Sáttastörf í vinnudeilum
Um sáttastörf í vinnudeilum er að fjallað í lögum um stéttarfélög og vinnudeilur.
Ráðherra skipar ríkissáttasemjara til fimm ára í senn. Ríkissáttasemjari annast sáttastörf í vinnudeilum milli launafólks og félaga þess annars vegar og atvinnurekenda og félaga þeirra hins vegar. Jafnframt skal hann fylgjast með ástandi og horfum í atvinnulífi og á vinnumarkaði um allt land, þróun kjaramála og atriðum sem valdið gætu ágreiningi í samskiptum samtaka atvinnurekenda og stéttarfélaga. Samkvæmt lögunum ber ríkissáttasemjara að halda skrá yfir gildandi kjarasamninga án tillits til þess hvar á landinu þeir eru gerðir.
Sjá einnig:
Yfirlit um lög
Yfirlit um lög er varða vinnurétt er að finna á vef Alþingis
Lög á sviði vinnumálaLög um stéttarfélög og vinnudeilur nr. 80/1938Lög um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins nr. 70/1996