Vinnum gullið - ný stefna í afreksíþróttum á Íslandi
Mennta- og barnamálaráðuneytið hélt ráðstefnuna Vinnum gullið – ný stefna í afreksíþróttum á Íslandi mánudaginn, 20. nóvember 2023 í Silfurbergi í Hörpu. Á ráðstefnunni voru kynnt áform um eflingu afreksíþróttastarfs á Íslandi með bættri aðstöðu, stuðningi og réttindum fyrir afreksíþróttafólk.
Upptaka
Vel á fjórða hundrað manns sóttu ráðstefnuna og komu um tvö þúsund inn á streymið. Mennta- og barnamálaráðuneytið safnaði spurningum þátttakenda og niðurstöðum úr hópvinnu sem innlegg í vinnu starfshóps um stöðu og réttindi afreksíþróttafólks.
Dagskrá
Dagskrá ráðstefnuErindi
Hér eru birtar glærur frá ráðstefnunni (pdf). Kynningum með myndefni eingöngu er sleppt og vísað á streymið.
Vésteinn Hafsteinsson, afreksstjóri ÍSÍ og formaður starfshóps um stöðu og réttindi afreksíþróttafólks
Vinnum gullið – ný stefna í afreksíþróttum á Íslandi
Guðmunda Ólafsdóttir, framkvæmdastjóri Íþróttabandalags Akraness
Svæðisstefna og nýsköpun í afreksmálum
Dr. Erlingur Jóhannsson, prófessor
Afreksmiðstöð – TEAM Iceland
Pia Mørk Andreassen, svæðisstjóri
Afreksíþróttamiðstöð Noregs í Bergen
Hér eru birtar niðurstöður hópvinnu á ráðstefnunni:
1. Spurning - Nefnið þau þrjú atriði sem sveitarfélög ættu að einblína á í eflingu á íþróttastarfi í nærumhverfi sínu2. Spurning - Nefnið þrjú atriði sem atvinnulífið gæti komið að til eflingar afreksíþróttastarfs á Íslandi3. Spurning - Hvernig geta fagaðilar frá Afreksmiðstöð - Team Iceland eflt afreksíþróttir á Íslandi? Hver eru þrjú mikilvægustu atriðin?4. Spurning - hvernig getur bætt samvinna íþróttafélaga, skóla og sveitarfélaga á Íslandi leitt til enn betri árangurs í íþróttum?