Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
  • Verkefni
    • Almannatryggingar og lífeyrir
    • Almannaöryggi
    • Atvinnuvegir
    • Auðlindir
    • Efnahagsmál
    • Félags- og fjölskyldumál
    • Fjarskipti
    • Húsnæðis- og mannvirkjamál
    • Líf og heilsa
    • Kosningar
    • Lög og réttur
    • Mannauðsmál ríkisins
    • Mannréttindi og jafnrétti
    • Menningarmál
    • Menntamál
    • Neytendamál
    • Opinber fjármál
    • Persónuréttur
    • Rekstur og eignir ríkisins
    • Samgöngur
    • Sjálfbært Ísland
    • Skipulagsmál
    • Stjórnskipan og þjóðartákn
    • Sveitarstjórnir og byggðamál
    • Trú og lífsskoðun
    • Umhverfi og náttúruvernd
    • Upplýsingatæknimál ríkisins
    • Utanríkismál
    • Útlendingar
    • Vinnumál
    • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
    • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    EN
    • Verkefni
      • Almannatryggingar og lífeyrir
      • Almannaöryggi
      • Atvinnuvegir
      • Auðlindir
      • Efnahagsmál
      • Félags- og fjölskyldumál
      • Fjarskipti
      • Húsnæðis- og mannvirkjamál
      • Líf og heilsa
      • Kosningar
      • Lög og réttur
      • Mannauðsmál ríkisins
      • Mannréttindi og jafnrétti
      • Menningarmál
      • Menntamál
      • Neytendamál
      • Opinber fjármál
      • Persónuréttur
      • Rekstur og eignir ríkisins
      • Samgöngur
      • Sjálfbært Ísland
      • Skipulagsmál
      • Stjórnskipan og þjóðartákn
      • Sveitarstjórnir og byggðamál
      • Trú og lífsskoðun
      • Umhverfi og náttúruvernd
      • Upplýsingatæknimál ríkisins
      • Utanríkismál
      • Útlendingar
      • Vinnumál
      • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
      • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    Close navigation
    Efnisorð
    Efnisorð
    Tegund
    Tegund

    Leita eftir efnisorðum

    Sýnir 151–200 af 574
    Raða eftir:
    19. jún. 2026Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Dómsmálaráðuneytið

    Alþingi samþykkti lög um framkvæmd öryggisráðstafana: „Hópur sem við höfum hingað til ekki náð utan um“

    Alþingi samþykkti nú rétt í þessu frumvarp Ragnars Þórs Ingólfssonar, félags- og húsnæðismálaráðherra, um framkvæmd öryggisráðstafana samkvæmt dómsúrlausn. Nýrri stofnun verður komið á fót með öryggisgæslustað fyrir allt að 16 einstaklinga sem þurfa sérhæfða þjónustu og er gert að sæta öryggisgæslu en ekki er talið viðeigandi að vista í fangelsi. Ekkert slíkt sérhæft úrræði er til í dag. Þá er heildstæð lagaumgjörð nú í fyrsta sinn til staðar um framkvæmd öryggisráðstafana samkvæmt dómsúrlausn. Alþingi samþykkti einnig í dag frumvarp Þorbjargar S. Gunnlaugsdóttur, dómsmálaráðherra, um breytingar á almennum hegningarlögum sem skýrir lagaheimildir til öryggisráðstafana gagnvart einstaklingum sem metnir eru sérstaklega hættulegir umhverfi sínu.

    19. jún. 2026Dómsmálaráðuneytið, Mannréttindi og jafnrétti, Vinnumál, Aðgerðir gegn mansali, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Jafnrétti

    Fjögurra ára samningur gerður við Bjarkarhlíð

    Dómsmálaráðherra og félags-og húsnæðismálaráðherra undirrituðu í dag fjögurra samning við Bjarkarhlíð. Bjarkarhlíð kom að 44 mansalsmálum á síðasta ári, þar af tíu vændismálum.

    18. jún. 2026Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Húsnæðis- og mannvirkjamál

    Alþingi samþykkir að hækka stofnframlög ríkisins til að byggja hagkvæmar leiguíbúðir

    Alþingi samþykkti nú rétt í þessu frumvarp Ragnars Þórs Ingólfssonar, félags- og húsnæðismálaráðherra, um hækkun á stofnframlögum ríkisins. Lögin eru hluti af aðgerðum ríkisstjórnarinnar í húsnæðismálum og markmið breytinganna var að bregðast við mikilli eftirspurn eftir leiguíbúðum á viðráðanlegu verði. „Lögunum er ætlað að styðja sérstaklega við uppbyggingu á hagkvæmu húsnæði fyrir hópa sem standa höllum fæti á húsnæðismarkaði. Með lögunum er stigið nauðsynlegt og mikilvægt skref til að styrkja almenna íbúðakerfið á tímum þar sem fjármögnunarumhverfið er krefjandi en þörfin fyrir öruggt og viðráðanlegt leiguhúsnæði er óumdeilanleg,“ segir Ragnar Þór.

