Hönnun og arkitektúr

Hönnun og arkitektúr

Meginmarkmið stjórnvalda á sviði menningar er að jafna og bæta tækifæri til nýsköpunar og atvinnusköpunar í menningarstarfi, listum og skapandi greinum. Meginmarkmið á sviði nýsköpunar er að hér þrífist alþjóðlega samkeppnishæft umhverfi rannsókna og nýsköpunar þar sem áhersla er lögð á gæði, samstarf og árangur og skilvirkni í opinberu stuðningskerfi. Málefni hönnunar og arkitektúrs þvera málefnasvið menningar og nýsköpunar en framtíðarsýn stefnumótunar á því sviði er að aðferðafræði hönnunar og arkitektúrs sé nýtt markvisst til að auka lífsgæði á Íslandi með áherslu á verðmætasköpun og sjálfbærni fyrir samfélagið í heild.

Stefna hönnunar og arkitektúrs

Stefnumótun í málefnum hönnunar og arkitektúrs til 2030 – Útlínur framtíðar, var kynnt í febrúar 2023. Leiðir að meginmarkmiðum stefnunnar tengjast fimm áherslusviðum sem nánar er fjallað um í stefnuskjalinu; verðmætasköpun, menntun framsækinna kynslóða, hagnýtingu hönnunar sem breytingaafls, sjálfbærri innviðauppbyggingu og kynningu á íslenskri hönnun og arkitektúr. Stefnan var mótuð í samvinnu við fjölda samstarfsaðila, hag- og fagaðila gegnum Miðstöð hönnunar og arkitektúrs. Stefnunni verður framfylgt með tveimur aðgerðaáætlunum. Sjá nánar í [stefnuskjali](https://www.stjornarradid.is/library/04-Raduneytin/Menningar--og-vidskiptaraduneytid/Útlínur framtíðar - Stefna hönnunar og arkitektúrs til 2030).

Miðstöð hönnunar og arkitektúrs

Miðstöð hönnunar og arkitektúrs var komið á fót að frumkvæði stjórnvalda árið 2008 til að efla íslensk hönnun og arkitektúr sem listgreinar og grundvöll þeirra til atvinnusköpunar. Miðstöðin, sem rekin er sem eignarhaldsfélag, er beintengd grasrót og atvinnulífi hönnunargreina en að henni standa níu fagfélög með alls 1200 félaga sem eiga hana og reka með stuðningi stjórnvalda í gegnum menningar- og viðskiptaráðuneyti. Hlutverk miðstöðvarinnar hefur vaxið í takt við vöxt hönnunargreina undanfarinn áratug. Sjá nánar á vef miðstöðvarinnar.

Hönnunarsjóður

Hönnunarsjóður veitir styrki til margvíslegra verkefna á sviði hönnunar og arkitektúrs; þróunar og rannsókna, verkefna og markaðsstarfs auk ferðastyrkja. Hlutverk sjóðsins er að efla þekkingu, atvinnu- og verðmætasköpun á sviðum hönnunar og arkitektúrs með fjárhagslegum stuðningi. Hönnunarsjóður stuðlar einnig að auknum útflutningi íslenskrar hönnunar með því að styrkja kynningar- og markaðsstarf erlendis. Úthlutað er úr sjóðnum tvisvar ár hvert. Stjórn Hönnunarsjóðs metur styrkhæfi umsókna og ákveður afgreiðslu þeirra. Sjóðnum stýrir fimm manna stjórn sem skipuð er til þriggja ára í senn. Sjá nánar á vef Hönnunarsjóðs.

Aðgerðaáætlun í málefnum hönnunar og arkitektúrs fyrir árin 2023–2026

Þingsályktun um aðgerðaáætlun í málefnum hönnunar og arkitektúrs var samþykkt 30. maí 2023. Hér fyrir neðan má sjá yfirlit yfir aðgerðir og framvindu þeirra.
Veldu ráðuneyti
Veldu stöðu
Sýni 1-14 af 14 niðurstöðum
Verkefni
Ráðuneyti
Staða verkefnis
Aukið framboð náms og endurmenntunar í hönnunargreinum
menningar- og viðskiptaráðuneytið
Hafið
Aukið vægi hönnunar í útboðum og samkeppnum
menningar- og viðskiptaráðuneytið
Hafið
Aukning hlutar hönnuða í úthlutun listamannalauna
menningar- og viðskiptaráðuneytið
Hafið
Efling Hönnunarsjóðs
menningar- og viðskiptaráðuneytið
Komið vel á veg
Fræðsla um höfundarétt og hönnunarvernd
menningar- og viðskiptaráðuneytið
Hafið
Heildstæð stefnumótun í mannvirkjagerð
innviðaráðuneytið
Undirbúningur hafinn
Lög um málefni hönnunar og arkitektúrs
menningar- og viðskiptaráðuneytið
Ekki hafið
Miðlægur rannsóknavettvangur fyrir innviði
innviðaráðuneytið
Undirbúningur hafinn
Safnafræðsla í Hönnunarsafni Íslands
menningar- og viðskiptaráðuneytið
Lokið
Samfélagsleg nýting hönnunardrifinnar nýsköpunar
menningar- og viðskiptaráðuneytið
Undirbúningur hafinn
Skilgreining mælikvarða og miðlun virðisauka hönnunar
menningar- og viðskiptaráðuneytið
Undirbúningur hafinn
Verndun, miðlun og rannsóknir á menningararfi íslensks arkitektúrs
menningar- og viðskiptaráðuneytið
Hafið
Virkjun hönnunardrifinnar nýsköpunar
menningar- og viðskiptaráðuneytið
Undirbúningur hafinn
Þátttaka í Feneyjatvíæringnum í arkitektúr
menningar- og viðskiptaráðuneytið
Undirbúningur hafinn