Í 5. mgr. 10. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, er að finna ákvæði er varða skilyrði um úthlutun aflaheimilda í einstökum byggðarlögum. Ráðherra setur almenn skilyrði fyrir úthlutun með reglugerð. Almennar reglur um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2024/2025 eru í reglugerð nr. 819/2024, um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2024/2025.
Ráðherra getur heimilað á grundvelli rökstuddra tillagna sveitarstjórnar að sett verði sérstök skilyrði fyrir úthlutun aflaheimilda í einstökum byggðarlögum er víkja frá eða eru til viðbótar hinum almennu skilyrðum enda séu þau byggð á málefnalegum og staðbundnum ástæðum og í samræmi við hagsmuni viðkomandi byggðarlaga.
Í 7. mgr. 10. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, eru ákvæði er varða skilyrði um skyldu til að landa til vinnslu innan hlutaðeigandi byggðarlaga og getur ráðherra heimilað á grundvelli rökstuddra tillagna sveitarstjórnar að sett verði sérstök skilyrði fyrir úthlutun aflaheimilda í einstökum byggðarlögum er víkja frá eða eru til viðbótar hinum almennu skilyrðum enda séu þau byggð á málefnalegum og staðbundnum ástæðum.
Ráðherra getur því á grundvelli framangreindra heimilda byggt á tillögum sveitarstjórna sem víkja frá ákvæðum í almennu reglunum sem er að finna í framangreindri reglugerð. Sveitarstjórnum var veittur frestur til 21. febrúar sl. til að skila inn tillögum er varða þau byggðarlög sem fá úthlutun byggðakvóta innan hvers sveitarfélags.
Málsmeðferð ráðuneytis
Ráðuneytið tilkynnir viðeigandi sveitarstjórn um úthlutun byggðakvóta til byggðarlaga innan sveitarfélagsins á grundvelli ákvæða reglugerðar nr. 818/2024, um úthlutun byggðakvóta til byggðarlaga á fiskveiðiárinu 2024/2025.
Erindi sveitarstjórnar um beiðni á setningu sérreglna berst ráðuneytinu ásamt tillögu að sérreglum.
Ráðuneytið móttekur erindið og undirbýr kynningu á tillögu sveitarfélags.
Kynning á tillögum sveitarstjórnar. Ráðuneytið birtir tillögu sveitarstjórnar á vef ráðuneytisins í sjö daga og óskar eftir athugasemdum varðandi tillögu viðkomandi sveitarstjórnar.
Ráðuneytið móttekur athugasemdir vegna tillögu sveitarstjórnar fyrir viðkomandi byggðarlag og undirbýr kynningu á athugasemdum.
Ráðuneytið metur hvort rökstuðningur tillagna sveitarstjórnar sé fullnægjandi eða hvort um annmarka sé um að ræða á tillögu sveitarstjórnar vegna viðkomandi byggðarlags m.t.t. afgreiðslu hennar. Ef svo er þá er sveitarstjórn tilkynnt um slíkt og gefinn kostur til úrbóta á innsendri tillögu.
Ráðuneytið tekur tillögu sveitarstjórnar til efnislegar meðferðar. Við mat ráðuneytisins verður sérstaklega litið til rökstuddra tillagna sveitarfélags um að víkja frá skilyrðum á grundvelli málefnalegra og staðbundinna ástæðna enda séu þau í samræmi við hagsmuni viðkomandi byggðarlaga. Ráðuneytið kannar hvort aðstæður hafi breyst í viðkomandi byggðarlagi sem gefi tilefni til að fallast á eða hafna tilteknum atriðum í tillögum sveitarstjórnar. Bent skal á að þótt tilteknar tillögur að sérreglum hafi verið staðfestar á fyrri fiskveiðiárum er það ekki vísbending um að sambærilegar tillögur að sérreglum muni verða samþykktar fyrir viðkomandi byggðarlag fyrir fiskveiðiárið 2024/2025 þar sem ráðuneytinu ber að taka afstöðu til hverrar tillögu fyrir sig með hliðsjón af málefnalegum og staðbundnum ástæðum og í samræmi við hagsmuni viðkomandi byggðarlaga í hverju tilviki fyrir sig.
Ráðuneytið skrifar fundargerð um afgreiðslu erindis.
- Ráðuneytið staðfestir að fullu tillögu sveitarstjórnar um sérreglur.