    18. jún. 2026Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Vinnumál

    Niðurstöður rannsóknar á einelti, áreitni og ofbeldi á íslenskum vinnumarkaði

    Samanburðarrannsókn um einelti, áreitni og ofbeldi á íslenskum vinnumarkaði er komin út en rannsókn sama efnis kom út árið 2019. Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands vann bæði upphaflegu rannsóknina og samanburðarrannsóknina að beiðni Vinnueftirlitsins og félags- og húsnæðismálaráðuneytisins.

    15. jún. 2026Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Vinnumál

    Breytingar á atvinnuleysistryggingum samþykktar á Alþingi

    Alþingi samþykkti í dag breytingar á atvinnuleysistryggingum. Meginmarkmið þeirra er að stuðla að aukinni virkni hjá þeim hópi fólks sem er útsettur fyrir langtímaatvinnuleysi. Því lengur sem fjarvera einstaklings frá vinnumarkaði varir þeim mun ólíklegra er að viðkomandi snúi til baka á vinnumarkað. Brýnt þótti því að fjarveran væri ekki of löng.

    05. jún. 2026Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Málefni eldra fólks

    Tæpir 1,4 milljarðar króna til uppbyggingar öldrunarþjónustu

    Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra hefur úthlutað tæpum 1,4 milljörðum króna úr Framkvæmdasjóði aldraðra vegna ársins 2026. Hlutverk sjóðsins er að stuðla að uppbyggingu og efla öldrunarþjónustu um allt land. Alls voru veittir 55 styrkir til margvíslegra framkvæmda og endurbóta á öldrunarstofnunum vegna ársins 2026. Hlutur landsbyggðarinnar í innsendum umsóknum um styrki jókst úr 8% í 14% milli áranna 2025 og 2026. Ef litið er á veitta styrki jókst hlutfall landsbyggðarinnar úr 8% í 21%.

    05. jún. 2026Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

    Styrkir Hugarafl

    Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, Auður Axelsdóttir, framkvæmdastjóri Hugarafls, hafa undirritað samkomulag um styrk til Hugarafls. Hugarafl er starfrækt fyrir þau sem hafa gengið í gegnum andlegar áskoranir og aðstandendur þeirra. Hjá Hugarafli er einstaklingnum veittur stuðningur við að ná bata og stjórn á eigin lífi með einstaklingsmiðaðri nálgun. Nálgun Hugarafls er persónuleg og samstarf fagfólks og notenda geðheilbrigðisþjónustunnar fer fram á jafningjagrunni. Notendur móta eigin endurhæfingu og veita öðrum stuðning sem eru í svipuðu ferli.

    27. maí 2026Annað, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

    Umsókn um leyfi til að gera merkjalýsingar eða endurnýjun slíks leyfis

    / Félags- og húsnæðismálaráðuneytið Umsókn um leyfi til að gera merkjalýsingar eða endurnýjun slíks leyfis Leyfi til að gera merkjalýsingar hafa þeir einir sem fengið hafa til þess leyfi ráðherra. Slíkt leyfi er gefið út til fimm ára í senn og krefst endurnýjunar. Skilyrði fyrir veitingu leyfis eru lögræði og búsforræði og að viðkomandi hafi setið námskeið og staðist próf sem sýnir fram á að þeir hafi staðgóða þekkingu á viðfangsefnum merkjalýsinga svo sem landmælingum, lögum um skráningu, merki og mat fasteigna, skipulagslögum, þinglýsingalögum, jarðalögum og annarri löggjöf er máli skiptir sem og sáttamiðlun

    27. maí 2026Annað, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

    Umsókn um leyfi til að gera merkjalýsingar eða endurnýjun slíks leyfis

    / Félags- og húsnæðismálaráðuneytið Umsókn um leyfi til að gera merkjalýsingar eða endurnýjun slíks leyfis Leyfi til að gera merkjalýsingar hafa þeir einir sem fengið hafa til þess leyfi ráðherra. Slíkt leyfi er gefið út til fimm ára í senn og krefst endurnýjunar. Skilyrði fyrir veitingu leyfis eru lögræði og búsforræði og að viðkomandi hafi setið námskeið og staðist próf sem sýnir fram á að þeir hafi staðgóða þekkingu á viðfangsefnum merkjalýsinga svo sem landmælingum, lögum um skráningu, merki og mat fasteigna, skipulagslögum, þinglýsingalögum, jarðalögum og annarri löggjöf er máli skiptir sem og sáttamiðlun

