14 september 2026
/

Þórarna skipuð forstjóri Heilbrigðisstofnunar Austurlands

{image.Description}
Þórarna Gró Friðjónsdóttir.

Alma D. Möller heilbrigðisráðherra hefur skipað Þórörnu Gró Friðjónsdóttur forstjóra Heilbrigðisstofnunar Austurlands til næstu fimm ára, frá 1. október næstkomandi. Ráðgefandi hæfnisnefnd mat Þórörnu mjög vel hæfa til að gegna embættinu. Skipað er í embættið í samræmi við 9. gr. laga um heilbrigðisþjónustu.

Þórarna hefur starfað við Heilbrigðisstofnun Austurlands (HSA) frá árinu 2018, fyrst sem rekstrarstjóri og síðar sem framkvæmdastjóri mannauðs. Frá 1. júní sl. hefur Þórarna veitt stofnuninni forstöðu sem settur forstjóri.

Þórarna er með meistarapróf í fjármálum fyrirtækja, B.S. gráðu í sálfræði og hefur einnig lokið 60 eininga grunndiplómu í uppeldis- og menntunarfræðum frá Háskóla Íslands.

Í umsögn hæfnisnefndar er sérstaklega bent á mikla þekkingu Þórörnu á áætlanagerð, fjármálum hins opinbera, þekkingar á opinberri stjórnsýslu og langvarandi reynslu á sviði rekstrar og stjórnunar mannauðsmála.

"Ég er afar þakklát fyrir það traust sem mér er sýnt og full tilhlökkunar að taka við starfi forstjóra HSA. Ég þekki starfsemina vel og veit hversu mikill styrkur býr í þeim öfluga og samhenta hópi sem starfar hjá HSA. Fram undan eru spennandi verkefni og tækifæri og ég hlakka til að takast á við þau í góðri samvinnu við starfsfólk og samstarfsaðila, með það að markmiði að veita íbúum Austurlands góða heilbrigðisþjónustu“ segir Þórarna Gró.

„Ég veit að Þórarna hefur mikinn metnað fyrir hönd stofnunarinnar sem hún þekkir orðið vel og sömuleiðis helstu áskoranirnar sem við er að fást í þessu víðfeðma heilbrigðisumdæmi. Ég óska henni velfarnaðar og hlakka til samstarfs við hana“ segir Alma D. Möller heilbrigðisráðherra.