- Ráðuneytið staðfestir að hluta tillögu sveitarstjórnar um sérreglur.
- Ráðuneytið hafnar tillögu sveitarstjórnar um sérreglur.
Ráðuneytið sendir bréf til sveitarstjórnar um niðurstöðu ásamt rökstuðningi á afgreiðslu. Ef ástæða er til þá er sveitarstjórnum gefin kostur til úrbóta á innsendri tillögu. Auglýsing sérreglna fyrir viðkomandi byggðarlag/byggðarlög er send Stjórnartíðindum til birtingar. Ráðuneytið getur gert leiðréttingar og formbreytingar á tillögum sveitarstjórna ef þörf er á ef það er nauðsynlegt m.t.t. málfars eða samhengis. Ráðuneytið mun hins vegar ekki leggja til efnisbreytingar á tillögum sveitarstjórna heldur verða slíkar tillögur að berast ráðuneytinu frá viðkomandi sveitarstjórnum.
Ráðuneytið sendir Fiskistofu fyrirmæli um að auglýsa byggðakvóta til fiskiskipa til umsóknar fyrir viðkomandi byggðarlag/byggðarlög eftir að sérreglur hafa verið birtar í Stjórnartíðindum.
Tillögur sveitarstjórna fyrir einstök byggðarlög
Akureyrarbær
| Sveitarfélag | Byggðarlag | Úthlutun 2024/2025 (t) | Eftirstöðvar af úthlutun 2023/2024 (t) | Samtals til ráðstöfunar 2024/2025 (t) |
|---|
| Akureyrarbær | Grímsey | 133
| 0,000
| 133,000 |
| Hrísey | 188
| 0,000
| 188,000
| |
Tillaga Akureyrarbæjar (04.02.2025)Innsent bréf Akureyrarbæjar (05.02.2025)Fundargerð bæjarstjórnar Akureyrarbæjar (04.02.2025)Fundargerð bæjarstjórnar Akureyrarbæjar (18.02.2025)Árneshreppur
| Sveitarfélag | Byggðarlag | Úthlutun 2024/2025 (t) | Eftirstöðvar af úthlutun 2023/2024 (t) | Samtals til ráðstöfunar 2024/2025 (t) |
|---|
| Árneshreppur | Norðurfjörður | 15
| 2,647 | 17,647
|
Innsent bréf Árneshreppur (29.01.2025)Tillaga Árneshrepps (04.03.2025)Fundargerð hreppsnefndar Árneshrepps (12.02.2025)Fundargerð hreppsnefndar Árneshrepps (19.03.2025)Bolungarvíkurkaupstaður
| Sveitarfélag | Byggðarlag | Úthlutun 2024/2025 (t) | Eftirstöðvar af úthlutun 2023/2024 (t) | Samtals til ráðstöfunar 2024/2025 (t) |
|---|
| Bolungarvíkurkaupstaður | Bolungarvík | 65 | 0,000 | 65,000 |
- Ekki óskað eftir sérreglum.
Fundargerð bæjarráðs Bolungarvíkurkaupstaðar (28.01.2025)Dalvíkurbyggð
| Sveitarfélag | Byggðarlag | Úthlutun 2024/2025 (t) | Eftirstöðvar af úthlutun 2023/2024 (t) | Samtals til ráðstöfunar 2024/2025 (t) |
|---|
| Dalvíkurbyggð | Árskógssandur | 58 | 26,339 | 84,339 |
| Dalvík | 21 | 6,468 | 27,468 | |
| Hauganes | 15 | 15,000 | 30,000 | |
Tillaga Dalvíkurbyggðar (18.02.2025)Fundargerð sveitarstjórnar Dalvíkurbyggðar (18.02.2025)Fundur byggðaráðs Dalvíkurbyggðar (13.02.2025)Fundargerð byggðaráðs Dalvíkurbyggðar (30.01.2025)Fundargerð byggðaráðs Dalvíkurbyggðar (06.02.2025)Fundargerð byggðaráðs Dalvíkurbyggðar (13.02.2025)Fjallabyggð
| Sveitarfélag | Byggðarlag | Úthlutun 2024/2025 (t) | Eftirstöðvar af úthlutun 2023/2024 (t) | Samtals til ráðstöfunar 2024/2025 (t) |
|---|
| Fjallabyggð | Ólafsfjörður | 18 | 22,963 | 40,963 |
| Siglufjörður | 195 | 82,392 | 277,392 | |
Tillaga Fjallabyggðar (19.02.2025)Fundargerð bæjarstjórnar Fjallabyggðar (19.02.2025)Staðfesting bæjarstjórnar Fjallabyggðar (19.02.2025)Fjarðabyggð
| Sveitarfélag | Byggðarlag | Úthlutun 2024/2025 (t) | Eftirstöðvar af úthlutun 2023/2024 (t) | Samtals til ráðstöfunar 2024/2025 (t) |
|---|
| Fjarðabyggð | Breiðdalsvík | 34 | 0,000 | 34,000 |
| Mjóifjörður | 15 | 12,893 | 27,893 | |
| Stöðvarfjörður | 32 | 18,726 | 50,726 | |
- Tillaga að sérreglum hefur ekki borist.