    21. maí 2026Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

    Hjúkrunarrýmum fjölgar um 24 með opnun Hlévangs í haust

    Gengið hefur verið frá samningi um tímabundna leigu og rekstur 24 skammtímahjúkrunarrýma á hjúkrunarheimilinu Hlévangi í Reykjanesbæ sem verður opnað að nýju næsta haust. Opnun Hlévangs mun létta álagi af bráðamóttöku Landspítala en rýmin eru skammtímarými, ætluð einstaklingum með færni og heilsumat sem lokið hafa meðferð á spítalanum. Sama máli gegnir um Urðarhvarf sem opnað var í mars en þar eru 100 rými.

    21. maí 2026Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

    Hjúkrunarrýmum fjölgar um 24 með opnun Hlévangs í haust

    Gengið hefur verið frá samningi um tímabundna leigu og rekstur 24 skammtímahjúkrunarrýma á hjúkrunarheimilinu Hlévangi í Reykjanesbæ sem verður opnað að nýju næsta haust. Opnun Hlévangs mun létta álagi af bráðamóttöku Landspítala en rýmin eru skammtímarými, ætluð einstaklingum með færni og heilsumat sem lokið hafa meðferð á spítalanum. Sama máli gegnir um Urðarhvarf sem opnað var í mars en þar eru 100 rými.

    19. maí 2026Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Fatlað fólk

    Starfshópur um sértæk húsnæðisúrræði fyrir fatlað fólk skilar tillögum

    Starfshópur undir forystu félags- og húsnæðismálaráðuneytisins hefur skilað skýrslu með tillögum að aðgerðum fyrir 7-10 ára áætlun um að uppfylla þörf fatlaðs fólks fyrir sértæk húsnæðisúrræði. Starfshópurinn leggur til níu aðgerðir og er markmið þeirra að draga úr biðlistum eftir húsnæði og auka hagkvæmni við veitingu þjónustu um leið og fötluðu fólki er tryggt raunverulegt aðgengi að heimili og þjónustu sem styður sjálfstætt líf, sjálfræði og fulla samfélagsþátttöku í samræmi við samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.

    18. maí 2026Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Vinnumál

    Atvinnumál kvenna: 25 verkefni hlutu styrk

    Styrkjum til atvinnumála kvenna var úthlutað á dögunum og fengu samtals 25 verkefni styrki að fjárhæð 38 milljónum króna. Að þessu sinni voru konur af erlendum uppruna hvattar til þátttöku og voru 11 af styrkhöfum ársins af erlendum uppruna. Styrkjum til atvinnumála kvenna hefur verið úthlutað frá árinu 1991 og eru þeir ætlaðir frumkvöðlakonum eða fyrirtækjum í þeirra eigu. Verkefnin skulu vera í meirihlutaeigu kvenna, stjórnað af þeim og fela í sér nýnæmi eða nýsköpun af einhverju tagi.

    13. maí 2026Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

    Styrkir allar fjórar þolendamiðstöðvar landsins

    Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, hefur veitt öllum fjórum þjónustumiðstöðvum fyrir þolendur ofbeldis á Íslandi styrk til að efla þjónustu þeirra og styðja við starfsemina. Miðstöðvarnar starfa eftir hugmyndafræði svonefndra Family Justice Center þar sem markmiðið er að þolendur ofbeldis fái þjónustu og stuðning á einum stað, þeim að kostnaðarlausu og á þeirra eigin forsendum. „Brýnt er að tryggja að þolendur ofbeldis fái viðeigandi stuðning og ráðgjöf. Þar gegna þjónustumiðstöðvarnar fyrir þolendur ofbeldis lykilhlutverki en þær hafa reynst mörgum ómetanlegur stuðningur. Mikil þörf er fyrir þjónustu þeirra og því ánægjulegt að stjórnvöld styðji myndarlega við starfsemina,“ segir Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra.

    13. maí 2026Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Almannatryggingar og lífeyrir

    Ársskýrsla TR: 86.000 einstaklingar og fleiri en ein milljón innskráninga

    Tæplega 86.000 einstaklingar fengu greiðslur frá Tryggingastofnun (TR) í fyrra og voru ellilífeyrisþegar rúmlega helmingur þeirra. Ríflega 20.000 einstaklingar fengu greiddan örorkulífeyri og um 8.600 einstaklingar sjúkra- og endurhæfingargreiðslur. Heildargreiðslur TR námu tæplega 250 milljörðum króna á árinu. Þetta kom fram á ársfundi TR sem haldinn var fyrir skemmstu. Samhliða kom ársskýrsla stofnunarinnar út.

