Vönduð stefnumótun
Hagnýtar leiðbeiningar, sniðmát og verkfæri
Hér er birt fræðsluefni ásamt hagnýtum gögnum sem styðja við undirbúning, mótun, innleiðingu og endurmat opinberrar stefnu. Markmiðið er að auðvelda starfsfólki að finna viðeigandi leiðbeiningar og verkfæri og nýta þau við stefnumótunarvinnu.
Stefnumótunarverkefni eru ólík að eðli og umfangi og þurfa ekki öll að fylgja nákvæmlega sama ferli. Umfang greiningar, samráðs og formlegrar málsmeðferðar þarf því hverju sinni að taka mið af viðfangsefninu og þeim árangri sem stefnt er að. Efnið er leiðbeinandi um vinnulag og verkfæri og kemur ekki í stað krafna sem leiða af lögum eða reglum.
Samráð og þátttaka, fjármögnun, forgangsröðun og eftirfylgni eru þverlægir þættir sem huga þarf að á ólíkum stigum stefnumótunarferlisins.
Tilefni stefnumótunar getur meðal annars verið pólitískar áherslur, markmið stjórnvalda, fyrirhugaðar umbætur eða breytingar á aðstæðum. Við upphaf stefnumótunar þarf að liggja fyrir hver ber ábyrgð og hefur umboð til að leiða vinnuna. Umboðið getur meðal annars komið fram í erindisbréfi eða öðrum fyrirmælum.
Í upphafi er mikilvægt að afmarka verkefnið og skilgreina lykilþætti þess, svo sem markmið, umfang, þátttakendur, tímaramma og aðföng. Einnig þarf að ákveða hver stýrir verkefninu og hvort skipa þurfi starfshóp. Skýr afmörkun skapar sameiginlegan skilning meðal þeirra sem koma að verkefninu, auðveldar framkvæmd, eykur gagnsæi og styrkir eftirfylgni á líftíma verkefnisins. Verkefnaáætlun getur nýst til að halda utan um þessa þætti.
Áður en vinnan hefst er jafnframt æskilegt að kanna hvaða stefnur, greiningar og gögn liggja þegar fyrir.
Við afmörkun verkefnis þarf að leggja fyrsta mat á fjárhagsleg áhrif þess. Meta þarf hvort verkefnið geti kallað á ný eða breytt útgjöld, fjárfestingu, innkaup eða aðrar skuldbindingar og hvernig það tengist gildandi fjármálaáætlun og fjárlögum. Umfang matsins fer eftir eðli og stærð verkefnisins.
Snemma í ferlinu þarf jafnframt að huga að þátttöku og samráði við hagsmunaaðila og almenning. Þetta má gera með hagsmunaaðilagreiningu sem getur nýst til að greina hvaða aðila málið varðar, hvar mikilvæg þekking liggur og hvernig haga megi samráði. Greiningin getur verið misítarleg eftir umfangi verkefnisins.
Sniðmát og leiðbeiningarit
- Verkefnastjórnun við stefnumótun – leiðbeiningarit
- Handbók um verkefnastjórnun
- Handbók um opinbera stefnumótun og áætlanagerð
- Verkefnaaáætlun - sniðmát
- Hagsmunaaðilagreining - sniðmát
- Mat á fjárhagsáhrifum - gátlisti
Vinnublöð og verkfæri
Áður en stefna er mótuð þarf að liggja fyrir nægilega skýr mynd af viðfangsefninu, núverandi stöðu og þeim leiðum sem til greina koma til greina. Í þessum áfanga er gögnum safnað og þau greind, helstu viðfangsefni skilgreind og mögulegar leiðir eða áherslur við úrlausn þeirra bornar saman. Sniðmátið og leiðbeiningar Stöðumat og valkostir ásamt tengdum vinnublöðum styðja við þessa vinnu.
Í stöðumati er fjallað um viðfangsefnið og núverandi stöðu þess, fyrirliggjandi gögn og tölfræði, helstu áskoranir og mögulegar leiðir til úrbóta. Mikilvægt er að nýta þekkingu framkvæmdaraðila, samstarfsaðila og annarra hagsmunaaðila eftir því sem við á.
Umfang greiningarinnar ræðst af eðli og umfangi verkefnisins. Í stærri eða flóknari verkefnum getur verið tilefni til að taka niðurstöðurnar saman í formlegt stöðumat eða grænbók og leggja þær fram til opins samráðs í Samráðsgátt. Í afmörkuðum verkefnum geta einstök vinnublöð og greiningartæki nýst í stað þess að gefa út sérstaka skýrslu.
Þegar stöðumat er lagt fram til formlegs samráðs gefst almenningi og hagsmunaaðilum kostur á að koma sjónarmiðum og viðbótarupplýsingum á framfæri áður en stefna eða önnur leið er mótuð.