Grundarfjarðarbær
| Sveitarfélag | Byggðarlag | Úthlutun 2024/2025 (t) | Eftirstöðvar af úthlutun 2023/2024 (t) | Samtals til ráðstöfunar 2024/2025 (t) |
|---|
| Grundarfjarðarbær | Grundarfjörður | 130 | 0,000 | 130,000 |
- Tillaga að sérreglum hefur ekki borist.
Grýtubakkahreppur
| Sveitarfélag | Byggðarlag | Úthlutun 2024/2025 (t) | Eftirstöðvar af úthlutun 2023/2024 (t) | Samtals til ráðstöfunar 2024/2025 (t) |
|---|
| Grýtubakkahreppur | Grenivík | 65 | 96,178 | 161,178 |
Tillaga Grýtubakkahrepps (03.02.2025)Innsent bréf Grýtubakkahrepps (06.02.2025)Fundargerð sveitarstjórnar Grýtubakkahrepps (03.02.2025)Húnabyggð
| Sveitarfélag | Byggðarlag | Úthlutun 2024/2025 (t) | Eftirstöðvar af úthlutun 2023/2024 (t) | Samtals til ráðstöfunar 2024/2025 (t) |
|---|
| Húnabyggð | Blönduós | 15 | 4,153 | 19,153 |
Tillaga Húnabyggðar (11.02.2025)Fundargerð sveitarstjórnar Húnabyggðar (11.02.2025)Húnaþing vestra
| Sveitarfélag | Byggðarlag | Úthlutun 2024/2025 (t) | Eftirstöðvar af úthlutun 2023/2024 (t) | Samtals til ráðstöfunar 2024/2025 (t) |
|---|
| Húnaþing vestra | Hvammstangi | 130 | 128,838 | 258,838 |
Tillaga Húnaþings vestra (13.02.2025)Fundargerð byggðarráðs Húnaþings vestra (03.02.2025)Fundargerð sveitarstjórnar Húnaþings vestra (13.02.2025)Ísafjarðarbær
| Sveitarfélag | Byggðarlag | Úthlutun 2024/2025 (t) | Eftirstöðvar af úthlutun 2023/2024 (t) | Samtals til ráðstöfunar 2024/2025 (t) |
|---|
| Ísafjarðarbær | Flateyri | 285 | 121,913 | 406,913 |
| Hnífsdalur | 0 | 0,000 | 0,000 | |
| Ísafjörður | 195 | 15,821 | 210,821 | |
| Suðureyri | 192 | 2,546 | 194,546 | |
| Þingeyri | 275 | 29,107 | 304,107 | |
Tillaga Ísafjarðarbæjar (18.02.2025)Fundargerð Ísafjarðarbæjar (18.02.2025)Kaldrananeshreppur
| Sveitarfélag | Byggðarlag | Úthlutun 2024/2025 (t) | Eftirstöðvar af úthlutun 2023/2024 (t) | Samtals til ráðstöfunar 2024/2025 (t) |
|---|
| Kaldrananeshreppur | Drangsnes | 76 | 12,967 | 88,967 |
Tillaga Kaldrananeshrepps (17.03.2025)Fundargerð Kaldrananeshrepps (29.01.2025Langanesbyggð
| Sveitarfélag | Byggðarlag | Úthlutun 2024/2025 (t) | Eftirstöðvar af úthlutun 2023/2024 (t) | Samtals til ráðstöfunar 2024/2025 (t) |
|---|
| Langanesbyggð | Bakkafjörður | 160 | 3,881 | 163,881 |
Langanesbyggð
Þórshöfn
| 32 | 0,577 | 32,577 | |
Tillaga Langanesbyggðar (30.01.2025)Innsent bréf Langanesbyggðar (31.01.2025)Múlaþing
| Sveitarfélag | Byggðarlag | Úthlutun 2024/2025 (t) | Eftirstöðvar af úthlutun 2023/2024 (t) | Samtals til ráðstöfunar 2024/2025 (t) |
|---|
| Múlaþing | Borgarfjörður eystri | 15 | 6,073 | 21,073 |
| Djúpivogur | 285 | 0,000 | 285,000 | |
| Seyðisfjörður | 0 | 0,000 | 0,000 | |
- Ekki óskað eftir sérreglum.
