19 júní 2026Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Dómsmálaráðuneytið
Alþingi samþykkti lög um framkvæmd öryggisráðstafana: „Hópur sem við höfum hingað til ekki náð utan um“
Alþingi samþykkti nú rétt í þessu frumvarp Ragnars Þórs Ingólfssonar, félags- og húsnæðismálaráðherra, um framkvæmd öryggisráðstafana samkvæmt dómsúrlausn. Nýrri stofnun verður komið á fót með öryggisgæslustað fyrir allt að 16 einstaklinga sem þurfa sérhæfða þjónustu og er gert að sæta öryggisgæslu en ekki er talið viðeigandi að vista í fangelsi. Ekkert slíkt sérhæft úrræði er til í dag.…