Niðurstöður greiningar og samráðs mynda grunn að næsta áfanga, þar sem framtíðarsýn, markmið og helstu leiðir að árangri eru útfærð. Sniðmátið Stöðumat og valkostir getur jafnframt nýst sem grunnur að undirbúningi lagafrumvarps.
Sniðmát og leiðbeiningarrit
- Stöðumat og valkostir (grænbók) - sniðmát
- Stöðumat og valkostir (grænbók) - glærur af námskeiði
- Skipulagning greiningarfunda - leiðbeiningar
- Skipulagning stefnumótunarfunda - leiðbeiningar
Vinnublöð og verkfæri
- Hvað er til staðar - vinnublað
- SVÓT-greining fyrir opinbera aðila - vinnublað
- PESTLE-greining - vinnublað
- Áhættugreining - vinnublað
- Staða kynja- og jafnréttissjónarmiða - vinnublað
- Leitað að leiðum og úrlausnum - vinnublað
- Áhrifakeðjan - vinnublað
Dæmi um ólíkar leiðir við greiningu og valkostamat
Mótun stefnu byggir á niðurstöðum stöðumats, samanburði valkosta og þeim sjónarmiðum sem komið hafa fram í samráði. Í þessum áfanga er tekin afstaða til þess hvaða breytingum stjórnvöld vilja stuðla að og hvaða leiðir eru líklegastar til að skila tilætluðum árangri.
Í stefnunni er sett fram framtíðarsýn fyrir viðfangsefnið ásamt meginmarkmiðum og nánari markmiðum. Framtíðarsýnin lýsir þeirri stöðu sem stefnt er að til lengri tíma. Meginmarkmið lýsa víðtækum árangri eða heildarbreytingum en nánari markmið þurfa að vera nægilega skýr og afmörkuð til að unnt sé að fylgjast með þróun og leggja mat á árangur.
Fyrir hvert markmið eru valdir mælikvarðar og gerð grein fyrir núverandi stöðu og þeirri stöðu sem stefnt er að. Áhrifakeðja getur nýst til að skýra tengsl aðfanga, ferla, afurða, áhrifa og samfélagslegra framfara.
Jafnframt þarf að greina helstu leiðir að markmiðunum og meta líkleg áhrif þeirra, meðal annars á opinber fjármál, samfélag, atvinnulíf, umhverfi og ólíka samfélagshópa. Taka þarf mið af kynja- og jafnréttissjónarmiðum og tengslum stefnunnar við aðrar opinberar stefnur og áætlanir. Nánari útfærsla aðgerða, ábyrgðar, tímasetninga og fjármögnunar fer síðan fram í aðgerðaáætlun.
Sniðmátið og leiðbeiningar Stefna ásamt tengdum vinnublöðum styður við framsetningu framtíðarsýnar, markmiða, mælikvarða, helstu leiða og mats á áhrifum.
Sniðmát og leiðbeiningarit
Vinnublöð
- Hvað er til staðar - vinnublað
- Áhrifakeðjan - vinnublað
- Sagnatafla (e. storyboard) - vinnublað
- Mælingar og markmið - vinnublað
- SMART-markmiðasetning - vinnublað
- Fimm leiðir til árangurs - vinnublað
- Mat á áhrifum markmiða - vinnublað
Dæmi um ólíkar stefnur
Þegar drög að stefnu liggja fyrir þarf að ákveða hvernig staðið verður að samráði, afgreiðslu og formlegu samþykki hennar. Ferlið ræðst af eðli stefnunnar, formlegri stöðu hennar og því hver ber ábyrgð á viðfangsefninu.
Eftir því sem við á eru drög að stefnu birt í opnu samráði og leitað eftir sjónarmiðum þeirra sem stefnan varðar eða búa yfir mikilvægri þekkingu og reynslu. Að samráði loknu er farið yfir umsagnir og ábendingar, gerð grein fyrir helstu niðurstöðum og tekin afstaða til þess hvort breyta þurfi framtíðarsýn, markmiðum, áherslum eða fyrirhuguðum leiðum.
Áður en stefnan er samþykkt þarf að liggja fyrir hver samþykkir hana og hvaða formlega málsmeðferð á við. Stefnuskjal getur meðal annars verið samþykkt af ráðherra eða ríkisstjórn. Eftir því sem við á getur stefna einnig verið lögð fyrir Alþingi í formi tillögu til þingsályktunar samkvæmt leiðbeiningum Alþingis. Við samþykkt þurfa að liggja fyrir upplýsingar um gildistíma stefnunnar, ábyrgð á framkvæmd og hvernig staðið verður að eftirfylgni og mati. Liggja þarf fyrir hvernig framkvæmd stefnunnar og eftir atvikum aðgerðir hennar verða fjármagnaðar. Jafnframt þarf að liggja fyrir hvort nauðsynlegt sé að breyta lögum eða regluverki vegna framkvæmdarinnar.