Innsent bréf Múlaþings (13.02.2025)Auglýsing FiskistofuNorðurþing
| Sveitarfélag | Byggðarlag | Úthlutun 2024/2025 (t) | Eftirstöðvar af úthlutun 2023/2024 (t) | Samtals til ráðstöfunar 2024/2025 (t) |
|---|
| Norðurþing | Húsavík | 0 | 0,000 | 0,000 |
| Kópasker | 15 | 0,000 | 15,000 | |
| Raufarhöfn | 164 | 31,035 | 195,035 | |
Tillaga Norðurþings (06.03.2025)Fundargerð byggðarráðs Norðurþings (06.03.2025)Innsent bréf byggðarráðs Norðurþings (20.02.2025)Skagafjörður
| Sveitarfélag | Byggðarlag | Úthlutun 2024/2025 (t) | Eftirstöðvar af úthlutun 2023/2024 (t) | Samtals til ráðstöfunar 2024/2025 (t) |
|---|
| Skagafjörður | Hofsós | 15 | 7,272 | 22,272 |
| Sauðárkrókur | 130 | 0,292 | 130,292 | |
Tillaga Skagafjarðar (12.02.2025)Fundargerð sveitarstjórnar Skagafjarðar (12.02.2025)Athugasemdir Drangeyjar-smábátafélags Skagafjarðar (26.02.2025)Minnisblað um byggðakvóta og vinnsluskyldu (10.03.2025)Snæfellsbær
| Sveitarfélag | Byggðarlag | Úthlutun 2024/2025 (t) | Eftirstöðvar af úthlutun 2023/2024 (t) | Samtals til ráðstöfunar 2024/2025 (t) |
|---|
| Snæfellsbær | Arnarstapi | 0 | 1,479 | 1,479 |
| Hellissandur | 0 | 0,000 | 0,000 | |
| Ólafsvík | 0 | 0,000 | 0,000 | |
| Rif | 0 | 0,134 | 0,134 | |
- Tillaga að sérreglum hefur ekki borist.
Innsent bréf Snæfellsbæjar (06.02.2025)Tölvupóstur Snæfellsbæjar (03.03.2025)Strandabyggð
| Sveitarfélag | Byggðarlag | Úthlutun 2024/2025 (t) | Eftirstöðvar af úthlutun 2023/2024 (t) | Samtals til ráðstöfunar 2024/2025 (t) |
|---|
| Strandabyggð | Hólmavík | 130 | 8,515 | 138,515 |
- Ekki óskað eftir sérreglum.
