14 september 2026
/

Opið fyrir umsóknir um styrki úr Talsetningar- og textunarsjóði fyrir fjölmiðla

{image.Description}
Mynd: Stjórnarráðið

Auglýst er eftir umsóknum um styrki úr Talsetningar- og textunarsjóði fjölmiðlaveitna. Umsóknum skal skilað til menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytis fyrir miðnætti sunnudaginn 1. nóvember nk. á netfangið [email protected].

Í reglum nr. 980/2026 um úthlutun styrkja úr Talsetningar- og textunarsjóði fjölmiðlaveitna kemur fram að sjóðnum sé ætlað að styrkja innlenda einkarekna fjölmiðla sem talsetja og texta barnaefni á íslensku með það að markmiði að jafna samkeppnisstöðu þeirra gagnvart erlendum fjölmiðlum og stuðla að vernd íslenskrar tungu. Sjóðurinn er starfræktur tímabundið til þriggja ára en fyrst var úthlutað úr sjóðnum árið 2024. Styrkir eru veittir til talsetningar og/eða textunar á barnaefni á íslensku sem er til sýningar á innlendum áskriftarfjölmiðli. Umsækjandi skal sjálfur starfrækja viðkomandi áskriftarfjölmiðil. Miðað er við að efnið hafi verið frumsýnt á áskriftarfjölmiðlinum síðastliðna 12 mánuði og er þar miðað við dagsetningu umsóknarfrests.

Í 5. gr. reglnanna eru tilgreind skilyrði fyrir styrkveitingu og í 6. gr. er getið sérstakra atriða sem þurfa að koma fram í umsókn. Er umsækjendum bent á að kynna sér reglurnar í heild sinni og hvaða kröfur eru gerðar um gögn sem eiga að fylgja umsókn.

Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið hefur umsjón með úthlutun úr sjóðnum.

Umsóknir um styrk skulu sendar til á netfangið [email protected]. Ekki þarf að fylla út sérstakt eyðublað en í erindi umsækjanda til ráðuneytisins skal koma fram:

  1. Heiti fjölmiðlaveitu
  2. Titill verks eða verka
  3. Kostnaðaruppgjör vegna talsetningar og/eða textunar verks eða verka
  4. Bankaupplýsingar vegna greiðslu styrks
  5. Tengiliður og fylgigögn - upplýsingar um tengilið vegna umsóknar ásamt fylgigögnum sem umsækjandi telur nauðsynlegt að fylgi með umsókn
  6. Aðrir styrkir - njóti umsækjandi annarra styrkja fyrir verkefnið skal það koma fram í umsókn

Umsóknum skal skilað á netfangið [email protected] fyrir miðnætti sunnudaginn 1. nóvember nk. Ef spurningar vakna um umsóknarferlið má senda fyrirspurn á sama netfang.