19 júní 2017Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
Vöktun á Íslandi: Kortlagning og framtíðarsýn. Skýrsla verkefnahóps Vísinda- og tækniráðs
Í almennri notkun vísar hugtakið „vöktun“ oftast til reglubundinna athugana á ástandi umhverfis og náttúru. Reglubundnar og skipulagðar mælingar eiga sér þó stað á mun fleiri sviðum. Á síðari tímum hefur vöktun einnig orðið mikilvæg undirstaða rannsókna á ýmsum sviðum og er raunar grundvallarforsenda sumra fræðigreina, s.s. loftslagsfræða og hafvísinda.