Samþykkt Strandabyggðar (11.02.2025) Auglýsing FiskistofuSuðurnesjabær
| Sveitarfélag | Byggðarlag | Úthlutun 2024/2025 (t) | Eftirstöðvar af úthlutun 2023/2024 (t) | Samtals til ráðstöfunar 2024/2025 (t) |
|---|
| Suðurnesjabær | Sandgerði | 65 | 0,400 | 65,400 |
| Garður | 65 | 0,346 | 65,346 | |
Innsent bréf Suðurnesjabæjar (06.02.2025)Fundargerð Suðurnesjabæjar (05.02.2025
)
Tillaga Suðurnesjabæjar (05.02.2025
)
Súðavíkurhreppur
| Sveitarfélag | Byggðarlag | Úthlutun 2024/2025 (t) | Eftirstöðvar af úthlutun 2023/2024 (t) | Samtals til ráðstöfunar 2024/2025 (t) |
|---|
| Súðavíkurhreppur | Súðavík | 30 | 60,000 | 90,000 |
Tillaga Súðavíkurhrepps (06.03.2025)Fundargerð sveitarstjórnar Súðavíkurhrepps (14.03.2025)Fundargerð sveitarstjórnar Súðavíkurhrepps (14.02.2025)Sveitarfélagið Árborg
| Sveitarfélag | Byggðarlag | Úthlutun 2024/2025 (t) | Eftirstöðvar af úthlutun 2023/2024 (t) | Samtals til ráðstöfunar 2024/2025 (t) |
|---|
| Sveitarfélagið Árborg | Eyrarbakki | 0 | 1,950 | 1,950 |
| Stokkseyri | 30 | 26,550 | 56,550 | |
Fundargerð bæjarráðs Sveitarfélagsins Árborgar (06.02.2025)Tillaga Sveitarfélagsins Árborgar (06.02.2025)Sveitarfélagið Hornafjörður
| Sveitarfélag | Byggðarlag | Úthlutun 2024/2025 (t) | Eftirstöðvar af úthlutun 2023/2024 (t) | Samtals til ráðstöfunar 2024/2025 (t) |
|---|
| Sveitarfélagið Hornafjörður | Höfn | 0 | 0,000 | 0,000 |
- Athugasemdir ráðuneytis: Engum byggðakvóta er úthlutað til byggðarlagsins og ekki eru til ráðstöfunar eftirstöðvar byggðakvóta fyrra árs því kemur ekki til afgreiðslu á tillögum að sérreglum.
Sveitarfélagið Skagaströnd
| Sveitarfélag | Byggðarlag | Úthlutun 2024/2025 (t) | Eftirstöðvar af úthlutun 2023/2024 (t) | Samtals til ráðstöfunar 2024/2025 (t) |
|---|
| Sveitarfélagið Skagaströnd | Skagaströnd | 55 | 3,746 | 58,746 |
Tillaga Sveitarfélagsins Skagastrandar (18.02.2025)Greinargerð Sveitarfélagsins Skagastrandar (19.02.2025)Fundargerð sveitarstjórnar Sveitarfélagsins Skagastrandar (18.02.2025)Sveitarfélagið Stykkishólmur
| Sveitarfélag | Byggðarlag | Úthlutun 2024/2025 (t) | Eftirstöðvar af úthlutun 2023/2024 (t) | Samtals til ráðstöfunar 2024/2025 (t) |
|---|
| Sveitarfélagið Stykkishólmur | Stykkishólmur | 65 | 0,000 | 65,000 |
- Tillaga hefur ekki borist.
Sveitarfélagið Vogar
| Sveitarfélag | Byggðarlag | Úthlutun 2024/2025 (t) | Eftirstöðvar af úthlutun 2023/2024 (t) | Samtals til ráðstöfunar 2024/2025 (t) |
|---|
| Sveitarfélagið Vogar | Vogar | 15 | 28,000 | 43,000 |
- Tillaga hefur ekki borist.
Sveitarfélagið Ölfus
| Sveitarfélag | Byggðarlag | Úthlutun 2024/2025 (t) | Eftirstöðvar af úthlutun 2023/2024 (t) | Samtals til ráðstöfunar 2024/2025 (t) |
|---|
| Sveitarfélagið Ölfus | Þorlákshöfn | 0 | 15,086 | 15,086 |
- Tillaga hefur ekki borist.
Vesturbyggð
| Sveitarfélag | Byggðarlag | Úthlutun 2024/2025 (t) | Eftirstöðvar af úthlutun 2023/2024 (t) | Samtals til ráðstöfunar 2024/2025 (t) |
|---|
| Vesturbyggð | Bíldudalur | 15 | 34,749 | 49,749 |
| Brjánslækur | 15 | 1,808 | 16,808 | |
| Patreksfjörður | 15 | 0,000 | 15,000 | |
| Tálknafjörður | 285 | 155,408 | 440,408 | |
Tillaga Vesturbyggðar (19.02.2025)Athugasemdir Áratogs ehf. við tillögu Vesturbyggðar (26.02.2025)Vopnafjarðarhreppur
| Sveitarfélag | Byggðarlag | Úthlutun 2024/2025 (t) | Eftirstöðvar af úthlutun 2023/2024 (t) | Samtals til ráðstöfunar 2024/2025 (t) |
|---|
| Vopnafjarðarhreppur | Vopnafjörður | 54 | 51,500 | 105,500 |
Tillaga Vopnafjarðarhrepps (20.02.2025)Fundargerð sveitarstjórnar Vopnafjarðarhrepps (20.02.2025)
Síðast uppfært 28. mars 2025.