    08. maí 2026Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

    Ragnar Þór heimsótti Vestur-Íslendinga í Manitoba og Norður-Dakóta

    Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, heimsótti Manitoba í Kanada og Norður-Dakóta í Bandaríkjunum dagana 30. júlí til 4. ágúst. Tilefni heimsóknarinnar var þátttaka í hátíðarhöldum Vestur-Íslendinga, The Deuce of August í Mountain og á Íslendingadeginum í Gimli.

    06. maí 2026Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Vinnumál

    Ísland fullgildir samþykktir Alþjóðavinnumálastofnunarinnar um réttindi og öryggi starfsfólks

    Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, afhenti nú rétt í þessu Gilbert F. Houngbo, framkvæmdastjóra Alþjóðavinnumálastofnunarinnar (ILO), fullgildingarskjöl Íslands fyrir tvær samþykktir stofnunarinnar. Um er að ræða samþykkt nr. 188 um vinnu við fiskveiðar og samþykkt nr. 191 um að öruggt og heilbrigt starfsumhverfi verði viðurkennt sem grundvallarréttindi. „Með fullgildingu þessara samþykkta staðfestir Ísland skuldbindingu sína til að tryggja örugg og heilbrigð vinnuskilyrði og standa vörð um grundvallarréttindi fólks á vinnumarkaði,“ segir ráðherra.

    05. maí 2026Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Innflytjendur, Félags- og fjölskyldumál

    Hjálparstarf kirkjunnar fær styrk

    Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, hefur veitt Hjálparstarfi kirkjunnar styrki til tveggja verkefna sem miða að valdeflingu kvenna og aukinni virkni, auk þess að draga úr félagslegri einangrun þeirra.

    03. maí 2026Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Húsnæðis- og mannvirkjamál

    Mælti fyrir frumvarpi sem felur í sér hækkun á stofnframlögum ríkisins til byggingar hagkvæmra leiguíbúða

    Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, mælti í dag fyrir frumvarpi um hækkun á stofnframlögum ríkisins og er frumvarpið hluti af aðgerðum ríkisstjórnarinnar í húsnæðismálum. Markmið breytinganna er bregðast við mikilli eftirspurn eftir leiguíbúðum á viðráðanlegu verði.

    03. maí 2026Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

    Fjölmennt á Landssamráðsfundi gegn ofbeldi

    Um 400 manns sátu landssamráðsfund gegn ofbeldi og afleiðingum þess sem félags- og húsnæðismálaráðuneytið og ríkislögreglustjóri boðuðu til á Hilton Reykjavík Nordica í gær, miðvikudag. Þá fylgdust um 1.300 manns jafnframt með í streymi. Markmið fundarins var að efla samráð og þverfaglegt samstarf gegn ofbeldi á Íslandi, með sérstaka áherslu á draga úr ítrekuðu ofbeldi.

    29. apr. 2026Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

    Ríkið tryggir sér lóð á Hólmsheiðarsvæðinu undir Miðstöð um öryggisráðstafanir

    Ríkið hefur tryggt sér lóð undir fyrirhugaða Miðstöð um öryggisráðstafanir. Samningur við Reykjavíkurborg um lóð á Hólmsheiðarsvæðinu var undirritaður í gær. Fyrirhugað er að reisa á svæðinu öryggisgæslustað fyrir allt að 17 einstaklinga. Þar munu vistast einstaklingar sem dæmdir hafa verið fyrir alvarleg brot en eru taldir ósakhæfir eða refsing ekki talin líkleg til að bera árangur. Þeir eru því ekki taldir hæfir til að vistast í fangelsi en þó er talið nauðsynlegt að gera viðeigandi ráðstafanir til að hætta stafi ekki af þeim.

    28. apr. 2026Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Húsnæðis- og mannvirkjamál, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Ríki og borg semja um stórfellda uppbyggingu íbúða - 1.200-1.400 nýjar íbúðir byggðar á ríkislóðum

    Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, og Heiða Björg Hilmisdóttir, borgarstjóri, kynntu í dag stórfellda íbúðauppbyggingu á ríkislóðum og í ríkiseignum í Reykjavík. Byggðar verða 1.200-1.400 nýjar íbúðir á næstu árum á lóðum ríkisins og í húsnæði í eigu ríkisins sem breytt verður í íbúðir.

    27. apr. 2026Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Húsnæðis- og mannvirkjamál

    Styrkur til Leigjendasamtakanna

    Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, hefur veitt Leigjendasamtökunum styrk en þau vinna að hagsmunagæslu og upplýsingagjöf fyrir leigjendur á húsnæðismarkaði. Leigjendasamtökin hafa einnig fundað með ráðherra og munu taka þátt í verkefnum sem kynnt voru nýverið og miða að því að styrkja stöðu leigjenda og bæta leigumarkaðinn.

