14 september 2026
/

Innanlandsvog 2027

{image.Description}
DL

Atvinnuvegaráðuneytið hefur gefið út innanlandsvog í samræmi við 5. gr. reglugerðar um stuðning við sauðfjárrækt nr. 144/2022.

Hlutverk vogarinnar er að skilgreina þarfir og eftirspurn innanlandsmarkaðar eftir kindakjöti, m.a. með það að markmiði að álagsgreiðslur vegna gæðastýringar skiptist á þann hluta heildarframleiðslunnar sem ætluð er fyrir innanlandsmarkað.

Til grundvallar útreikningum á innanlandsvog liggja upplýsingar um sölu kindakjöts eftir skrokkhlutum síðastliðna  24 mánuði og spá um líklega söluþróun.  Innanlandsvog er birt í tvennu lagi, þ.e. annars vegar fyrir dilkakjöt og hins vegar fyrir kjöt af fullorðnu fé.    Á grundvelli þessa líkans liggur áætlun framleiðsluársins 2026 – 2027 nú fyrir.

Samhliða innanlandsvoginni hefur Atvinnuvegaráðuneytið gert spá um framleiðslu sem byggir á fjölda vetrarfóðraðra kinda og framleiðslu pr vetrarfóðraða kind sl. fjögur ár. Með því er einnig hægt að áætla um útflutningsþörf á komandi framleiðsluári.   
Dilkakjöt.

Innanlandsvog fyrir dilkakjöt framleiðsluárið 2026 – 2027 er 6.419 tonn. Það er sú framleiðsla sem þarf til að mæta eftirspurn eftir heilum skrokkum og skrokkhlutum,  þ.e. frampörtum, hryggjum, lærum og slögum. Það er eftirspurn eftir frampörtum sem ræður magninu en til þess að fullnægja henni er umframframleiðsla/útflutningsþörf á lærum, hryggjum og slögum, alls 884 tonn.

Áætluð heildarframleiðsla á dilkakjöti er 6.762 tonn og miðað við hana er útflutningsþörf alls 1.227 tonn.

Innanlandsvog 2027
Dilkakjöt                                                                              Tonn
Framleiðsla vegna eftirspurnar innanlands6.419
Áætluð heildarframleiðsla6.762
Útflutningsþörf1.227

Kjöt af fullorðnu.

Innanlandsvog fyrir kjöt af fullorðnu fé framleiðsluárið 2026 – 2027 er 931 tonn.   Það er sú framleiðsla sem þarf til að mæta innanlandseftirspurn eftir heilum skrokkum og skrokkhlutum.  Eftirspurn eftir frampörtum ræður framleiðsluþörfinni fyrir innanlandsmarkað.   Spá um heildarframleiðslu er 1.110 tonn og heildarútflutningsþörf 332 tonn. Spá um heildarframleiðslu er 1.110 tonn og heildarútflutningsþörf 332 tonn.

 

Innanlandsvog 2027
Fullorðið fé
Framleiðsla vegna eftirspurnar innanlands931 tonn
Áætluð heildarframleiðsla1.110 tonn
Útflutningsþörf332 tonn