Sjóður Evrópusambandsins um landamæri og áritanir 2021 – 2027

Sjóðurinn um landamæri og áritanir er hluti af fjárhagsramma Evrópusambandsins fyrir tímabilið 2021-2027 og tekur við af sjóðnum um innra öryggi, landamæri og vegabréfsáritanaútgáfu sem var hluti af fjárhagsramma Evrópusambandsins fyrir tímabilið 2014-2020.

Hlutverk sjóðsins er að tryggja öfluga og samþætta evrópska landamærastjórnun á ytri landamærum sambandsins, tryggja hátt innra öryggi innan sambandsins á sama tíma og staðinn er vörður um frjálst flæði fólks innan þess. Sjóðurinn mun leggja sitt af mörkum til að ná tveimur sérstökum markmiðum:

  • að styðja við samþætta evrópska landamærastjórnun, m.a. til að auðvelda lögmæta för yfir landamæri og koma í veg fyrir ólöglegar ferðir yfir landamæri,
  • að styðja við sameiginlega vegabréfsáritunarstefnu, tryggja samræmda nálgun að því er varðar útgáfu vegabréfsáritana og auðvelda lögmæt ferðalög.

Fjármagn og fjármögnunarleiðir úr sjóðnum

Styrkir til verkefna, sem hægt er að sækja um fyrir tímabilið 2021 – 2027 nema u.þ.b. 24 m. evra. Framkvæmdavald Sjóðsins (e. managing authority) er staðsett á skrifstofu fjármála og rekstrar í dómsmálaráðuneytinu. Ríkisendurskoðun gegnir hlutverki endurskoðunaryfirvalds.

Fjárframlög sem eru veitt á grundvelli landsáætlana eru í formi styrkja. Aðgerðir sem eru styrktar á grundvelli landsáætlana skulu samfjármagnaðar. Styrkurinn getur numið allt að 75% af aðstoðarhæfum heildarkostnaði verkefnisins, í einstaka tilfellum getur styrkur numið 90% þegar um er að ræða sértækar aðgerðir eða stefnumótandi forgangsverkefni. Útgjöld eru aðstoðarhæf ef styrkþegi hefur stofnað til þeirra á tímabilinu 1. janúar 2021 – 31. desember 2029.

Tvær megin reglugerðir sem sjóðurinn vinnur eftir:

Lög um sameiginleg ákvæði fyrir alla sjóði sambandsins og aðildarríkjanna á tímabilinu 2021-2027, reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2021/1060, hér eftir nefnd CPR (Common Provisions Regulation) reglugerðin.Lög um stofnun landamæra og áritunarsjóð ESB, reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2021/1148, hér eftir nefnd BMVI (Border Management and Visa Instrument) reglugerðin.
Ísland gerir einnig viðbótarsamning við ESB um þátttöku Íslands í landamæra og áritunarsjóð ESB.

Umsókn um stuðning sjóðsins

Þeir aðilar sem fara með málefni landamæra og útgáfu áritana geta ein sótt um stuðning til sjóðsins. Tillögur að nýjum verkefnum eru undirbúnar og forgangsraðað í dómsmálaráðuneytinu af sérfræðingum ráðuneytisins og þeirra aðila sem fara með málefni landamæra og áritana.

Til þess að verkefni teljist styrkhæf verða þau að sýna fram á að þau styðji þau markmið og forgangsröðun sem koma fram í Landsáætlun Íslands. Kostnaður verkefnisins er styrkhæfur ef stofnað hefur verið til hans frá 2021 til 2029.

Allar umsóknir um styrkveitingar eru teknar fyrir af eftirlitsnefnd sjóðsins sem skipuð er fulltrúum ráðuneyta, stofnana og annarra hagsmunaaðila sem koma að landamæra- og vegabréfamálum. Evrópusambandið á áheyrnarfulltrúa í nefndinni og stofnanir á borð við Frontex geta tekið þátt eftir þörfum. Eftirlitsnefndin fundar reglulega, fer yfir framvindu verkefna og árangur áætlunarinnar og samþykkir breytingar þegar við á.

