Innleiðing Microsoft Copilot hjá íslenska ríkinu - fyrir stjórnendur

Hlutverk stjórnenda er að skapa skýra framtíðarsýn, tryggja öruggan ramma og gefa starfsfólki svigrúm til að læra, prófa og þróa ný vinnubrögð.

Markmiðið er ekki aðeins að innleiða Copilot. Markmiðið er að byggja upp vinnustað sem kann að nýta gervigreind til að vinna betur, veita betri þjónustu og nýta betur tíma og þekkingu starfsfólks, án þess að fórna öryggi, ábyrgð eða mannlegri dómgreind.

Dæmi um ákvarðanir sem stjórnendur þurfa að taka:

Áður en Copilot er virkjaður ætti stjórnendateymi að geta svarað „já“ við eftirfarandi:

  • Við vitum af hverju við erum að innleiða Copilot.
  • Við vitum hver ber ábyrgð á hverju.
  • Við treystum aðgangsstýringum okkar.
  • Við höfum metið persónuverndar- og öryggisáhrif.
  • Starfsfólk hefur fengið fræðslu.
  • Við höfum viðbragðsáætlun ef upp kemur atvik.
  • Við höfum skilgreint hvernig árangur verður mældur.

Gátlisti stjórnenda

  • Framtíðarsýn um gervigreind hefur verið samþykkt og kynnt.
  • Gervigreindarstefna og notkunarstefna liggja fyrir.
  • Ábyrgð stjórnenda, gagnaeigenda, tæknifólks og notenda er skýr.
  • Helstu störf, vinnuferlar og notkunartilvik hafa verið greind.
  • Áhrif á persónuvernd, öryggi og gögn hafa verið metin.
  • Microsoft 365 umhverfi, aðgangar og deiling gagna hafa verið yfirfarin.
  • Grunnfræðsla og hlutverkamiðuð þjálfun hafa verið skipulögð.
  • Kyndilberar og stuðningsvettvangur hafa verið skilgreind.
  • Tilraunir hafa skýran tilgang, tímamörk og mælikvarða.
  • Áætlun liggur fyrir um reglulega endurskoðun og varanlegt eignarhald.
Var efnið hjálplegt?