    24. apr. 2026Rit og skýrslur, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

    Staða og þróun í málefnum innflytjenda 2022-2025: Skýrsla félags- og húsnæðismálaráðherra til Alþingis

    apríl 2026 / Félags- og húsnæðismálaráðuneytið Staða og þróun í málefnum innflytjenda 2022-2025: Skýrsla félags- og húsnæðismálaráðherra til Alþingis Staða og þróun í málefnum innflytjenda 2022-2025: Skýrsla félags- og húsnæðismálaráðherra til Alþingis Til baka

    20. apr. 2026Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

    Mælti fyrir frumvarpi um rannsókn alvarlegra atvika í velferðarþjónustu

    Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, hefur mælt fyrir frumvarpi til laga um breytingu á lögum um Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála (GEV). Breytingin snýst um rannsókn alvarlegra óvæntra atvika og er markmið frumvarpsins að styrkja rannsóknir, tilkynningarskyldu og skráningu slíkra atvika í velferðarþjónustu.

    14. apr. 2026Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Húsnæðis- og mannvirkjamál

    Aðgerðir til að styrkja stöðu leigjenda og bæta leigumarkaðinn

    Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, hefur hrint af stað umfangsmiklum aðgerðum til að styrkja stöðu leigjenda og bæta leigumarkaðinn. Aðgerðirnar miða að því að auka húsnæðisöryggi og bæta réttarstöðu á leigumarkaði. „Leigumarkaðurinn þarf að vera sanngjarn og virka fyrir fólk. Leigjendur verða að geta staðið á rétti sínum og búið við öryggi. Með þessum aðgerðum erum við að styrkja réttarstöðu þeirra, tryggja að þeir standi ekki einir þegar á reynir, bæta aðgengi að ráðgjöf og gera leigumarkaðinn sanngjarnari og fyrirsjáanlegri,“ segir félags- og húsnæðismálaráðherra.

    05. apr. 2026Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Líf og heilsa, Málefni eldra fólks, Heilbrigðisráðuneytið

    Áformað að reisa nýtt hjúkrunarheimili og heilsugæslu í Vík í Mýrdal

    Samkomulag var í dag undirritað um nýbyggingu sem hýsa mun nýtt hjúkrunarheimili og heilsugæslustöðí Vík í Mýrdal. Ráðgert er að byggingin rísi á lóð við Sléttuveg 11 sem sveitarfélagið úthlutar til ríkisins. Húsnæðið verður hannað og byggt af þriðja aðila gegn langtímaleigusamningi við ríkið. Inga Sæland, sem fer með uppbyggingu hjúkrunarheimila og Alma D. Möller, heilbrigðisráðherra, heimsóttu Vík í dag og undirrituðu samkomulagið ásamt Einari Frey Elínarsyni, sveitarstjóra Mýrdalshrepps.

    05. apr. 2026Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Líf og heilsa, Málefni eldra fólks, Heilbrigðisráðuneytið

    Áformað að reisa nýtt hjúkrunarheimili og heilsugæslu í Vík í Mýrdal

    Samkomulag var í dag undirritað um nýbyggingu sem hýsa mun nýtt hjúkrunarheimili og heilsugæslustöðí Vík í Mýrdal. Ráðgert er að byggingin rísi á lóð við Sléttuveg 11 sem sveitarfélagið úthlutar til ríkisins. Húsnæðið verður hannað og byggt af þriðja aðila gegn langtímaleigusamningi við ríkið. Inga Sæland, sem fer með uppbyggingu hjúkrunarheimila og Alma D. Möller, heilbrigðisráðherra, heimsóttu Vík í dag og undirrituðu samkomulagið ásamt Einari Frey Elínarsyni, sveitarstjóra Mýrdalshrepps.

    05. apr. 2026Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

    Styrkir Kvennaathvarfið

    Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, og Linda Dröfn Gunnarsdóttir, framkvæmdastýra Kvennaathvarfsins, hafa undirritað samkomulag um 15 milljóna króna styrk til Kvennaathvarfsins. „Kvennaathvarfið gegnir lykilhlutverki við að tryggja öryggi og stuðning fyrir konur og börn sem þurfa að flýja ofbeldi. Með samkomulaginu styrkjum við áframhaldandi öfluga þjónustu sem brýnt er að sé til staðar,“ segir Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra.

    03. apr. 2026Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

    Beint streymi: Landssamráðsfundur um aðgerðir gegn ofbeldi og afleiðingum þess

    Landssamráðsfundur um aðgerðir gegn ofbeldi og afleiðingum stendur nú yfir og hægt er að fylgjast með honum í beinu streymi. Fundurinn er haldinn að undirlagi Ragnars Þórs Ingólfssonar, félags- og húsnæðismálaráðherra en embætti ríkislögreglustjóra sér um skipulagningu og framkvæmd fundarins.

