Samráðsnefnd um undirboðs- og jöfnunartolla

Samkvæmt 5. mgr. 133 tollalaga nr. 88/2005, getur fjármála- og efnahagsráðherra skipað nefnd til að rannsaka kærur um innflutning vara á undirboðskjörum eða með styrkjum og gera tillögur til hans um álagningu undirboðs- eða jöfnunartolla.

Ráðherra skiptar sjö sérfróða menn til fjögurra ára í senn samkvæmt 2. gr. reglugerðar nr. 351/1994. Í nefndinni eiga sæti þrír menn tilnefndir af atvinnuvegaráðuneytinu, einn tilnefndur af ríkisskattstjóra, einn tilnefndur af samkeppniseftirlitinu, einn tilnefndur af utanríkisráðuneytinu og einn skipaður af ráðherra án tilnefningar.

Í nefndinni sitja:

  • Brynhildur Kr. Aðalsteinsdóttir, skipuð án tilnefningar.
  • Arnar Freyr Einarsson, skipaður af atvinnuvegaráðuneytinu.
  • Brynja Stephanie Swan, skipuð af atvinnuvegaráðuneytinu.
  • Elísabet Anna Jónsdóttir, skipuð af atvinnuvegaráðuneytinu.
  • Guðbjörn Guðbjörnsson, skipaður af ríkisskattstjóra.
  • Magnús Þór Kristjánsson, skipaður af Samkeppniseftirlitinu.
  • María Guðjónsdóttir, skipuð af utanríkisráðuneytinu.

Netfang nefndarinnar er: [email protected]

Upplýsinar um mál sem nefndin hefur tekið fyrir

Mál nr. 1/2025 – kísilmálmur frá Kína

Almennar upplýsingar
Almennar upplýsingar
Tegund máls:Kæra vegna innflutnings kísilmálms frá Kína.
Umbeðnar ráðstafanir:Undirboðs- og jöfnunartollar
Upphafsdagur rannsóknar:
  1. nóvember 2025
Kærandi:PCC BakkiSilicon hf.
tollskrárnúmer:2804.6100 og 2804.6900
Rannsóknartímabil:
  1. janúar 2024 – 30. júní 2025
Tímabil við mat á tjóni kæranda;Frá 1. janúar 2022
   
Lykildagsetningar
Lykildagsetningar
Frestur til að skrá sig sem hagmunaaðila:
  1. desember 2025
Almennur frestur til að skila inn upplýsingum:
  1. janúar 2026
Áætluð bráðabirgðaniðurstaða:Ágúst 2026
   
Spurningalistar
Spurningalistar
InnflytjendurSpurningalistiFylgiskjal spurningalista 
FramleiðandiSpurningalistiFylgiskjal spurningalista
Útflytjendur

Spurningalisti
(kemur síðar)

Fylgiskjal spurningalista