Orkustefna fyrir Ísland
Þann 2. október 2020 var kynnt langtíma orkustefna fyrir Ísland, þá fyrsta sem unnin er með þessum hætti, undir yfirskriftinni „Orkustefna til ársins 2050: Sjálfbær orkuframtíð.“
Fréttatilkynning um Orkustefnu 2.10.2020Orkustefna til ársins 2050: Sjálfbær orkuframtíðAðgerðaráætlun Orkustefnu (17.2.2021)Bæklingur um OrkustefnuStöðumat og samantektViðauki (5. kafli stöðumats og samantektar)Spurt og svarað um OrkustefnuA Sustainable Energy Future: An Energy Policy to the year 2050
(Orkustefna á ensku)
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, skipaði á vordögum 2018, starfshóp með aðkomu allra þingflokka til að vinna orkustefnu fyrir Ísland. Þess er vænst að tillaga hópsins verði lögð fram til umræðu á Alþingi í byrjun árs 2020.
Í erindisbréfi starfshópsins segir að í fyrsta áfanga skuli fara fram ítarleg undirbúnings og greiningarvinna sem myndar faglegan grundvöll fyrir mótun langtímaorkustefnu. Lagt er fyrir starfshópinn að hafa víðtækt samráð í störfum sínum, kalla eftir hugmyndum við upphaf starfs þar sem leitað verði með opnu ferli eftir hugmyndum og tillögum að innihaldi orkustefnu frá almenningi, hagsmunaaðilum og félagasamtökum.
(23. janúar 2019)
Skýrsla ráðherra um raforkumálefniRaforkuspáRammaáætlunOrkustefna 2011OrkuseturVísindavefurinn - raforkumálefni