Verkefni sem hlotið hafa styrk úr sjóðnum:

VerkefnisheitiStyrkþegi
         **Áætlað****verkefnatímabil**               
         **Áætlaður heildarkostnaður**             
Landamæraeftirlit með drónumLandhelgisgæsla Íslands2023
         10.781.112             
LandamærabílarLögreglan á höfuðborgarsvæðinu2023-2024
         130.931.805             
Menntun og þjálfun í landamæramálefnumRíkislögreglustjóri2024-2027
         258.882.500             
AðgerðabátarLandhelgisgæsla Íslands2023-2025
         110.000.000             
ÞekkingaryfirfærslaUtanríkisráðuneytið2023-2025
         25.184.232             
  
Aðstaða fyrir landamæra- og tollverði á Rvk flugvelliIsavia2022-2025
         37.450.000             
Innra eftirlit og úttektirUtanríkisráðuneytið2023-2025
         98.985.046             
Bætt öryggi sendiskrifstofaUtanríkisráðuneytið2021-2025
         39.241.844             
Viðbrögð við álagstímabilum á sviði áritanaUtanríkisráðuneytið2023
         117.720.340             
Uppfærslur á tækniinnviðum sendiráðaUtanríkisráðuneytið2021-2026
         149.635.357             
Tímabundinn stuðningur til að mæta auknu verkefnaálagiLögreglan á höfuðborgarsvæðinu2024
         94.430.686             
Tímabundinn stuðningur til að mæta auknu verkefnaálagiLögreglan á Norðurlandi Eystra2024
         3.781.250             
SkjalarannsóknartækiLögreglustjórinn á Suðurnesjum2024
         19.431.522             
SIS IORíkislögreglustjóri2024-2026
         35.310.000             
EES hugbúnaðarlausn hjá ÚTLÚtlendingastofnun2024-2025
         31.030.000             
Tengslafulltrúi hjá FrontexRíkislögreglustjóri2025-2027
         92.558.546             
Landamæraeftirlit með ratsjárstöðvumLandhelgisgæsla Íslands2024-2025
         154.395.650             
EES búnaður á AkureyrarflugvöllRíkislögreglustjóri2024-2025
         75.649.000             
Entry Exit gangsetningRíkislögreglustjóri2024-2025
         385.200.000             
EUROSUR 2025-2029Ríkislögreglustjóri2025-2027
         589.066.000             
ETIAS innleiðingRíkislögreglustjóri2024-2025
         259.442.900             

Mannaflaþörf og rekstur Schengen upplýsingatæknikerfa
til 2027

Ríkislögreglustjóri2025-2027770.900.000
Entry Exit framhaldRíkislögreglustjóri2025-2026517.666.000

Ómannað loftfar lögreglu til eftirlits í höfnum 
og hafnarsvæðum

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu20256.000.000
Endurnýjun og uppfærsla á drónaLögreglan á Austurlandi20253.370.500
Fjölgun á lúpum og endurnýjun fingrafaraskannaLögreglan á Austurlandi20253.477.500
Búnaður til landamæragæsluLögreglan á Norðurlandi Eystra2025-20263.498.900

Landamærastöð í farþegamiðstöð Faxaflóahafna að
Skarfabakka vegna innleiðingar EES

Faxaflóahafnir sf.2024-2026106.786.000

Innleiðing á Entry Exit (EES) sjálfvirknibúnaði á 
Egilsstaðaflugvelli

Isavia Innanlandsflugvellir ehf.2025-202622.000.000
Opnun áritanadeildar í TokyoUtanríkisráðuneytið2025-202733.329.412
Endurnýjun á fingrafannaskanna og myndavélLögreglustjórinn á Vestfjörðum2026-20273.745.000
Sjá einnig: