Um sendiskrifstofu
Hlutverk sendiráðsins er að hafa umsjón með þróunarsamvinnu Íslands í Malaví, gæta hagsmuna Íslands á sviði utanríkis- og viðskiptamála og þjónusta Íslendinga á svæðinu.
Sendiráðið var stofnað árið 2004. Formleg samskipti og samstarf Íslands og Malaví hófust þó mun fyrr en fyrsti samningur þjóðanna um þróunarsamvinnu var undirritaður árið 1989.
Þróunarsamvinna Íslands í Malaví byggir á nánu samstarfi við stjórnvöld í landinu, sérstaklega við héraðsyfirvöld í samstarfshéruðum Íslands, Mangochi og Nkhotakota. Að auki er starfað með stofnunum Sameinuðu þjóðanna, Alþjóðabankanum og félagasamtökum, bæði innlendum og alþjóðlegum.
Sendiráð Íslands - Lilongwe
Heimilisfang:
13/13 Samala House
P/Bag B422, Lilongwe, Malawi
Sími: +265 098 326 3190
Netfang: [email protected]
Opnunartími: Afgreiðsla mán - fim frá kl. 08:00 - 16:00 og fös 08:00 - 13:00