Útflutningseftirlit

Útflutningseftirlit með hlutum með tvíþætt notagildi

Íslandi er skylt að hafa eftirlit með vissum útflutningi hluta með tvíþætt notagildi, þ.e. vöru, tækni og þjónustu sem nota má bæði í borgaralegum og hernaðarlegum tilgangi, á grundvelli ýmissa þjóðréttarlegra skuldbindinga. Tilgangur þessa útflutningseftirlits er að koma í veg fyrir að hlutir með tvíþætt notagildi séu nýttir í andstöðu við þjóðréttarlegar skuldbindingar Íslands vegna t.d. þvingunaraðgerða og brota á mannúðarrétti eða mannréttindum.

Íslensk löggjöf tekur mið af og innleiðir reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2021/821 um að setja Sambandsreglur um eftirlit með útflutningi, miðlun, tækniaðstoð, umflutningi og tilflutningi hluta með tvíþætt notagildi.

Stjórnsýslulega heyrir útflutningur undir utanríkisráðuneytið. Utanríkisráðherra veitir fjórar tegundir  útflutningsleyfa, það er stök útflutningsleyfi, almenn útflutningsleyfi, útflutningsleyfi vegna umfangsmikilla verkefna og heildarútflutningsleyfi. Lista yfir hluti sem sæta útflutningsleyfi má finna í reglugerðum sem innleiddar eru á grundvelli laga nr. 67/2023 um afvopnun, takmörkun vígbúnaðar og útflutningseftirlit.

Gjald fyrir útflutningsleyfi er kr. 25.000 skv. 19. tölul. 12. gr. laga um aukatekjur ríkissjóðs nr. 88/1991.
Gjaldið skal greitt með umsókninni.
Hægt er að millifæra á reikning utanríkisráðuneytisins: 0303-26-000269, kt. 670269-4779. Kvittun þarf að fylgja umsókn. Umsóknir um útflutningsleyfi sendist á:[email protected]

Alþjóðaskuldbindingarnar grundvallast meðal annars á stofnsáttmála Sameinuðu þjóðanna, efnavopnasamningnum frá árinu 1992, vopnaviðskiptasamningnum, EES-samningnum og aðild Íslands að svokölluðum eftirlitskerfum. Ísland tekur þátt í þremur eftirlitskerfum: Ástralíuhópnum um efna- og lífefnavopn, Eftirlitskerfinu með flugskeytatækni (MTCR) og Kjarnbirgjahópnum (e. Nuclear suppliers Group, NSG). Þá hefur Ísland sótt um þátttöku í Wassenaar-fyrirkomulaginu frá 1995 sem fjallar um hefðbundin vopn og hluti með tvíþætt notagildi.

Ísland er aðili að Atlantshafsbandalaginu (NATO) og er aðili að, tekur þátt í eða styður samtök og samvinnu tengd útflutningseftirliti, þar á meðal stofnuninni um bann við efnavopnum (OPCW), Haag-atferlisreglurnar gegn útbreiðslu skotflauga (HCOC), öryggisátakið gegn útbreiðslu gereyðingarvopna (PSI), hnattrænt átak gegn kjarnahryðjuverkum (GICNT) og hnattrænt átak gegn kjarnaógnum (GTRI).

Eyðublöð

Alþjóðastofnanir

Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna (UNSC)1540-nefndinEfnavopnastofnunin (OPCW)

Alþjóðasamningar

Vopnaviðskiptasamningurinn (ATT)Efnavopnasamningurinn (CWC)EES-samningurinn

Alþjóðasamstarf

Eftirlitskerfið með flugskeytatækni (MTCR)Kjarnbirgjahópurinn (NSG)
Zangger-nefndin

Löggjöf

Lög um afvopnun, takmörkun vígbúnaðar og útflutningseftirlit, nr. 67/2023Reglugerð um eftirlit með flutningi á hlutum með tvíþætt notagildi nr. 1120/2023Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2021/821 um að setja Sambandsreglur um eftirlit með útflutningi, miðlun, tækniaðstop, umflutningi og tilfutningi hluta með tvíætt notagildi.Lög um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða og frystingu fjármuna, nr. 68/2023Reglugerð um alþjóðlegar öryggisaðgerðir varðandi gereyðingarvopn nr. 123/2009, sbr. rg.nr. 325//2009

Yfirlit yfir aðild að útflutningseftirlitskerfum

RíkiAGMTCRNSGWAΣ
Argentína11114
Ástralía11114
Kanada11114
Japan11114
Kórea, Lýðveldið11114
Nýja-Sjáland11114
Bandaríkin11114
(7)(7)(7)(7)
(Evrópa I)AGMTCRNSGWAΣ
Austurríki11114
Belgía11114
Búlgaría11114
Tékkneska lýðveldið11114
Danmörk11114
Finnland11114
Frakkland11114
Grikkland11114
Þýskaland11114
Ungverjaland11114
Írland11114
Ítalía11114
Lúxemborg11114
Niðurlönd11114
Pólland11114
Portúgal11114
Spánn11114
Svíþjóð11114
Bretland11114
(19)(19)(19)(19)
(Evrópa II)AGMTCRNSGWAΣ
Noregur11114
Sviss11114
Tyrkland11114
Úkraína11114
(4)(4)(4)(4)
(Evrópa III)AGMTCRNSGWAΣ
Króatía1 113
Kýpur1 1 2
Eistland1 113
Lettland1 113
Litháen1 113
Malta1 113
Slóvakía1 113
Slóvenía1 113
Rúmenía1 113
Evrópusambandið1 1
(10)(0)(9)(8)
(Evrópa IV)AGMTCRNSGWAΣ
Belarus 1 1
Ísland111 3
Serbía 1 1
(1)(1)(3)(0)
(Önnur)AGMTCRNSGWAΣ
Brasilía 11 2
Kína 1 1
Kazakhstan 1 1
Mexikó1 113
Rússland 1113
Suður-Afríka 1113
(1)(3)(6)(3)
Samtals42344841
Ameríka4454
Afríka0111
Asía2242
Evrópa33253632
Eyjaálfa2222