Að loknu samþykki er stefnan birt ásamt samantekt um samráð og, eftir atvikum, aðgerðaáætlun um framkvæmd hennar.
Með innleiðingu er stefna færð frá markmiðum og áherslum yfir í skipulagða framkvæmd. Æskilegt er að samþykktri stefnu fylgi aðgerðaáætlun þar sem skilgreint er hvað verður gert, hver ber ábyrgð, hvenær aðgerðum verður lokið, hvernig þær verða fjármagnaðar og upplýsingar um hvernig verður fylgst með framvindu og árangri.
Hver aðgerð þarf að tengjast tilteknu markmiði stefnunnar.
Við undirbúning innleiðingar þarf jafnframt að huga að stjórnun og skipulagi framkvæmdar, verkaskiptingu, samhæfingu, upplýsingamiðlun og helstu áhættuþáttum. Ef framkvæmdin er á ábyrgð fleiri en eins ráðuneytis, stofnunar eða sveitarfélags þarf að tryggja skýra ábyrgð og reglulegt samráð milli aðila.
Aðgerðaáætlun þarf að fylgja reglulega eftir og uppfæra eftir þörfum með hliðsjón af framvindu, nýjum upplýsingum og breyttum aðstæðum. Breytingar á framkvæmd geta verið nauðsynlegar þótt framtíðarsýn og meginmarkmið stefnunnar haldist óbreytt.
Með reglulegri eftirfylgni á innleiðingartíma er fylgst með framvindu aðgerða, nýtingu aðfanga og þeim afurðum sem til verða. Mat á stefnu felur í sér heildstæðari skoðun á því hvort og að hversu miklu leyti framkvæmdin hafi stuðlað að þeim árangri og áhrifum sem stefnt var að.
Við mótun stefnu og, eftir atvikum, aðgerðaáætlunar þarf að ákveða hvaða mælikvarðar, gögn og viðmið verða notuð, hver ber ábyrgð á að afla upplýsinganna og hvenær niðurstöður verða teknar saman. Mikilvægt er að upplýsingar um stöðuna í upphafi liggi fyrir svo unnt sé að meta þróun yfir tíma.
Mat getur farið fram meðan á innleiðingu stendur eða við lok gildistíma stefnu. Umfang þess ræðst meðal annars af eðli stefnunnar, kostnaði, áhættu og þörf fyrir upplýsingar. Við matið þarf að skoða hvað hefur verið gert, hvaða breytingar hafa orðið fyrir tilstuðlan stefnunnar. Eftir því sem við á er jafnframt lagt mat á kostnað, nýtingu aðfanga og fjárhagsleg áhrif.
Niðurstöður eftirfylgni og mats eiga að nýtast við ákvarðanir um áframhaldandi framkvæmd, breytingar á aðgerðum og endurskoðun stefnunnar.
Stefna þarf að taka mið af þróun viðfangsefnisins, nýrri þekkingu og reynslu af framkvæmd. Endurskoðun getur farið fram við lok gildistíma stefnunnar en einnig fyrr ef niðurstöður mats, breyttar aðstæður, ný lög, breyttar pólitískar áherslur eða aðrar forsendur gefa tilefni til.
Við endurskoðun er lagt mat á hvort framtíðarsýn og markmið eigi enn við, hvort aðgerðir hafi skilað tilætluðum árangri og hvort forsendur stefnunnar hafi breyst. Á þeim grunni er tekin ákvörðun um hvort láta eigi stefnuna gilda áfram óbreytta, uppfæra einstaka þætti hennar eða móta nýja stefnu.
Endurskoðun getur verið afmörkuð eða náð til stefnunnar í heild. Umfang greiningar, samráðs og samþykktarferlis fer eftir eðli breytinganna. Mikilvægt er að skjalfesta hvaða breytingar eru gerðar, á hvaða forsendum þær byggjast og hver samþykkir þær.
Rýni á stefnumótunarferlinu sjálfu getur jafnframt dregið fram lærdóm sem nýtist við önnur verkefni og stuðlað að stöðugum umbótum í stefnumótun og framkvæmd.
Ráðgjöf um stefnumótun
Stefnuráð Stjórnarráðsins hefur umsjón með vefsvæðinu. Sérfræðingar í Stjórnarráðinu geta leitað til ráðsins eftir ráðgjöf eða komið á framfæri ábendingum um leiðbeiningar, verkfæri, sniðmát og námskeið sem æskilegt væri að móta og hafa aðgengileg á vefsvæðinu.
Fyrirspurnir og ábendingar skal senda á [email protected].
Síðast uppfært 10. nóvember 2026.
Stefnumótun
Var efnið hjálplegt?