Visthönnun vöru
Markmið laga um visthönnun vöru er tengist orkunotkun, er að stuðla að visthönnun vöru sem tengist orkunotkun með það að markmiði að efla hönnun, framleiðslu, markaðssetningu og notkun á vörum sem eru umhverfisvænar, með minni orkunotkun og umhverfisálag að leiðarljósi. Lögin skulu tryggja samræmi í visthönnun innan Evrópska efnahagssvæðisins og frjálst flæði á slíkum vörum á sameiginlegum innri markaði Evrópska efnahagssvæðisins.
Lögin gilda um vörur sem tengjast orkunotkun og fjalla um hvaða kröfur þær skulu uppfylla svo að setja megi þær á markað og/eða taka í notkun hér á landi og veita lagastoð fyrir nánari reglum sem settar verða svo að vara sem tengist orkunotkun megi fara á markað og vera tekin í notkun hér á landi.
Mannvirkjastofnun fer með framkvæmd laganna.
Sjá einnig:
Lög og reglugerðir
Lög nr. 42/2009 um visthönnun vöru er tengist orkunotkun.Reglugerðir sem settar hafa verið á grundvelli laganna; sjá 17. og 18. gr. (upptalning hér ekki tæmandi):
Kröfur varðandi visthönnun þurrkara til heimilisnotaKröfur varðandi visthönnun stefnuvirkra ljósapera, ljósdíóðupera og tengds búnaðarKröfur varðandi visthönnun stefnuvirkra ljósapera, ljósdíóðupera og tengds búnaðarLitlir, meðalstórir og stórir aflspennaKröfur varðandi visthönnun tölva og netþjónaKröfur varðandi visthönnun ryksugnaKröfur varðandi visthönnun bakaraofna, helluborða og gufugleypa til heimilisnotaKröfur varðandi visthönnun loftræstieiningaKröfur varðandi visthönnun katla fyrir eldsneyti í föstu formiKröfur varðandi visthönnun staðbundinna rýmishitaraKröfur varðandi visthönnun kæli- eða frystiskápa, sem notaðir eru í atvinnuskyni, blásturskæliskápa og blástursfrystiskápa, þjöppusamstæðna með eimsvala og vökvakæla fyrir vinnslukerfi