    26. mar. 2026Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Málefni eldra fólks

    Uppfært samkomulag um byggingu hjúkrunarheimilis við Mosaveg í Reykjavík

    Inga Sæland og Heiða Björg Hilmisdóttir, borgarstjóri Reykjavíkur, hafa endurnýjað samkomulag um uppbyggingu 117 rýma hjúkrunarheimilis við Mosaveg í Reykjavík í takt við breytta ábyrgðarskiptingu við uppbyggingu hjúkrunarheimila sem fest var í lög á síðasta ári. Með því færðist ábyrgð á fjármögnun vegna uppbyggingar hjúkrunarheimila alfarið yfir til ríkisins.

    26. mar. 2026Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Málefni eldra fólks

    Uppfært samkomulag um byggingu hjúkrunarheimilis við Mosaveg í Reykjavík

    Inga Sæland og Heiða Björg Hilmisdóttir, borgarstjóri Reykjavíkur, hafa endurnýjað samkomulag um uppbyggingu 117 rýma hjúkrunarheimilis við Mosaveg í Reykjavík í takt við breytta ábyrgðarskiptingu við uppbyggingu hjúkrunarheimila sem fest var í lög á síðasta ári. Með því færðist ábyrgð á fjármögnun vegna uppbyggingar hjúkrunarheimila alfarið yfir til ríkisins.

    26. mar. 2026Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Húsnæðis- og mannvirkjamál, Félags- og fjölskyldumál

    Uppfærðar leiðbeiningar um framkvæmd sérstaks húsnæðisstuðnings til leigjenda

    Félags- og húsnæðismálaráðuneytið hefur uppfært tekjuviðmið í leiðbeiningum ráðherra til sveitarfélaga um framkvæmd sérstaks húsnæðisstuðnings til leigjenda. Fjárhæðirnar hækka um 6,5% frá síðustu útgáfu sem birt var í júlí 2025.

    22. mar. 2026Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

    Samráðsgátt: Drög að reglugerð um innra eftirlit

    Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, hefur birt í samráðsgátt stjórnvalda drög að reglugerð um innra eftirlit hjá þjónustuveitendum sem lúta eftirliti Gæða- og eftirlitsstofnunar velferðarmála. Markmið reglugerðarinnar er að tryggja að þeir aðilar sem bera ábyrgð á veitingu þjónustu samkvæmt lögum sinni markvissu innra eftirliti með starfsemi sinni. Með reglugerðinni er jafnframt leitast við að skýra nánar tilhögun innra eftirlits, þar með talið framkvæmd þess og þær kröfur sem til þess eru gerðar.

    21. mar. 2026Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Fatlað fólk

    Samráðsgátt: Endurgreiðsla kostnaðar vegna leiðsöguhunda við ferðalög erlendis

    Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, hefur birt í samráðsgátt stjórnvalda drög að reglugerð um endurgreiðslu kostnaðar vegna leiðsöguhunda við ferðalög notenda erlendis. Reglugerðinni er ætlað að gilda um endurgreiðslu úr ríkissjóði á kostnaði sem fellur til þegar notendur leiðsöguhunda, með lögheimili á Íslandi, ferðast með hund sinn til útlanda. Ákvæðin ná til leiðsöguhunda sem Sjónstöðin hefur úthlutað sem hjálpartæki á grundvelli laga um Sjónstöðina.

    19. mar. 2026Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Húsnæðis- og mannvirkjamál

    Starfshópur um nýtt húsnæðislánakerfi tekur til starfa

    Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, hefur skipað starfshóp um nýtt húsnæðislánakerfi. Hópurinn hittist á sínum fyrsta fundi í dag. „Skipun hópsins er í samræmi við áherslur stjórnvalda í húsnæðismálum. Nýlegar breytingar á lánamarkaði síðastliðna mánuði í tengslum við vaxtadómana svokölluðu hafa undirstrikað nauðsyn þess að greina hvort koma megi á sanngjarnara og gagnsærra húsnæðislánakerfi hér á landi til lengri tíma litið,“ segir Ragnar Þór.

    19. mar. 2026Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Húsnæðis- og mannvirkjamál

    Starfshópur um nýtt húsnæðislánakerfi tekur til starfa

    Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, hefur skipað starfshóp um nýtt húsnæðislánakerfi. Hópurinn hittist á sínum fyrsta fundi í dag. „Skipun hópsins er í samræmi við áherslur stjórnvalda í húsnæðismálum. Nýlegar breytingar á lánamarkaði síðastliðna mánuði í tengslum við vaxtadómana svokölluðu hafa undirstrikað nauðsyn þess að greina hvort koma megi á sanngjarnara og gagnsærra húsnæðislánakerfi hér á landi til lengri tíma litið,“ segir Ragnar Þór.

