Opinber stefna um fjármálastöðugleika
Fjármálastöðugleikaráð er formlegur samstarfsvettvangur stjórnvalda um fjármálastöðugleika og starfar samkvæmt lögum nr. 66/2014. Tilgangur stefnu um fjármálastöðugleika er að skilgreina áherslur stjórnvalda sem stuðla að varðveislu viðnámsþróttar fjármálakerfisins, draga úr líkum á að fjármálastöðugleika sé raskað og tryggja skjót og samhæfð viðbrögð komi til áfalla. Stjórnvöld sem fara með málefni fjármálastöðugleika bera ábyrgð á því að umgjörð fjármálakerfisins og þær kröfur sem gerðar eru til þess séu í samræmi við þessa stefnu.
Rík almannagæði felast í fjármálastöðugleika
Fjármálastöðugleiki ríkir þegar fjármálakerfið getur sinnt meginhlutverki sínu, miðlun fjármagns, greiðslumiðlun og dreifing áhættu, með viðhlítandi hætti og það býr yfir nægum viðnámsþrótti til að standast áföll og ójafnvægi án þess að veruleg neikvæð áhrif hljótist af fyrir raunhagkerfið. Lykilatriði hvað það varðar er að vinna gegn uppbyggingu kerfisáhættu.
Í fjármálastöðugleika felast rík almannagæði enda getur óstöðugleiki í fjármálakerfinu haft víðtæk og langvarandi efnahagsáhrif. Er það ekki síst raunin þegar hagvöxtur eða hækkun eignaverðs eru drifin áfram af óhóflegum útlánavexti eða skuldasöfnun. Fjármálakerfi sem býr yfir góðum viðnámsþrótti er betur í stakk búið til að viðhalda lánsfjárframboði og styðja við efnahagsumsvif þegar syrtir í álinn.
Íslenskt efnahagslíf er útsett fyrir óvæntum áföllum vegna smæðar sinnar, grunnra fjármálamarkaða og einsleitni fjármálakerfisins. Af þeim sökum er sérlega mikilvægt að huga að ytri stöðu þjóðarbúsins og tryggja nægjanlegan gjaldeyrisforða. Jafnframt þarf að huga að viðnámsþrótti kerfislega mikilvægra fjármálafyrirtækja, bæði gagnvart fjárhagslegri og rekstrarlegri áhættu. Í því skyni er mikilvægt að kerfislega mikilvæg fjármálafyrirtæki hafi að jafnaði yfir nægu og nýtanlegu eigin fé að ráða, búi við takmarkaða endurfjármögnunaráhættu og að nægur viðbúnaður sé fyrir hendi komi til alvarlegra rekstrartruflana.
Megináherslur fyrir fjármálastöðugleika
Við mat á fjármálastöðugleika þarf einkum að líta til tveggja sjónarmiða. Annars vegar þarf að takmarka uppbyggingu kerfisáhættu til að draga úr líkum á ójafnvægi og veikleikum sem gætu annars ógnað fjármálastöðugleika. Hins vegar þarf að stuðla að nægum viðnámsþrótti þannig að fjármálakerfið geti staðist áföll og áfram sinnt meginhlutverkum sínum.
Uppsöfnun kerfisáhættu
- Til að sporna gegn uppbyggingu kerfisáhættu leggur fjármálastöðugleikaráð áherslu á að:
- Vinna gegn óhóflegum vexti útlána og skuldsetningu einkageirans.
- Stuðla að traustri ytri stöðu þjóðarbúsins og fylgjast með erlendri stöðu og greiðslujöfnuði, þar á meðal fjármagnsflæði til og frá landinu og áhrifum þess á gjaldeyrismarkað.
- Vakta og meta áhættu sem kann að myndast utan hefðbundins bankakerfis og getur haft kerfisleg áhrif.
- Fylgjast með þróun fjármögnunarskilyrða með það að markmiði að draga úr líkum á röskun sem getur haft víðtæk og skyndileg áhrif á fjármálakerfið.
- Greina og bregðast við merkjum um ósjálfbæra þróun eignaverðs og uppsöfnun áhættu á eignamörkuðum eftir því sem við á.
- Takmarka veikleika sem geta aukið kerfisáhættu, þar á meðal samþjöppun, krosseignatengsl, skaðlega hvata og freistnivanda stjórnenda.
Viðnámsþróttur fjármálakerfisins
- Til að styrkja viðnámsþrótt fjármálakerfisins leggur fjármálastöðugleikaráð áherslu á að:
- Fjármálafyrirtæki, sér í lagi kerfislega mikilvægir bankar, búi yfir nægu og nýtanlegu eigin fé, traustri lausafjárstöðu og stöðugri fjármögnun.
- Takmarka gjaldeyrisáhættu og annað ójafnvægi í rekstri fjármálafyrirtækja.
- Stuðla að virku og öruggu fjármálakerfi, þ.m.t. greiðslumiðlun í landinu og við útlönd, þannig að ávallt séu til staðar virkar greiðsluleiðir og að viðskipti almennings og fyrirtækja geti gengið hnökralaust fyrir sig.
- Stuðla að öflugum rekstrarlegum viðnámsþrótti og samhæfðum viðbúnaði stjórnvalda og fjármálafyrirtækja, meðal annars gagnvart netógnum og öðrum rekstraráföllum.
- Greina ytri áhættuþætti þjóðarbúsins, sem geta haft áhrif á fjármálastöðugleika og efnahagsþróun, með tímanlegum hætti.
