Styrkt verkefni

Þróunarlönd kalla eftir auknum fjárfestingum einkageira í atvinnu- og verðmætasköpun, þar sem lausnir og sérþekking fyrirtækja geta með áhrifamiklum hætti stuðlað að framþróun innan þeirra. Þróun á heimsvísu er sú að einkageirinn kemur sífellt sterkar inn og er orðinn jafn stór opinbera geiranum í framlögum til þróunarsamvinnu. Í mörgum tilfellum horfir einkageirinn til þróunarlanda sem hratt vaxandi framtíðarmarkaða.

Öll íslensk fyrirtæki sem eru opinberlega skráð geta sótt um styrk í Heimsmarkmiðasjóð atvinnulífs um þróunarsamvinnu. Verkefni þurfa að vera unnin í samvinnu við fyrirtæki, stofnun eða stjórnvöld í samstarfslöndum Íslands. Sjá lista yfir samstarfslönd.

Fleiri en eitt íslenskt fyrirtæki geta tekið höndum saman eða átt samstarf við félagasamtök, háskóla eða aðra slíka aðila.

Fyrirtæki geta með þróunarsamstarfsverkefnum stutt við framgang heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun.

Í samstarfi við Festu, miðstöð um samfélagslega ábyrgð hefur verið hönnuð verkfærakista fyrir fyrirtæki sem vilja stuðla að heimsmarkmiðunum.

Yfir 40 fyrirtæki hafa fengið styrk úr Heimsmarkmiðasjóði atvinnulífs. Flest hafa fengið stóran styrk allt að 200.000 evrur en þriðjungur til forkönnunarverkefna sem almennt eru 2 m.kr. Um helmingur þessara verkefna koma til framkvæmda í fátækustu ríkjum heims samkvæmt skilgreiningu Þróunarsamvinnunefndar OECD (Least Developed Countries). Um er að ræða fjölbreytt ráðgjafaverkefni á sviði orku- og jarðhitamála, fiskveiði og fiskveiðistjórnunar, fjármálaþjónustu, heilbrigðisþjónustu, laga- og reglugerðaskrifa, matvælaframleiðslu og skapandi greina.

Nánar um fyrirtæki og verkefni hér að neðan.

Reynsla áveitunnar

Reynsla áveitunnar

Reynsla BBA

Listi yfir verkefni styrkt af Heimsmarkmiðasjóði atvinnulífs um þróunarsamvinnu

FyrirtækiHeiti verkefnisUpphæð (ISK)LandÁr
Geotropy ehf.Uppsetning jarðvarmaknúinna kæligeymslna í Norðvesturhluta Himalayahéraðs.30.000.000Indland2025
Laufið ehf.Stuðningur við lítil og meðalstór fyrirtæki við innleiðingu sjálfbærnistaðla.30.000.000Kenía2025
Laki Power ehf.Aukin afkastageta og áreiðanleiki raforkukerfisins í Úkraínu19.310.000Úkraína2025
Anna Rósa Grasalæknir ehf.Bætt heilsa flóttakvenna með notkun jurta16.705.480Úganda2024
Pólar toghlerar ehf.Nútímavæðing fiskveiða í Kenía26.398.800Kenía2024
Warm heart ehf.Markaðssetning á malavísku kaffi30.000.000Malaví2024
Hananja 2Rephaiah verkefnið 2. hluti29.705.200Malaví2024
Íslenski sjávarklasinnÞróun sjávarklasa á Kíribati26.548.694Kíribati2024
Kerecis 2Íslenskt sáraroð til meðhöndlunar brunasára hjá börnum24.210.400Afganistan2024
Vaxa technologiesNæringaraukandi fæðuverkefni í Tansaníu30.000.000Tansanía2024
As we growValdefling handverkskvenna í Perú28.660.000Perú2023
Creditinfo Group hf.Aukið gagnsæi fjárhagsupplýsinga til að fyrirbyggja peningaþvætti29.060.000Kenía, Úganda, Fílabeinsströndin, Senegal2023
Tern SystemsFlugumsjónarkerfi fyrir minni flugvelli29.060.000Eþíópía2023
VerkísJarðhitaverkefni á Indlandi8.718.000Indland2023
Fisheries Technologies ehf.Carice, innleiðing á TFM upplýsingakerfi14.000.000Karíbahafseyjar, Saint Kitts og Nevis2023
VerkísGeothermal Ukraine9.156.850Úkraína2023
Mar AdvisorsBætt aðgengi sjávarfangs frá Víetnam að mörkuðum í Evrópu2.000.000Víetnam2022
RetinaRiskBylting í eftirliti augnskimunar til að forða blindu á Indlandi10.000.000Indland2022
Reykjavik GeothermalStofnun jarðhitarannsóknarstofu í Eþíópíu27.900.000Eþíópía2022
VerkísBein jarðhitanotkun í Lake Assai, Djíbútí4.000.000Djíbútí2022
ÖssurÞróunaraðstoð til handa fórnarlömbum stríðasátaka í Úkraínu27.900.000Úkraína2022
66 Norður og UN WomenAtvinnuþróun, valdefling flóttakvenna og hringrásarhagkerfi26.924.000Tyrkland/ Flóttamannamiðstöð kvenna2022
BBA//Fjeldco og IntelleconFjölnýting jarðvarma í Kenía: Aukið matvælaöryggi5.415.000Kenía2022
EcoscopyÞróunarfræ - Skalanlegar sólarorkueiningar í ræktarlandi2.000.000Úganda2022
Pólar toghlerar ehf.Hringrásarhagkerfi endurvinnsla plast úrgangs2.000.000Senegal2022
Pólar toghlerar ehf. og Kaldara GroupHringrásarhagkerfi og nútímavæðing fiskveiða í Kenía6.000.000Kenía2022
Áveitan ehf.Sjálfbært samfélag með aðgengi að vatni29.120.000Búrkína Fasó2021
BBA//Fjeldco ehf.Skrif á reglugerðum v/ endurnýjanlegra orkugjafa6.383.000Kómoreyjar2021
Björn Guðmundsson,Þróunarfræ - Örryggi í flugsamgöngum2.000.000Kongó2021
GEG ehf.Notkun jarðvarma við kæligeymslur fyrir epli14.560.000Indland2021
Geymd ehf.Nýjung hönnun og uppbygging. Snjallmannvirkja2.000.000Indland og Kenía2021
Hananja ehf.Rephaiah verkefnið26.875.000Malaví2021
Intellecon ehf.Bætt fiskveiðistjórnun í Viktoríuvatni28.073.000Úganda2021
KerecisSáraumbúðir til bágstaddra í Kaíró5.896.000Egyptaland2021
T16 ehf.Skapandi greinar fyrir betri atvinnutækifæri2.000.000Gínea Bissá2021
Atmonia ehf.Sjálfbær framleiðsla á nituráburði2.000.000Kamerún2020
Fisheries Technologies ehf.Carice, innleiðing á TFM upplýsingakerfi14.360.000St. Lúcía og Dóminíka2020
Ocean Excellence ehf.Kælitækni fyrir smábátaútgerðir2.000.000Sierra Leóne2020
Aurora Seafood ehf.Aukin hagsæld með nýtingu vannýttra auðlinda úr sjó2.000.000Gínea2019
Creditinfo Group hf.Aðgengi lítilla fyrirtækja að fjármálaþjónustu23.345.000Fílabeinsströndin og Senegal2019
Marel hf.Bætt gæði í vinnslu pangasius7.000.000Víetnam2019
ThoregsSkyrgerð próteinvörur og mjólkurvinnsla5.000.000Indland2019