    19. mar. 2026Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Almannatryggingar og lífeyrir

    Lög samþykkt á Alþingi sem fela í sér að greiðslur almannatrygginga fylgja launavísitölu

    Alþingi samþykkti í dag lög sem fela í sér að greiðslur almannatrygginga fylgja þróun launavísitölu sem Hagstofa Íslands reiknar út og birtir, í stað þess að taka mið af spá um launaþróun. Greiðslur almannatrygginga eru að stærstum hluta ellilífeyrir og greiðslur vegna örorku og endurhæfingar. Kveðið er á um að launavísitöluna í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar.

    17. mar. 2026Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

    Styrkir veittir til frjálsra félagasamtaka til verkefna á sviði félagsmála

    Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, veitti í dag styrki til félagasamtaka sem starfa á málefnasviði félags- og húsnæðismálaráðuneytisins. Veittir voru samtals 20 styrkir til reksturs og fjölbreyttra verkefna. Auglýst var eftir umsóknum um styrki og var bæði hægt að sækja um verkefnastyrki og rekstrarstyrki.

    17. mar. 2026Forsætisráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið, Mennta- og barnamálaráðuneytið, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

    Tillögur um samþætta þjónustu við börn með vímuefnavanda kynntar í ríkisstjórn

    Tillögugerð starfshóps forsætisráðherra um samþætta þjónustu við börn með vímuefnavanda var kynnt á fundi ríkisstjórnarinnar í dag. Í skýrslu starfshópsins eru lagðar fram sjö tillögur sem miða að því að styrkja þjónustu við börn með vímuefnavanda.

    16. mar. 2026Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

    Samkomulag um nýtt hjúkrunarheimili við Vetrarmýri í Garðabæ

    Ráðgert er að reisa nýtt hjúkrunarheimili með 100 hjúkrunarrýmum við Vetrarmýri í Garðabæ. Inga Sæland, sem fer með uppbyggingu hjúkrunarheimila, og Almar Guðmundsson, bæjarstjóri Garðabæjar, undirrituðu samkomulag þessa efnis í dag. Gert er ráð fyrir að byggingin verði ríflega 8.300 m2 og að hjúkrunarheimilið verði á efri hæðum hennar. Á jarðhæðinni er gert ráð fyrir þjónustumiðstöð.

    16. mar. 2026Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

    Ríflega 1.500 hjúkrunarrými tekin í gagnið fyrir lok árs 2030

    Ný framkvæmdaáætlun um uppbyggingu hjúkrunarheimila á landsvísu gerir ráð fyrir mikilli fjölgun hjúkrunarrýma og viðsnúningi á biðlistum næstu árin. Uppbygging hjúkrunarheimila heyrir undir Ingu Sæland sem kynnti áætlunina í dag. 1.507 hjúkrunarrými verða tekin í notkun fyrir lok árs 2030. Af þeim verða ný hjúkrunarrými alls 1.355 talsins. 90% af þeim hjúkrunarrýmum sem tekin verða í gagnið verða þannig hrein viðbót við hjúkrunarrýmin sem þegar eru til staðar út um landið.

    09. mar. 2026Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

    Almannatryggingar í 90 ár: Opin ráðstefna í Hörpu

    Níutíu ára sögu almannatrygginga á Íslandi verður fagnað með opinni ráðstefnu í Hörpu þann 30. september nk. Árið 1936 tóku lög um alþýðutryggingar gildi og sama ár var Tryggingastofnun ríkisins sett á laggirnar. Þar með var grunnur lagður að því almannatryggingakerfi sem landsmenn búa við í dag.

    07. mar. 2026Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Húsnæðis- og mannvirkjamál

    Starfshópur um nýtt húsnæðislánakerfi skilar fyrstu skýrslu

    Starfshópur um nýtt húsnæðislánakerfi skilaði á dögunum skýrslu um fyrri hluta þess verkefnis sem honum var falið. Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, skipaði starfshópinn í mars sl. Hópurinn var skipaður í samræmi við áherslur stjórnvalda í húsnæðismálum í kjölfar breytinga sem urðu á lánamarkaði eftir að Hæstiréttur felldi dóma í vaxtamálunum svokölluðu í lok árs 2025.

