14 september 2026
/

Ráðherra íþróttamála hitti formann Alþjóðaólympíuráðs fatlaðra

{image.Description}
Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, og Andrew Parsons, formaður Alþjóðaólympíuráðs fatlaðra, á fundi í ráðherrabústaðnum

Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, átti fyrir skemmstu fund með Andrew Parsons, formanni Alþjóðaólympíuráðs fatlaðra (IPC). Með honum í för voru þeir Þórður Árni Hjaltested, formaður Íþróttasambands fatlaðra, Petur Elias Petersen, formaður Íþróttasambands Færeyja, og Willum Þór Þórsson, forseti Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands. Tilefni heimsóknar Andrews til landsins var að fagna 50 ára samstarfsafmæli Norrænna íþróttasamtaka á sviði íþrótta fatlaðra.

Meðal þess sem rætt var um var þróun íþróttastarfs fatlaðra í gegnum árin. Sérstaklega var rætt um verkefnið Allir með sem hefur það meðal annars að markmiði að fjölga tækifærum fatlaðra til íþróttaiðkunar í samstarfi við íþróttahreyfinguna þannig að öll börn og ungmenni eigi möguleika á að taka þátt í íþróttum í sínu nærumhverfi í samræmi við óskir sínar og þarfir. Einnig var rætt um þýðingu lögfestingar samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks og áhrif þess á íþróttastarf.

Inga Sæland ásamt f. v. Petur Elias Petersen, Willum Þór Þórssyni, Andrew Parsons og Þórði Árna Hjaltested, formanni Íþróttasambands fatlaðra