Samfélag og miðlun

Mikilvægur hluti innleiðingar Microsoft 365 Copilot hjá ríkinu er að skapa vettvang þar sem stofnanir og fagfólk geta deilt reynslu, þekkingu og gögnum og lært hvert af öðru. Með öflugu samstarfi þvert á stofnanir er hægt að nýta betur þá þekkingu sem verður til, draga úr tvíverknaði og styðja við samræmd og góð vinnubrögð.

Þegar hafa verið stofnaðir fjórir vinnuhópar með sameiginleg vinnusvæði þar sem þátttakendur skiptast á upplýsingum, deila reynslu og gögnum og vinna saman að úrlausn sameiginlegra viðfangsefna:

  • Persónuvernd og öryggi
  • Skjalastjórar
  • Rekstraraðilar skýjaumhverfa
  • Fræðsla

Horft er til þess að fleiri slíkir hópar myndist eftir því sem innleiðingunni vindur fram, meðal annars út frá ólíkum hlutverkum og starfssviðum. Þannig getur fólk með sambærileg verkefni þvert á stofnanir miðlað reynslu, þróað góð vinnubrögð og lært hvert af öðru.

Markmiðið er að byggja upp sjálfbært lærdóms- og samstarfsnet í kringum gervigreind innan ríkisins, þar sem þekking og reynsla dreifist á milli stofnana í stað þess að hver stofnun þurfi að finna lausnir upp á nýtt.

Til framtíðar er horft til þess að hér verði jafnframt upplýsingar um viðburði, vinnustofur, tengiliði og samstarfsvettvanga, auk dæma og reynslusagna af því hvernig stofnanir nýta Copilot í daglegum störfum.

Samfélag og miðlun

Var efnið hjálplegt?