Hliðaráhrif stefnu um fjármálastöðugleika
Stefna stjórnvalda um að efla viðnámsþrótt fjármálakerfisins getur leitt af sér kostnað fyrir samfélagið, einkum til skemmri tíma litið. Beiting þjóðhagsvarúðartækja getur til að mynda haft áhrif á lánsfjárframboð, fjármögnunarkjör og aðgengi að lánsfé. Þá getur verið erfitt að greina með fullri vissu á milli eðlilegrar þróunar útlána og skuldsetningar annars vegar og uppsöfnunar kerfisáhættu hins vegar. Ákvörðun um beitingu þjóðhagsvarúðartækja felur því óhjákvæmilega í sér mat á ávinningi af auknum fjármálastöðugleika annars vegar og mögulegum kostnaði og hliðaráhrifum hins vegar.
Við framkvæmd þjóðhagsvarúðarstefnu skal leitast við að lágmarka kostnað og hliðaráhrif sem af henni geta leitt að teknu tilliti til markmiðsins um að stuðla að fjármálastöðugleika. Endurspeglast þessi stefnumörkun meðal annars í því að í lögum er kveðið á um að sérstakt tillit skuli tekið til kaupenda fyrstu fasteignar við ákvörðun lánþegaskilyrða.
Gagnsæi og upplýsingagjöf
Gagnsæ og vönduð greining á þróun og horfum í fjármálakerfinu er mikilvæg forsenda þess að stjórnvöld, markaðsaðilar og almenningur geti metið áhættu og brugðist tímanlega við. Stjórnvöld skulu því stuðla að reglubundinni miðlun upplýsinga um kerfisáhættu, mati á viðnámsþrótti fjármálakerfisins og forsendur helstu ákvarðana á sviði fjármálastöðugleika.
Beita skal þjóðhagsvarúðartækjum með markvissum hætti og meta virkni þeirra, áhrif og árangur. Skýr og fyrirsjáanleg upplýsingagjöf um mat á kerfisáhættu og beitingu þjóðhagsvarúðartækja er til þess fallin að auka skilvirkni, styrkja traust til stjórnvalda og stuðla að fjármálastöðugleika.
Þegar fjármálastöðugleika er ógnað eða hætta er á atburðum sem geta valdið umtalsverðum smitáhrifum eða tjóni á fjármálamarkaði er Seðlabanka Íslands skylt að upplýsa fjármála- og efnahagsráðherra um það án tafar. Við slíkar aðstæður ber formanni fjármálastöðugleikaráðs jafnframt að halda ríkisstjórninni upplýstri og formönnum stjórnmálaflokka á Alþingi, sem ekki eru jafnframt ráðherrar, um störf ráðsins, viðbúnað stjórnvalda og viðbragðsáætlanir. Enn fremur ber ráðinu að upplýsa efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis um helstu aðgerðir og ráðstafanir við slíkar aðstæður.
Hlutverk og ábyrgð
Hlutverk og ábyrgð fjármálastöðugleikaráðs
Samkvæmt lögum nr. 66/2014 er hlutverk fjármálastöðugleikaráðs tvíþætt. Annars vegar er ráðið vettvangur samráðs, upplýsingaskipta og stefnumótunar vegna fjármálastöðugleika. Verkefni ráðsins varðandi það hlutverk eru að:
- Móta opinbera stefnu um fjármálastöðugleika.
- Vakta efnahagslegt ójafnvægi, áhættu í fjármálakerfinu, óæskilega hvata og aðrar aðstæður sem eru líklegar til að raska fjármálastöðugleika.
- Meta árangur af beitingu þjóðhagsvarúðartækja.
Hins vegar samhæfir ráðið viðbúnað opinberra aðila þegar fjármálastöðugleika er raskað. Vegna þessa fundar ráðið sérstaklega þegar slíkar aðstæður skapast eða hætta er á atburðum sem geta valdið umtalsverðum smitáhrifum eða tjóni á fjármálamarkaði. Þá fjallar ráðið um aðgerðir eða ráðstafanir sem nauðsynlegt kann að vera að grípa til.
Í störfum sínum byggir fjármálastöðugleikaráð einkum á greiningu og tillögum Seðlabanka Íslands.
Hlutverk og ábyrgð Seðlabanka Íslands
Seðlabanki Íslands skal stuðla að fjármálastöðugleika og traustri og öruggri fjármálastarfsemi, sbr. lög nr. 92/2019 um Seðlabanka Íslands. Þá skal bankinn stuðla að virku og öruggu fjármálakerfi, þ.m.t. greiðslumiðlun í landinu og við útlönd.
Seðlabankinn hefur víðtækar heimildir til að stuðla að viðnámsþrótti fjármálakerfisins og til að bregðast við ef hætta er á fjármálaóstöðugleika. Fjármálastöðugleikanefnd Seðlabanka Íslands tekur ákvarðanir um beitingu þjóðhagsvarúðartækja í þeim tilgangi að efla og varðveita fjármálastöðugleika.
Ákvarðanir fjármálastöðugleikanefndar skulu byggja á vönduðu mati á ástandi og horfum í fjármálakerfinu þar sem meðal annars er horft til þess að ákvarðanir:
- Séu skilvirkar, gagnsæjar og hafi skýran tilgang.
- Taki mið af umfangi kerfisáhættu og auki viðnámsþrótt.
- Lágmarki þjóðhagslegan kostnað að teknu tilliti til markmiða.
Komi til rekstrarerfiðleika hjá lánastofnunum bregst Seðlabankinn tímanlega við og beitir þeim heimildum sem honum eru fengnar samkvæmt lögum.
Samþykkt á fundi fjármálastöðugleikaráðs 8. október 2026.
Fjármálastöðugleikaráð
Var efnið hjálplegt?