Flóttafólk
Þau sem sæta ofsóknum í heimalandi sínu eða eiga þar á hættu dauðarefsingu, pyndingar eða ómmannúðlega eða vanvirðandi meðferð eða refsingu geta sótt um vernd hér á landi. Mismunandi reglur gilda um þjónustu til þeirra sem fengið hafa vernd hér á landi:
Flóttafólk sem kemur til landsins í boði stjórnvalda (kvótaflóttafólk)
- Flóttafólk sem kemur til landsins í boði stjórnvalda hefur stundum verið kallað kvótaflóttafólk. Stjórnvöld móttökuríkja ákveða þá sjálf hversu mörgum flóttamönnum þau vilja taka á móti.
Flóttafólk sem kemur á eigin vegum til landsins (umsækjendur um alþjóðlega vernd)
- Útlendingastofnun annast afgreiðslu umsókna um alþjóðlega vernd á fyrsta stjórnsýslustigi en umsóknir eru lagðar fram hjá lögreglu. Sjá nánar hvaða reglur gilda um málefni umsækjenda um alþjóðlega vernd á vef Útlendingastofnunar.
- Flóttafólk sem fengið hefur stöðu sína viðurkennda eftir umsókn um alþjóðlega vernd hefur frjálst val um búsetu og fær þjónustu hjá því sveitarfélagi þar sem það hefur lögheimili. Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið hefur gefið út leiðbeinandi reglur fyrir sveitarfélög um móttökuþjónustu og aðstoð við félagslega þátttöku flóttafólks, dags. 28. maí 2014.
Móttaka flóttafólks
Sjá sérstaka undirsíðu hér á vefnum um móttöku flóttafólks.
Sjá einnig:
Lög og reglur
ÚtlendingalögViðmiðunarreglur flóttamannanefndar um móttöku og aðstoð við hópa flóttafólks, dags. 10. maí 2013
Leiðbeinandi reglur fyrir sveitarfélög um móttökuþjónustu og aðstoð við félagslega þátttöku flóttafólks, dags. 28. maí 2014Samningur Sameinuðu þjóðanna um réttarstöðu flóttamanna