30. jún. 2026Utanríkisráðuneytið, Utanríkismál, Evrópusamvinna, Utanríkisviðskipti, Alþjóðamál
Samningurinn um Evrópska efnahagssvæðið - yfirlit
Utanríkisráðuneytið
Samningurinn um Evrópska efnahagssvæðið - yfirlit
EES-samningnum er skipt í þrjá hluta, eða meginmál sem er 129 greinar, 49 bókanir og 22 viðauka. Þegar vísað er til EES-samningsins er oft átt við meginmálið, en strangt til tekið teljast allir þrír hlutarnir til EES-samningsins. Ákvæði bókananna kveða á um nánari beitingu reglna í meginmáli samningsins og viðaukarnir taka til mismunandi málefnasviða og þar er einnig að finna tilvísanir til afleiddrar löggjafar ESB, eða svokallaðra gerða (þær réttarreglur sem stofnanir ESB setja með heimild í stofnsáttmálunum, eða reglugerðir, tilskipanir, o