Framkvæmdaáætlun í kynjajafnréttismálum fyrir árin 2026-2029

Mælaborð

Alþingi samþykkti í upphafi árs 2026 þingsályktunartillögu um framkvæmdaáætlun í kynjajafnréttismálum fyrir árin 2026-2029. Framkvæmdaáætlunin inniheldur 41 aðgerð í sex undirflokkum, en flokkarnir skiptast í eftirfarandi kafla, kyn, áhrif og þátttaka, kynjuð tölfræði og mælaborð, jafnrétti á vinnumarkaði og kynbundinn launamunur, kynbundið og kynferðislegt ofbeldi, jafnrétti í menntun og íþrótta- og æskulýðsstarfi og alþjóðastarf.

Mælaborðið sýnir framgang aðgerða á myndrænan hátt. Litaval byggist á huglægu og hlutlægu mati á stöðu aðgerðanna og er unnin í samstarfi við tengiliði aðgerða sem eru ráðuneytin sem bera ábyrgð á framkvæmd einstakra aðgerða.

Mælaborðið er uppfært tvisvar á ári.