Utankjörfundaratkvæðagreiðslur erlendis

Kosning utan kjörfundar erlendis fer fram hjá:

  • Sendiráðum Íslands og aðalræðisskrifstofum
  • Fastanefndum Íslands hjá alþjóðastofnunum
  • Ræðismönnum Íslands samkvæmt nánari ákvörðun utanríkisráðuneytisins.

Kjósendum er ráðlagt að kynna sér opnunartíma hjá sendiskrifstofum og kjörræðismönnum.

Athygli er vakin á því að ef kjósandi kýs utan kjörfundar ber hann sjálfur ábyrgð á því að koma atkvæði sínu til skila. Kjósandi getur beðið kjörstjóra um að setja atkvæði í almennan póst, en það tryggir ekki að atkvæðið berist í tæka tíð.

Nánari upplýsingar um framkvæmd utankjörfundaratkvæðagreiðslu má finna á síðu Landskjörstjórnar og í kosningalögum nr. 112/2021 kafli XII.