Samráðsfundir með innviðaráðherra 2025
Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra hélt opna íbúafundi í öllum landshlutum til að eiga samráð um málaflokka ráðuneytisins í ágúst 2025 undir yfirskriftinn Fjárfest í innviðum til framtíðar. Sjö fundir voru haldnir í Borgarnesi, á Ísafirði, Blönduósi, Akureyri, Egilsstöðum, Selfossi og í Reykjanesbær. Fundirnir sem voru öllum opnir voru allir mjög vel sóttir og umræður líflegar.
Tilgangur fundanna var að kalla eftir sjónarmiðum íbúa og sveitarstjórnarfólks um málaflokka ráðuneytisins – samgöngur, sveitarstjórnar- og byggðamál og fjarskipti og stafræna innviði. Það mun m.a. nýtast í vinnu við stefnumótun og undirbúning áætlana á vegum ráðuneytisins. Stefnt að því að leggja fram samgönguáætlun síðar í haust og íbúum gefst því tækifæri til að koma sjónarmiðum sínum á framfæri við ráðherra.
Dagskrá funda í ágúst
Reglulegt samráð
SJÁ EINNIG:
Samráðsfundir eru ekki eina tækifæri íbúa til að hafa áhrif á stefnumótun ráðuneytisins. Stöðumat og valkostir (þ.e. grænbók) og drög að stefnu (þ.e. hvítbók) eru birtar í samráðsgátt stjórnvalda. Þar gefst fólki einnig tækifæri til að senda inn umsagnir og ábendingar.
Einnig er hægt að senda inn ábendingar í tengslum við þessa fundi á netfang ráðuneytisins - [email protected]