Viðurkenning erlendrar menntunar
Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið fer með ábyrgð á málaflokknum viðurkenning faglegrar menntunar og hæfis til starfa hér á landi skv. forsetaúrskurði um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands nr. 5/2025.
Þau sem óska eftir viðurkenningu á menntun til starfa hér á landi geta leitað svara á þjónustugáttinni Ísland.is.
ENIC-NARIC skrifstofan liðsinnir við akademískt mat á námi - www.enicnaric.is. Skrifstofan veitir einstaklingum, háskólum, vinnuveitendum, fagfélögum og stofnunum upplýsingar um prófgráður, menntakerfi og matsferli í samræmi við þær matsaðferðir sem þróaðar hafa verið af ENIC og NARIC samstarfsnetunum. Skrifstofan tekur einnig við og afgreiðir umsóknir um viðurkenningu menntunar og starfsreynslu iðnaðarmanna sem koma erlendis frá.