14 september 2026
/

Sendiherra afhendir trúnaðarbréf í Líbanon

{image.Description}
María Mjöll Jónsdóttir, sendiherra Íslands og Joseph Aoun, forseti Líbanon

María Mjöll Jónsdóttir, sendiherra Íslands gagnvart Líbanon, afhenti í vikunni Joseph Aoun, forseta Líbanons, trúnaðarbréf sitt í Beirút.

Við athöfnina kom sendiherra á framfæri stuðningi Íslands við viðleitni líbönsku ríkisstjórnarinnar til friðar og uppbyggingar, þar á meðal innleiðingu vopnahlésins og samningaleiðina að varanlegum stöðugleika.

Ísland styður jafnframt mannúðarstarf í Líbanon í gegnum mannúðarsjóð OCHA fyrir Líbanon og Rauða krossinn og Rauða hálfmánann, sem vinna ötullega að því að bæta lífskjör þeirra sem átökin hafa bitnað á, fólks á vergangi innanlands og flóttafólks í landinu.

Í heimsókninni hitti sendiherra einnig fulltrúa utanríkisráðuneytis Líbanons og Sameinuðu þjóðanna og sendiherra hinna Norðurlandanna. Carla Jabre, kjörræðismaður Íslands í Líbanon, aðstoðaði við undirbúning heimsóknarinnar og bauð til kvöldverðar til heiðurs sendiherra.

Virðing fyrir alþjóðalögum og öflugt fjölþjóðakerfi eru sameiginleg hagsmunamál Íslands og Líbanons og sendiráðið mun áfram leita leiða til að efla tengsl ríkjanna.