Vísindalegar rannsóknir
Í VI. kafla laga um landhelgi, aðlægt belti, efnahagslögsögu og landgrunn nr. 41/1979 er fjallað um vísindalegar rannsóknir. Með kaflanum eru innleidd ákvæði hafréttarsamnings Sameinuðu þjóðanna er varða hafrannsóknir (e. Marine Scientific Research).
Vísindalegar rannsóknir í landhelgi, efnahagslögsögu og landgrunni Íslands eru háðar samþykki utanríkisráðuneytisins, sbr. 1. mgr. 9. gr. laga nr. 41/1979. Að því er varðar rannsóknir innan efnahagslögsögunnar eða á landgrunninu skal slíkt samþykki að jafnaði veitt, ef umsókn kemur frá erlendu ríki eða hlutaðeigandi milliríkjastofnun, enda sé um að ræða friðsamlega viðleitni til að efla þekkingu á umhverfi sjávar, sbr. 2. mgr. 9. gr. laganna. Heimilt er að hafna umsóknum erlendra ríkja eða hlutaðeigandi milliríkjastofnana um að stunda vísindalegar rannsóknir innan efnahagslögsögunnar eða á landgrunninu, ef hún:
stendur í beinu sambandi við rannsókn eða hagnýtingu á lífrænum eða ólífrænum auðlindum,
hefur í för með sér boranir á landgrunninu, notkun sprengiefna eða skaðlegra efna fyrir umhverfið,
leiðir til byggingar, starfrækslu eða notkunar mannvirkja.
Samkvæmt 10. gr. laga nr. 41/1979 skal umsókn um leyfi til að stunda vísindalegar rannsóknir í landhelgi, efnahagslögsögu og landgrunni Íslands lögð fram eigi síðar en sex mánuðum áður en rannsókn hefst og skulu henni fylgja nákvæmar upplýsingar varðandi:eðli og markmið rannsókna,
rannsóknaraðferð, þ. á m. nafn, stærð, tegund og gerð skipa og lýsingu á rannsóknartækjum,
nákvæma staðsetningu svæða, sem rannsaka á,
upphaf og lok rannsóknatímabils,
nafn stofnunar, sem að rannsóknum stendur, nafn forstjóra hennar og framkvæmdastjóra rannsóknarleiðangurs
fyrirhugaða þátttöku íslenskra stjórnvalda í rannsóknum.
Utanríkisráðuneytið skal tilkynna afstöðu sína til umsóknarinnar innan fjögurra mánaða, ef umsókn er hafnað.
Allar umsóknir til að stunda vísindalegar rannsóknir í landhelgi, efnahagslögsögu og landgrunni Íslands skulu sendar af sendiskrifstofum gagnvart íslenskum stjórnvöldum til utanríkisráðuneytisins með diplómatískum nótum.
Yfirlit yfir vísindalegar rannsóknir sem hafa verið stundaðar í landhelgi, efnahagslögsögu og landgrunni Íslands á undanförnum árum má finna hér neðst á síðunni.
Aðrir tenglar