Æðardúnn
Samkvæmt lögum um gæðamat á æðardúni skal allur æðardúnn hvort sem hann er til dreifingar innanlands eða til útflutnings, metinn og veginn af lögskipuðum dúnmatsmönnum eftir fullhreinsun.
Dúnmatsmenn
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra veitir leyfi til handa dúnmatsmönnum til að starfa á þeim stöðum þar sem þess er þörf. Starfssvæði dúnmatsmanna eru ákveðin með reglugerð.
Dúnmatsmenn verða að uppfylla öll eftirfarandi skilyrði til að geta óskað eftir því að verða skipaðir dúnmatsmenn:
- Hafa verulega reynslu af æðardúnstekju, meðhöndlun æðardúns og þekkingu á eiginleikum hans.
- Hafa sótt námskeið um dúnmat hjá Landbúnaðarháskóla Íslands þar sem farið er yfir helstu atriði er snúa að æðarfugli, æðardúnstekju, geymslu, meðhöndlun hreinsun og eiginleikum æðardúns. Á námskeiðinu skal dúnmatsmönnum veitt leiðsögn um mat á æðardúni þannig að gætt sé samræmis við mat alls staðar á landinu. Dúnmatsmenn skulu sækja námskeið um dúnmat á a.m.k. fimm ára fresti eða ávallt áður en starfsleyfi fellur úr gildi, enda hafi þeir í hyggju að leita eftir endurnýjun starfsleyfis.
- Hafa undirritað eiðstaf áður en þeir taka til starfa.
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið heldur námskeið fyrir dúnmatsmenn í samvinnu við Landbúnaðarháskóla Íslands, eru þau sérstaklega auglýst á heimasíðu ráðuneytisins.
Lögskipaðir dúnmatsmenn fá afhentar tangir og stimpil til að votta æðardún. Þá er dúnmatsmönnum heimilt að taka gjald vegna vinnu sinnar samkvæmt gjaldskrá sem atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið staðfestir. Þá hvílir sú skylda á dúnmatsmönnum að þeim ber að skila árlega starfsskýrslu til sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra þar sem tilgreindir eru þeir aðilar sem æðardúnn hefur verið metin fyrir, framleiðslustig vöru, heildarþyngd vottaðs dúns og fjöldi útgefinna vottorða.
Lögskipaðir dúnmatsmenn 2021-2026
| Dúnmatsmaður | Starfssvæði |
| Ásgeir Gunnar Jónsson | Norðvesturland |
| Þrymur Guðberg Sveinsson | Suðurland |
| Óðinn Logi Þórisson | Norðausturland |
| Sighvatur Jón Þórarinsson | Norðvesturland |
| Björgvin Björgvinsson | Suðurland |
| Elis Frosti Magnússon | Norðausturland |
| Heiðrún Guðmundsdóttir | Suðurland |
| Elvar Friðriksson | Norðausturland |
| Leifur Bremnes | Norðvesturland |
| Helga Björk Jónsdóttir | Suðurland |
| Madara Sudare | Norðvesturland |
| Dóróthea Guðrún Sigvaldadóttir | Norðvesturland |
Vottorð v/útflutnings
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið gefur út staðfestingu fyrir útflytjendur æðardúns þess efnis að æðardúni sé hér á landi safnað samkvæmt hefð og með velferð fuglsins að leiðarljósi. Þá er einnig tilgreint í vottorði ráðuneytisins að viðkomandi æðardúnn sé vottaður af lögskipuðum dúnmatsmanni.