til að umsókn teljist gild skulu henni fylgja þær upplýsingar og gögn sem óskað er eftir á umsóknarvef.
Hægt er að óska eftir frekari upplýsingum gegnum netfangið [email protected].