    06. mar. 2026Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Vinnumál

    Undirbýr fullgildingu samþykktar um aðgerðir gegn ofbeldi og áreitni á vinnustöðum

    Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, hefur skipað vinnuhóp sem ætlað er að undirbúa fyrirhugaða fullgildingu samþykktar Alþjóðavinnumálastofnunarinnar (ILO) nr. 190 um aðgerðir gegn ofbeldi og áreitni á vinnustöðum. Hlutverk vinnuhópsins er að greina efni samþykktarinnar og leggja mat á hvort og þá hvaða breytingar á íslenskri löggjöf fullgilding hennar hefur í för með sér. „Ofbeldi og áreitni eiga ekki að líðast á vinnumarkaði. Með vinnunni sem nú er farin af stað leggjum við grunninn að því að styrkja vernd starfsfólks og stuðla að öruggu og heilbrigðu starfsumhverfi,“ segir Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra.

    03. mar. 2026Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Húsnæðis- og mannvirkjamál, Fatlað fólk

    Húsnæði við hæfi: Rætt um sértæk búsetuúrræði á samráðsþingi um málefni fatlaðs fólks

    Rætt var um sértæk húsnæðisúrræði fyrir fatlað fólk á árlegu samráðsþingi sem fram fór í dag. Þetta er fjórða þingið sem blásið er til í tengslum við landsáætlun um innleiðingu samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Yfirskrift þingins í ár var „Húsnæði við hæfi: Heimili sem styður sjálfstætt líf“. „Umræðan er bæði tímabær og brýn og snertir einn af grundvallarþáttum mannréttinda: Réttinn til að eiga heimili og lifa sjálfstæðu lífi í samfélaginu, á eigin forsendum,“ sagði Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, í opnunarávarpi þingsins.

    03. mar. 2026Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Vinnumál

    Fyrsta stefnan gegn brotastarfsemi á vinnumarkaði: Markvissar aðgerðir til að sporna við brotum

    Stjórnvöld hafa í fyrsta sinn markað sér stefnu til að sporna gegn brotastarfsemi á vinnumarkaði og stefnunni fylgir aðgerðaáætlun með 13 aðgerðum. Stefnan og aðgerðirnar eru afrakstur af vinnu samstarfsnefndar stjórnvalda og samtaka aðila vinnumarkaðarins sem félags- og húsnæðismálaráðherra skipaði í fyrra. „Brot á vinnumarkaði eru ólíðandi og mikilvægt er að grípa til öflugra aðgerða til að vinna gegn skipulagðri brotastarfsemi, mansali og félagslegum undirboðum. Stefnan og aðgerðaáætlunin marka tímamót og vinnsla þeirra sýnir hversu miklum árangri gott samstarf getur skilað,“ segir Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra.

    02. mar. 2026Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

    Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála hafi betri heimildir til að rannsaka alvarleg atvik

    Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, hefur birt frumvarpsdrög í samráðsgátt stjórnvalda sem fela í sér að Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála (GEV) fái hliðstæðar lagaheimildir og embætti landlæknis hvað varðar rannsókn alvarlegra atvika. Með lagabreytingum árið 2024 fékk embætti landlæknis slíkar heimildir til rannsóknar á alvarlegum atvikum í heilbrigðisþjónustu. Væntanlegu frumvarpi er ætlað að tryggja að fagleg rannsókn á alvarlegum atvikum í félagslegri velferðarþjónustu hafi sömu stöðu.

    27. feb. 2026Mennta- og barnamálaráðuneytið, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

    Samið um stuðning við verkefni Glóar er varða fötluð börn og ungmenni

    Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, og Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, undirrituðu í dag samning við Gló um stuðning við fötluð börn og ungmenni í sumar. Markmiðið er að draga úr félagslegri einangrun fatlaðra barna og ungmenna og styðja við fjölskyldur þeirra.

    24. feb. 2026Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Húsnæðis- og mannvirkjamál

    Viljayfirlýsing undirrituð um húsnæðisuppbyggingu á landsbyggðinni

    Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, Jón Björn Hákonarson, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga, og Hermann Jónasson, forstjóri Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar, undirrituðu í dag viljayfirlýsingu um húsnæðisuppbyggingu um allt land. Markmiðið er að styðja við fjölbreyttar húsnæðislausnir í byggðakjörnum utan höfuðborgarsvæðisins. Jafnframt er lögð áhersla á að styðja við byggingu íbúðarhúsnæðis fyrir alla hópa samfélagsins í samræmi við þá íbúðaþörf sem húsnæðisáætlanir sveitarfélaganna gera ráð fyrir.

    • First
    • Prev
    • 2
    • 3
    • 4
    • 5
    • 6
    • Next
    • Last
    Logo
    • Um vefinn
    • Áskrift
    • Veftré
    • Fyrirvari
    +354 545 8000
    Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
    Hafa samband

    Hafa samband