Hleðslustöðvum á landsbyggðinni fjölgað um 21
Loftslags- og orkusjóður hefur lokið úthlutun styrkja sem miða að því að þétta net hleðslustöðva fyrir rafbíla. Þannig verður tryggt að hvergi sé meira en 100 km á milli hleðslustöðva á þjóðvegum og…
Víðtækt samráð var haft við hagaðila við gerð skýrslunnar og ákvað starfshópurinn í upphafi að opna sem mest fyrir umsagnir, enda ljóst að viðfangsefnið væri umdeilt, og bárust um 70 umsagnir.
Þá hélt hópurinn um 50 fundi, auk þess sem yfir 100 gestakomur hafa verið hjá starfshópnum og reglulegt samráð viðhaft við Samband íslenskra sveitarfélaga.
Starfshópurinn hefur skilað ráðherra stöðuskýrslu og lagði jafnframt til að greiningin yrði kynnt sérstaklega með opinberri umræðu. Slíkri umræðu yrði gefið svigrúm til að þroskast og því yrði tillögum, t.d. í formi lagafrumvarps, skilað nokkru síðar.
Ráðherra hefur því boðið til opinna funda þar sem almenningur fær tækifæri til þess að kynna sér stöðuskýrsluna og eiga beint samtal við starfshópinn og ráðherra, áður en hópurinn skilar formlegum niðurstöðum og tillögum að stefnumótun ríkisins í þessum efnum.
Í stöðuskýrslunni eru dregin saman helstu álitaefni sem ramma inn umræðuna um vindorku.
Að mörgu er að hyggja þegar kemur að regluverki um vindorku, en umræður hér á landi eru komnar skemmra á veg en í mörgum þeirra ríkja sem við berum okkur saman við.